Morgunblaðið - 17.07.2007, Síða 21
daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. JÚLÍ 2007 21
Skúfey er lítil eyja, vestan viðSandey. Þar eru þrjátíuíbúar og allir í þorpinu viðhöfnina, þar sem húsin
standa þétt saman, eins og gjarnan
er í Færeyjum.
Skildu eftir peninga
Dönsku hjónin sem heimsóttu
Skúfey fyrir sjö árum ætluðu sam-
dægurs til baka en voru ekki með
brottfarartíma ferjunnar betur en
svo á hreinu að þau misstu af ferð-
inni. Þau báðu Tummas um leyfi til
að sofa í bátaskýli hans niður við sjó-
inn en þar sem það var ekki hægt
bauð hann þeim gistingu í íbúðar-
húsinu. Tummas segir að Dönunum
hafi liðið svo vel að þeir hafi bætt
annarri nótt við. Þegar hjónin síðan
fóru var Tummas farinn til vinnu og
þegar þau spurðu Elisabeth hvað
gistingin og annar viðurgjörningur
kostaði vildi hún enga greiðslu taka.
Þau skildu þá eftir fjárhæð á borð-
inu sem Tummas og Elisabeth not-
uðu til að kaupa góða kaffivél sem
enn stendur á eldhúsbekknum.
Þetta varð til þess að þau fóru að
bjóða ferðafólki þjónustu, meðal
annars gistingu og veitingar. Mið-
stöðin er í stofunni í húsi þeirra, þar
sem spjall við húsráðendur í nota-
legu umhverfi er stór hluti af upplif-
uninni.
Bæði hafa hjónin tengsl við Ísland
og taka því sérstaklega vel á móti Ís-
lendingum. Elisabeth er af íslensk-
um ættum. Afi hennar, Pétur Frið-
rik Mikkelsen, kom sex ára frá
Fáskrúðsfirði til Suðureyjar. Tum-
mas var aftur á móti sjómaður á
Hópsnesi frá Grindavík í nokkur ár,
fyrir rúmum þrjátíu árum og var
einnig oft að veiðum á færeyskum
bátum við Íslandsstrendur. Það
kemur blik í augu hans þegar hann
minnist Jens Óskarssonar skipstjóra
og skipsfélaganna enda gekk vel hjá
þeim.
Tummas hefur í mörg ár unnið á
ferjunni sem siglir á milli Sandeyjar
og Straumeyjar. Hann notar
vaktafríin til að þjóna ferðafólkinu
og sinna sveitarstjórnarmálum.
Áhugi á sögunni
Ferðafólki fjölgar í eyjunni á með-
an íbúunum fækkar. Í Skúfey eru
eftir um 30 íbúar, mest fullorðið fólk
sem lifir af sjálfsþurftarbúskap sam-
kvæmt færeyskri hefð. Tummas
segir að um 6000 ferðamenn hafi
sótt eyjuna heim á síðasta ári.
Ferðafólkið hefur að hans sögn
mesta ánægju af því að fylgjast með
daglegu lífi og störfum fólksins í
þorpinu. Einnig ganga margir út á
fuglabjörgin á norður- og suðurhluta
eyjarinnar. Tummas segir fólkið hafi
einnig mikinn áhuga á sögunni og
hann þurfi því að hafa Færeyinga-
sögu á takteinum. Aðalsöguhetja
hennar, Sigmundur Brestisson, sem
kristnaði Færeyjar árið 1000 er tal-
inn grafinn í kirkjugarðinum í Skúf-
ey, þar er að minnsta kosti Sig-
mundarsteinn til minningar um
hann. Sigmundur bjó í Skúfey en
synti til Suðureyjar þegar Þrándur í
Götu sótti að honum en var drepinn
og síðan myrtur þegar hann komast
á land í Suðurey, eins og sagt er frá í
sögunni, vegna gullhringsins sem
hann bar.
Fyrstu tekj-
urnar dugðu
fyrir kaffivél
Heimsókn danskra hjóna til Skúfeyjar í Færeyjum
varð þess valdandi að Elisabeth og Tummas Frank Jo-
ensen hófu ferðaþjónustu í húsi sínu, Á flötinni. Starf-
semin fer vaxandi enda að aukast að ferðafólk sæki
þessa friðsælu og að mörgu leyti dæmigerðu færeysku
eyju heim. Helgi Bjarnason brá sér í heimsókn.
Gestrisni Tummas og Elisabeth Joensen taka á móti ferðafólki í húsi sínu, Á flötinni, í Skúfey í Færeyjum. Þau
segjast hafa sérstaklega gaman af því að taka á móti Íslendingum.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þorpið Húsin í þorpinu í Skúfey liggja þétt saman, eins og í mörgum fleiri
þorpum Færeyinga, og þök í mismunandi litum eru vinsælt myndefni.
Pósturinn Enn má sjá gömul vinnu-
brögð á ýmsum sviðum í fámennum
byggðum Færeyja. Pósturinn er
enn borinn með gamla laginu upp
frá bryggjunni í Skúfey.
Ágætlega greiðar samgöngur eru
við Skúfey. Ferjan M/F Sildberin
siglir 3 til 4 ferðir á dag frá Sandi
á Sandey og áætlunarflug er með
þyrlu frá Þórshöfn fjórum sinnum í
viku.
KONUR, sem hafa gengið í gegnum
tíðahvörf og hafa lítið af karlhorm-
óninu testósteróni í líkamanum, eru
líklegri en aðrar til að þróa með sér
hjartasjúkdóma, að því er belgísk
rannsókn leiðir í ljós og greint var
frá á vefmiðli BBC.
Rannsakendur voru með 112
kvenna úrtak. Helmingur kvenn-
anna átti við vandamál að stríða,
sem tengdust fituhrörnun slagæða,
sem er gjarnan undanfari
hjartasjúkdóma, og reyndust þessar
konur að sama skapi hafa lágt hlut-
fall testósteróns. Niðurstöðurnar
voru birtar í European Journal of
Endocrinology og kallað var eftir
frekari rannsóknum á tengslum
hormóna og hjartasjúkdóma, sem nú
eru algengasta dánarorsök breskra
kvenna. Nærri lætur að hjarta- og
blóðrásarsjúkdómar leggi um eitt
hundrað þúsund konur að velli ár
hvert.
Hætta á að þróa með sér hjarta-
sjúkdóma eykst verulega eftir tíða-
hvörf hjá konum. Þrátt fyrir að te-
stósterónið sé allajafna tengt
karlmönnum framleiða konur einnig
þetta karlhormón, aðallega í eggja-
stokkum og nýrnahettum. Horm-
ónabreytingar samfara tíðahvörfum
hafa áhrif á framleiðslumagnið.
Þekkt er að testósterónið gegnir
grundvallarhlutverki bæði í karl-
mönnum og kvenmönnum, svo sem
við að halda við vöðvastyrk og beina-
þéttleika. Rannsakendur við Free-
háskólann í Brussel segja á hinn
bóginn að testósterónið gegni fleiri
hlutverkum, svo sem að bæla niður
merki, sem valda bólgum í slag-
æðavegg.
Testósterón-
ið hjarta-
styrkjandi
Hjartasjúkdómar Hætta á að þróa
með sér hjartasjúkdóma hækkar
verulega eftir tíðahvörf hjá konum.
Reuters
Landið er fallegra á löglegum hraða