Morgunblaðið - 16.08.2007, Side 1
fimmtudagur 16. 8. 2007
íþróttir mbl.isíþróttir
Vilja kylfingar alvöru-deildakeppni í golfi?>> 4
AP
Fyrsta markið Heiðar Helguson opnað markareikning sinn hjá enska úrvalsdeildarliðinu Bolton í gær þegar hann skoraði gegn Fulham. Heiðar var áður
leikmaður Fulham en mark hans dugði ekki til í 2:1-tapleik. Tony Warner markvörður gerði mistök sem Heiðar nýtti sér snemma í leiknum. » 2
ÞÓREY Edda Elísdóttir, frjáls-
íþróttakona úr FH, verður eini ís-
lenski keppandinn á Heimsmeist-
aramótinu í frjálsíþróttum sem
hefst í Osaka í Japan í næstu viku.
Þar mun hún að sjálfsögðu keppa í
stangarstökki og verður for-
keppnin þann 26. ágúst og úrslitin
síðan þriðjudaginn 28. ágúst.
Frestur til að ná lágmörkum fyr-
ir HM er runninn út og var Þórey
Edda sú eina sem náði lágmarkinu
að þessu sinni.
Hún heldur til Japans í dag frá
Þýskalandi þar sem hún hefur æft
undanfarið. Hún komst ekki með
þýska liðinu í æfingabúðir og verð-
ur því ekki með þjálfarann sinn síð-
ustu tíu dagana fyrir mótið. Hún
fer hins vegar í aðrar æfingabúðir
og eru þær í Kagawa í Japan og
verður hún þar með dönsku kepp-
endunum en Vésteinn Hafsteinsson
verður þar og var Þórey Eddu inn-
an handar með þetta. Í æfingabúð-
unum verða einnig Svíar þannig að
þetta verða norrænar æfingabúðir.
Stanley, gamli þjálfari Þóreyjar
Eddu, verður með Svíunum í búð-
unum.
Þórey Edda hefur átt við meiðsli
að stríða að undanförnu, hásinarn-
ar hafa verið að ergja hana, en er
búin að jafna sig af meiðslunum og
hefur æft vel að undanförnu.
Þórey Edda
ein á HM
FORRÁÐAMENN handknattleiks-
deildar Fram hafa hafnað tilboði
Vals í landsliðsmanninn Sigfús Sig-
fússon. Valsmenn hafa að und-
anförnu reynt að fá Sigfús í sínar
raðir og hafa viðræður á milli fé-
laganna staðið yfir í nokkrar vikur.
Jón Eggert Hallsson formaður
handknattleiksdeildar Fram sagði í
gær við Morgunblaðið að tilboð
Vals hefði ekki verið ásættanlegt.
„Sigfús er samningsbundinn Fram
næstu tvö árin og við eigum ekki
von á öðru en að hann leiki með lið-
inu í vetur,“ sagði Jón Eggert. Að
undanförnu hafa þrír erlendir leik-
menn verið til reynslu hjá félaginu
en Jón segir að þeir hafi ekki staðið
undir væntingum. „Leitin heldur
því áfram og við eigum von á leik-
manni í næstu viku sem við ætlum
að skoða nánar.“ Aðspurður sagði
Jón ekki vita hvort Sigfús ætlaði
sér ekki að leika með Fram í vetur.
„Ég hef ekkert rætt við Sigfús að
undanförnu en ég vona að þessu
máli sé nú lokið og hann byrji að
æfa með okkur á ný.“
Sigfús fer
ekki til Vals
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
„ÞAÐ er eitthvað að í hnénu, en ég
veit lítið hvað það er, en þetta er ekk-
ert alvarlegt,“ sagði Guðjón Valur
Sigurðsson, landsliðsmaður í hand-
knattleik og leikmaður Gummers-
bach, við Morgunblaðið í gær. Hann
fer í speglun í dag og þá kemur
væntanlega betur í ljós hvers eðlis
meiðsli hans eru.
„Þetta byrjaði í mars og ég hef
svona dregið þetta. Ég var orðinn
fínn en það kemur alltaf vökvi í
vinstra hnéð og ég var fínn í síðustu
landsleikjum og eins á æfingamóti
sem við vorum í um daginn. En í
mótinu núna um helgina var þetta
orðið mjög erfitt þó svo ég spilaði.
Þetta er óþægilegt en ég get
hlaupið og spilað. Læknirinn hjá
okkur segir að ég geti spilað en sama
og engar líkur séu á að ég geti klárað
tímabilið án þess að láta laga þetta.
Það er því best að hespa þessu af.
Hnéð var myndað um daginn og
það er allt í lagi með liðþófa og öll
bönd þannig en þeir vilja kanna
hvers vegna þessi vökvamyndun er.
Þetta er ekkert stórmál og ekkert
til að hafa áhyggjur af. Ég er ekki
búinn að gefa upp vonina um að ná
fyrsta leik eftir hálfan mánuð og geri
það vonandi. Ég byrja í sjúkraþjálf-
un strax eftir aðgerðina,“ sagði Guð-
jón Valur sem hefur aðeins misst af
tveimur deildarleikjum í þýsku
deildinni þau sex tímabil sem hann
hefur leikið þar.
„Ég hef litlar áhyggjur af þessu,
maður brosir bara og þá lagast þetta
miklu fyrr. Það er ekki nema þeir
skeri vitlaust hné en ég kem í veg
fyrir það með því að krota „diese
Seite!“ á rétta hnéð í kvöld áður en
ég fer að sofa,“ sagði Guðjón Valur
léttur í lund.
„Næ vonandi fyrsta leik“
www.rs.is
Forerunner 305 sameinar útlit og virkni og hentar jafnt fyrir
byrjendur sem og atvinnumenn. Tækið fylgist stöðugt með
púls, hraða, vegalengd og brennslu, og hefur innbyggðan
hlaupafélaga og þjálfara sem hvetja þig áfram. Tækið ferlar
leiðina með GPS móttakaranum sem þú getur skoðað og
haldið utanum í tölvunni þinni.
ÁNANAUSTUM 1 101 REYKJAVÍK SÍMI 520 0000
- góður félagi í Reykjavíkurmaraþonið!GPS hlaupatæki