Morgunblaðið - 17.07.2007, Side 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir,
dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
ENGAN sakaði þegar TF-SIF,
þyrla Landhelgisgæslunnar, nauð-
lenti í sjónum skammt utan við
Straumsvík rétt fyrir kl. 19 í gær-
kvöldi. Fjórir voru um borð í þyrl-
unni og komust þeir allir um borð í
björgunarbát. Ekki er vitað hvað olli
slysinu. Rannsóknarnefnd flugslysa
hefur tekið yfir svæðið og vinnur að
rannsókn á slysinu.
Samkvæmt upplýsingum frá LHG
var áhöfnin á TF-SIF við æfingar
með áhöfninni á Einari Sigurjóns-
syni, björgunarbát Slysavarna-
félagsins Landsbjargar. Eftir því
sem blaðamaður kemst næst missti
þyrlan afl í lítilli hæð. Þegar áhöfnin
fann að þyrlan var að missa afl skaut
hún út neyðarflotum með þeim ár-
angri að lendingin varð mjúk. Áhöfn-
in kom sér sjálf frá borði og um borð
í björgunarbátinn sem flutti hana í
land rétt fyrir kl. 21. Í áhöfn voru
Sigurður Heiðar Wiium flugstjóri,
Jens Þór Sigurðsson flugmaður,
Torben J. Lund stýrimaður og Daní-
el Hjaltason flugvirki. Farið var með
áhöfnina til hafnar á athafnasvæði
Alcans í Straumsvík þar sem Björn
Bjarnason dómsmálaráðherra og
Georg Lárusson, forstjóri Landhelg-
isgæslunnar (LHG), tóku á móti
þeim.
Forstjóri LHG segir viðbrögð
áhafnar hafa verið hárrétt
„Það er gott að sjá ykkur alla,“
sagði Björn Bjarnason dóms-
málaráðherra við áhöfnina og fagn-
aði því að hún hefði bjargast giftu-
samlega. „Það er ánægjulegt að
þetta gekk vel, þó að svona færi og
þið stóðuð ykkur með prýði. Gangi
ykkur vel,“ sagði Björn áður en
áhöfnin fór aftur upp í lögreglubílinn
og var ekið burt.
„Við þökkum guði fyrir að áhöfnin
skuli hafa sloppið heil á húfi,“ sagði
Georg Lárusson, forstjóri LHG, í
samtali við Morgunblaðið. Sagði
hann viðbrögð áhafnarinnar hafa á
allan hátt verið hárrétt og eins vel
staðið að björgun og nokkur kostur
var. „Þannig að það er áhöfninni
sjálfri að þakka að hún skuli vera á
lífi.“
Samkvæmt upplýsingum blaða-
manns maraði þyrlan eftir nauðlend-
inguna í hálfu kafi á hvolfi í sjónum.
Hún var um kílómetra frá landi,
norðanmegin við álverið í Straums-
vík. Eftir því sem blaðamaður komst
næst var þyrlan í vegi fyrir sigl-
ingum á svæðinu og það kallaði á að
henni yrði komið á land sem fyrst.
Rétt fyrir kl. 21.30 var áhöfninni
ekið í lögreglubíl í gegnum hliðið að
athafnasvæði Alcan. Þar stillti hún
sér upp fyrir fjölmiðla ásamt for-
stjóra LHG og dómsmálaráðherra
sem fagnaði giftusamlegri björgun
mannanna. Áhöfnin bar sig vel,
mennirnir virtust brattir þrátt fyrir
volkið í sjónum, en þeir voru enn í
appelsínugulum björgunargöllum
sínum og augljóslega enn nokkuð
blautir eftir veruna í sjónum. Fjöl-
miðlum var tjáð að fjórmenningarnir
gætu, samkvæmt fyrirmælum í flug-
rekstrarbók LHG, ekki veitt viðtöl,
en áhöfnin mun í framhaldinu veita
Rannsóknarnefnd flugslysa (RNF)
allar nauðsynlegar upplýsingar um
slysið og tildrög þess. Samkvæmt
upplýsingum frá LHG hafa verið
gerðar ráðstafanir til að áhöfnin fái
áfallahjálp vegna slyssins.
Búist við að björgunaraðgerðir
standi í alla nótt
Eftir því sem blaðamaður kemst
næst komu nokkrir tugir manna að
björgunaraðgerðum. Dýpk-
unarprammi kom á slysstað um kl.
22.30 í gærkvöldi og var útlit fyrir að
aðgerðir til að ná björgunarþyrlunni
TF-SIF á þurrt land stæðu í alla
nótt. Rannsóknarnefnd flugslysa
hefur tekið yfir svæðið og vinnur að
rannsókn á slysinu.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Páll Valdimarsson, hjá Rannsókn-
arnefnd flugslysa (RNF), að nú færi í
gang ákveðið rannsóknarferli og far-
ið væri eftir tilteknum gátlista sem
kveður á um hvaða upplýsingum þarf
að safna. Segir hann fullljóst að tekið
verði eins mikið af ljósmyndum og
hægt er áður en hróflað verði við
neinu á þyrlunni. Segir hann þetta
gert sökum þess að reynslan sýni að
hlutir bogni og brotni þegar farið sé
að skoða flök. Spurður hvenær búast
megi við því að tildrög slyssins verði
upplýst og liggi fyrir segir Páll það
geta tekið daga eða vikur. Benti
hann á að aðstæður til rannsókna
væru ekki auðveldar þegar um slys á
sjó væri að ræða.
Í fréttatilkynningu sem RNF
sendi frá sér á tólfta tímanum í gær-
kvöldi kom fram að enn væri ekkert
hægt að segja um orsakir slyssins.
Unnið væri að því að ná flugrita þyrl-
unnar og verður hann sendur til
Bretlands þar sem gögn hans verða
lesin.
„Það er gott að sjá ykkur alla“
Morgunblaðið/Sverrir
!"
Á vettvangi Seint í gær var unnið að því að ná TF-Sif upp. Þyrlan marar í kafi til vinstri á myndinni, en þrír björgunarbátar eru við hlið hennar. Í miðju
er björgunarskipið Einar Sigurjónsson og lengst til hægri dýpkunarprammi. Snæfellsjökull skartar sínu fegursta í baksýn.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„ÞAÐ ER mikið áfall að missa TF-SIF í hafið,“ sagði
Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í samtali við Morg-
unblaðið í Straumsvík í gærkvöldi. „Þetta er þyrla sem
hefur verið 22 ár í störfum fyrir Landhelgisgæsluna. Það
er mikil og góð reynsla af henni. Hún er búin að bjarga
tugum ef ekki hundruðum mannslífa. Það er því mikill
skaði að missa þyrluna. Aðalatriðið í okkar huga er hins
vegar að mennirnir björguðust og það hefur allt gengið
að óskum,“ sagði Björn. Aðspurður sagði hann að að-
stæður til björgunar hefðu ekki getað verið betri og vís-
aði þar bæði til nálægðar við land, staðsetningar björg-
unarbátsins vegna æfinga, veðurfars og þess hve gott var
í sjóinn. „Þannig að þeir gátu farið beint í fangið á björg-
unarmönnum. Þeir þurftu, að mér skilst, að synda í sjón-
um, en allt gekk það vel.“
Aðspurður sagði Björn ljóst að allt yrði gert til að
koma þyrlunni í land, en ljóst væri að hún væri ónýt. „Al-
menn skynsemi segir okkur það að þyrla sem er búin
miklum rafeindatækjum og lendir í því að fara á hvolf í
sjó, hún sé ekki til margra hluta nýt eftir það,“ sagði
Björn og upplýsti að þegar hefði verið haft samband við
Eurocopter, sem er framleiðandi að þyrlunum. Benti
Björn á að þyrlur LHG væru tryggðar og tók fram að
gerðar yrðu ráðstafanir til þess að útvega aðra þyrlu.
Þyrlan kostar um einn milljarð
Í samtali við Morgunblaðið sagði Georg Lárusson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar, þá dómsmálaráðherra hafa
flogið yfir slysstað og að það hefði verið skelfileg sjón að
sjá þyrluna mara í hálfu kafi á hvolfi. „Ég held að það sjái
það hver maður að vélin hlýtur að vera ónýt,“ sagði
Georg. Hann áætlar að þyrla á borð við TF-SIF kosti um
einn milljarð króna.
„Eins og Björn sagði þá erum við þegar farnir að leita
leiða til að afla nýrrar vélar sem yrði bráðabirgðalausn
og erum vongóðir um að það muni takast,“ sagði Georg
og tók fram að það myndi ekki skapast neyðarástand í
landinu þó eina af fjórum þyrlum LHG vantaði um tíma.
„Það er auðvitað mjög slæmt að missa þessa vél, en við
erum með þrjár öflugar vélar og vonumst til þess að geta
fengið afleysingavél eins fljótt og auðið er.“
Aðspurður hvort tímasetningar lægju ljósar fyrir svar-
aði Georg því neitandi. „Þetta er erfiður „bissness“ og
það þarf að leita eftir vél út um allan heim,“ sagði hann og
tók fram að ekki væri auðvelt að finna vél sem hentaði
LHG. Benti hann á að LHG hefði á undanförnum árum
öðlast mikla reynslu í því að leita að vélum og finna,
þannig að menn væru komnir með ágæt sambönd og
væru því bjartsýnir. Sagði Georg ljóst að um yrði að
ræða bráðabirgðaþyrlu sem þjónað gæti hérlendis þang-
að til hægt væri að fjárfesta í nýrri, en biðtíminn eftir
nýrri vél er tvö til fjögur ár.
Þegar búið að óska
eftir nýrri þyrlu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ábúðarmiklir á strandstað Georg Lárusson og Björn
Bjarnason þökkuðu forsjóninni giftusamlega björgun.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
LANDHELGISGÆSLAN eignaðist
sína fyrstu þyrlu, TF EIR, af gerð-
inni Bell Ranger, árið 1965 og lauk
ævi hennar með brotlendingu á
Rjúpnafelli í október 1971. Hvor-
ugur mannanna tveggja um borð
slasaðist. Næst var keypt hingað Si-
korsky-þyrla 1972 sem hlaut nafnið
TF GNA, og var hún sérstaklega
hönnuð til gæslustarfa yfir sjó. Gná
brotlenti á Skálafelli 1975 eftir að
öxull í stélskrúfu brotnaði en áhöfn-
ina sakaði ekki. 1976 var keypt hing-
að þyrla af Hughes-gerð, TF GRO,
hún brotlenti við Búrfellsvirkjun
1980 eftir að hafa flogið á loftlínu.
Eina þyrluslysið í sögu Gæslunnar
sem hefur kostað mannslíf var þegar
TF RAN, þyrla af Sikorsky-gerð,
hrapaði í æfingaflugi í Jökulfjörðum
árið 1983. Með henni fórust fjórir
starfsmenn Gæslunnar.
Gæsluþyrlan sem hrapaði í sjóinn
í gær, TF SIF, kom hingað til lands
árið 1985. Sif er með tvo 700 hest-
afla hreyfla, hún er af gerðinni Ae-
rospatiale Dauphin SA-365 N. Há-
markshraði þyrlunnar er um 324 km
á klukkustund og hámarks-
flugdrægi er um 720 km og getur
þyrlan verið allt að þrjár og hálfa
stund á flugi. Sif var keypt ný hing-
að til lands frá Frakklandi.
Í áhöfn Sifjar eru tveir flugmenn,
einn sigmaður, einn spilmaður og
einn læknir, alls fimm manns. Eng-
inn læknir var þó með þyrlunni í
gær. Þyrlan getur tekið átta farþega
í sæti og einar sjúkrabörur. Einnig
er þyrlan búin vörukrók og er mesta
lyftigeta um 1.300 kg. Á henni eru
utanáliggjandi flotholt sem blásast
upp við nauðlendingu á sjó.
Sif hefur tekið þátt í fjölmörgum
frægum björgunum en hefur einnig
lent í óvæntum hremmingum. Í maí
2001 skemmdist hún töluvert þegar
hún var á eftirlitsflugi yfir Faxaflóa
og Breiðafjörð og flaug inn í lárétt-
an vindstrók við suðurbrún Urð-
armúla á Snæfellsnesi.
Tók það flugmennina að sögn
Rannsóknarnefndar flugslysa réttar
níu sekúndur að ná aftur stjórn á
þyrlunni. En þeir urðu varir við
óeðlilegan titring í þyrlunni og
ákváðu að lenda á túni. Kom í ljós að
þyrilblöð höfðu rekist í þrjá lóðrétta
stélfleti þyrlunnar. Það tók um tvo
mánuði og kostaði um 55 milljónir
króna að gera við þyrluna. Tafði það
verkið að erfiðlega gekk að fá vara-
hluti.
Mikilvæg
björgunar-
tæki en
mörg slys
Morgunblaðið/RAX
Æfingar á Viðeyjarsundi.