Morgunblaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.07.2007, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is DYR á farþegavél Icelandair opnuðust stuttu eftir flugtak í janúar síðastliðnum með þeim afleiðing- um að neyðarrenna féll út og slitnaði frá flugvél- inni. Átta manna áhöfn og 144 farþegar voru um borð í vélinni sem skemmdist nokkuð við óhappið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá rannsókn- arnefnd flugslysa í Danmörku. Héldu að viðvörunarljósið væri bilað Vélin, sem er af gerðinni Boeing 757-200, var ný- lega komin úr skoðun þar sem dyrunum að neyð- arrennunni hafði ekki verið lokað almennilega fyr- ir misgáning. Sextán mínútum eftir flugtak á Keflavíkurflugvelli opnuðust dyrnar og viðvörun- arljós kviknaði í flugstjórnarklefanum. Þar sem flugmenn fundu hins vegar ekki neitt athugavert gerðu þeir ráð fyrir því að um bilun í ljósinu væri að ræða og héldu áfram leið sinni til Kaupmanna- hafnar. Stuttu eftir að vélin lækkaði flugið við strönd Danmerkur féll neyðarrennan út og rifnaði frá. Farþegar sem sátu í grennd við vinstri væng vél- arinnar segjast hafa heyrt skell, eins og eitthvað hafi rekist á vélina, og síðan sprengingu strax í kjölfarið. Engin vandræði urðu það sem eftir lifði flugsins og ekki kom í ljós hvað gerst hafði fyrr en flugvélin var lent á Kastrup. Umgjörð dyranna var verulega skemmd og sömuleiðis vinstri stélflötur, auk þess sem minniháttar skemmdir urðu á vinstri væng vélarinnar. Rannsóknarnefndin beinir þeim tilmælum í framhaldinu til Flugöryggisstofnunar Evrópu að hún tryggi það að framleiðandi flugvélarinnar bregðist með ýmsum hætti við þessu óhappi. Nefndin mælir þannig með því að sett verði fyr- irmæli í handbók vélarinnar um að áhöfn skuli bregðast tafarlaust við því ef ljós kviknar sem gef- ur til kynna að dyr hafi opnast. Jafnframt bendir hún á að það þurfi að endurskoða leiðbeiningar svo að þessum dyrum sé ávallt tryggilega lokað og það þurfi að vera vel sýnilegt hvort svo sé. Flugmenn brugðust rétt við Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Ice- landair, segir að flugmenn félagsins hafi brugðist við í samræmi við leiðbeiningar. Mannleg mistök hafi verið gerð við skoðun vélarinnar í tæknistöð- inni á Keflavíkurflugvelli og það sé skýringin á óhappinu. „Í tæknistöðinni fara menn í samvinnu við rannsóknarstofnanir yfir atburðarásina til þess að læra af þeim mistökum sem þarna urðu og koma í veg fyrir að þau endurtaki sig,“ segir Guðjón. Neyðarrenna rifnaði af farþegavél Icelandair í ellefu kílómetra hæð Lás Búnaður til að læsa dyrum þótti ekki sýna nógu skýrt hvort dyrnar væru læstar. SÍMINN hefur ákveðið að hefja út- sendingar á háskerpusjón- varpsmerki (HDTV) í haust. Um er að ræða tvær innlendar eða erlend- ar rásir sem dreift verður um ADSL-kerfi Símans sem nær til 83% heimila á Íslandi. Flest af þessum 83% heimila munu geta tekið á móti háskerpusjónvarpsmerkinu en í dag eru um 30 þúsund heimili með myndlykil fyrir ADSL-sjónvarps- þjónustu Símans, segir í frétt frá fyrirtækinu. Segir þar að Síminn muni í sam- vinnu við innflutningsaðila á sjón- vörpum taka saman lista yfir þau tæki sem geta tekið við háskerpu- sjónvarpsmerki og birta hann á heimasíðu Símans. Haft er eftir Katrínu Olgu Jó- hannesdóttur, framkvæmdastjóra hjá fyrirtækinu, að háskerpu- sjónvarp verði mesta breyting í sjónvarpsmálum Íslendinga frá því litasjónvarpstækin komu fram. Síminn boð- ar háskerpu- sjónvarp TINDUR Snæfellsjökuls teygir sig tign- arlega upp fyrir snjóalagið um þessar mundir og gnæfir yfir Vesturlandið, þar sem hann sést víða vel. Tindurinn er jafnan brynjaður af hrími langt fram eftir sumri og kemur fyrir að hann sést ekki heilu sumrin. Þar sem veður hefur verið afar gott að undanförnu mátti hins vegar vel búast við því að snjóa leysti frá honum. Vegfarendur sem farið hafa um jökulinn að undanförnu hafa nokkrir hverjir talið óeðlilegt að tindurinn væri jafn ber og raun ber vitni. Hins vegar er hægt að fullvissa þá um að slíkt er alvanalegt. „Það gerist á hverjum vetri að tindurinn brynjast af hrími, og það stendur lengi fram eftir vori og jafnvel fram á sumar að brynjan sitji á,“ segir Oddur Sigurðsson, jarðfræðingur hjá Orkustofnun. „Ég veit ekki hvenær það hef- ur hrunið af tindinum en það gerist venju- lega smám saman yfir sumartímann. Sólin nær að hita klettinn undir þannig að brynj- an hrynur af. Þetta er skemmtilegt fyr- irbrigði, klettar og hvaðeina sem stendur upp úr jöklum, þ.e. jökulsker, það hrím- brynjast svona.“ Oddur segir það breytilegt eftir árferði hversu stór og mikil brynjan verður og því einnig hversu lengi hún situr. „Hins vegar þegar fólk sér mun á jöklinum frá ári til árs, þá er það oftast nær ávallt að tala um snjóinn. Það er vegna þess að það er ekki fyrr en talsvert líður á sumarið að jökullinn kemur upp undan snjónum, ef svo má segja. Snjóinn leysir misjafnlega snemma og sum sumur eru svo köld að það nær ekki að leysa, þá sýnist manni jökullinn vera að stækka.“ Lítt sýnilegar breytingar á jöklinum Snæfellsjökull er um 1.446 metra hár en hefur hin síðustu ár verið að dragast saman til jaðranna vegna hlýnandi loftslags. Jök- ullinn er um 11–12 ferkílómetrar að stærð og hefur minnkað töluvert frá því að hann var hvað stærstur, þ.e. fyrir um það bil einni öld. „Þetta eru þó svo litlar breytingar á jöklinum að þær eru lítt sýnilegar, þetta skiptir nokkrum metrum á ári á helstu út- köntum hans,“ segir Oddur en minnist þess að fyrir þremur, fjórum árum hafi hann hins vegar minnkað umtalsvert. „Þá slitnaði stórt stykki úr sambandi við jökulinn og hann minnkaði skyndilega. Það stykki skipti hekturum.“ Spurður um minnkun jökla á Íslandi al- mennt segir Oddur hana vera staðreynd. „Að meðaltali virðist mér eins og jöklarnir minnki um svona 0,3% að flatarmáli á ári hverju, um þessar mundir.“ Verið mörgum yrkisefni Snæfellsjökull er virk eldkeila sem hlaðist hefur upp í mörgum hraun- og sprengi- gosum á síðustu 700–800 þúsund árum. Toppgígurinn er um 200 metra djúpur, full- ur af ís og girtur íshömrum. Talið er að síð- ast hafi gosið í jöklinum fyrir um 1.800 ár- um og var það stórgos. Jökullinn hefur orðið mörgum yrkisefni og lengi verið rætt um kraft jökulsins – sem margir telja sig finna af því að dvelja í nánd við hann – og hann oft nefndur sem einn af sjö orkustöðvum heims. Jafnframt er vert að minnast á fjölmenna samkomu sem haldin var við rætur jökulsins fyrir þrettán árum, til heiðurs verum sem hingað voru væntanlegar. Mikill munur á tindi Snæfellsjökuls að vori og hásumri – þegar hrímbrynjan er fallin af Minnkar um 0,3% að flatar- máli ár hvert Jöklar landsins halda áfram að minnka þó að sýnilegar breytingar séu ekki miklar á milli ára Í HNOTSKURN »Snæfellsjökull er 1.446 metrar aðhæð og á toppi jökulsins eru þrír tindar eða þúfur, á brún gígskálarinnar, kallaðar jökulþúfur. »Toppgígurinn er um 200 metradjúpur, fullur af ís og girtur íshömr- um. Síðast gaus í jöklinum fyrir 1.800 árum og var það stórgos. »Ekki er óvanalegt að sjá tinda jök-ulsins bera seint að sumri en það fer þó eftir árferði hvenær hrímbrynjan hrynur af þeim. »Jökullinn hefur, líkt og aðrir jöklarhér á landi, minnkað á umliðnum ár- um. Talið er að hann verði orðinn frem- ur lítilfjörlegur eftir eina öld, þó svo að hann muni eflaust standa lengi enn. Morgunblaðið/RAX Hrímbrynjan farin af Svona lítur tindur Snæfellsjökuls út núna. Morgunblaðið/RAX Töluvert annað var að sjá tind Snæfellsjökuls í apríl á síðasta ári. Oddur Sigurðsson jarðfræð- ingur fór þar um í júní í fyrra og var brynjan þá enn til staðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.