Morgunblaðið - 17.08.2007, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Nú þegar umræða um um-hverfis- og náttúruvernder alltumlykjandi kepp-ast bílaframleiðendur við
að búa til „grænustu“ bifreiðirnar. Á
sama tíma reyna þeir að forðast eftir
bestu getu að skerða gæði bílanna. Þá
er ýmist boðið upp á léttari og eyðslu-
minni vélar, aukið úrval af dísilvélum,
tvinnbíla og í örfáum tilvikum vélar
sem notast eingöngu við umhverf-
isvænt eldsneyti. Vefsíðan grist.com,
sjálfstæður fréttavefur um umhverf-
ismál, tók nýverið saman lista yfir
fimmtán bestu umhverfisvænu bíl-
ana. Forvitnilegt er að skoða nokkra
þá bíla sem prýða listann sem er
merkilega fjölbreyttur. Þess ber að
geta að samantektin miðar fyrst og
fremst við bandarískan bílamarkað.
Fjölbreytni
Í fyrsta sæti er tvinnbíllinn Toyota
Prius en hann er eflaust þekktasti
tvinnbíllinn í dag. Tæp 800.000 eintök
hafa verið seld um heim allan og virð-
ist hann falla vel í kramið hjá kaup-
endum sínum. Honda Civic-
tvinnbíllinn situr í öðru sæti. Að
mörgu leyti svipaður Priusnum en þó
vinnur rafmótorinn sjaldnast einn
heldur er hann aðallega notaður til að
styðja við bakið á 1,3 lítra og fjögra
sílindra bensínvélina.
Þriðja sætið verma þrír bílar, Peu-
geot 107, Citroën C1 og Toyota Aygo.
Þeir byggja í raun á sama grunni
enda allir framleiddir í sömu verk-
smiðju í Tékklandi. Sérlega sparneyt-
nir og nettir bílar sem bjóðast bæði
með bensín- og dísilvélum. Upp-
haflega framleiddir til að keppa við
Smart Car. Þá er orðrómur uppi um
að Toyota hyggist senda frá sér nýja
útgáfu af Aygo á næsta ári.
Fimmta sætið á Renault eco2 sem
hefur hlotið jákvæð viðbrögð kaup-
enda frá því hann kom fyrst á markað
í Bandaríkjunum í maí síðastliðnum.
CO2-útblásturinn er undir 140 g/km
og svo eru 95% af þunga hans end-
urnýtanleg þegar hann hafnar loks á
haugunum.
Grænn sportbíll
Smart ForTwo hlaut að hafna á
þessum lista en hann vermir sjöunda
sætið. Hann hefur þó enn ekki náð til
Bandaríkjanna en er þó væntanlegur
þangað innan skamms. Smart
ForTwo er með smæstu og jafnframt
léttustu bílum á markaðnum.
Smábíllinn Honda Fit hefur reynst
vel í Evrópu og Asíu. Hann þykir sér-
lega sparneytinn og situr í þrettánda
sæti listans.
Þá er mjög athyglisvert að sjá
sportbílinn Mazda MX-5 Miata á
þessum lista en hann vermir fjór-
tánda sætið. Vélin er heldur smá,
tveggja lítra og fjögra sílindra, en er
engu að síður nokkuð öflug. Bíll sem
greinilega hefur náð að heilla um-
hverfismeðvitaða sportbílaunnendur.
Vefsíðan fjallar líka um fáeina hug-
myndabíla sem nýlega hafa verið
kynntir á bílasýningum og gefa vís-
bendingu um það sem koma skal í
þróun grænna bíla. Þar er meðal ann-
ars nefndur Chevy Volt frá GM sem
er tvinnbíll með eins lítra bensín-
tanki með túrbó-innspýtingu ásamt
rafmótor. Eins og við er að búast
virðist vera einhver bið þangað til
bíllinn kemur á markað. Einnig eru
nefndir Ford HySeries Edge, Honda
FCX og Tango T600. Sá síðastnefndi
er örmjór tveggja sæta rafmagnsbíll
sem leikarinn George Clooney
hreppti eitt eintak af.
Chevy Volt Þessa hugmyndabíls er beðið með mikilli eftirvæntingu.
Aygo Smábíllinn frá Toyota hefur farið vel í kaupendur.
Smart Þessir smábílar hafa lengi verið á meðal sparneytnustu bíla.
Prius Líklegastur til að koma upp í hugann þegar minnst er á tvinnbíl.
Bestu „grænu“ bílarnir
MAZDA 3 H/B TS SJÁLFSKIPTUR
árg 10/2004 ek. 32 þ.km. Verð 1.690 þ.
Sjá fleiri myndir á www.heimsbilar.is
Raðnúmer 250176.
NISSAN PRIMERA ACENTA SJÁLF-
SKIPTUR árg 5/2003 ek. 68 þ.km.
Verð 1.290 þ.
Sjá fleiri myndir á www.heimsbilar.is
Raðnúmer 103035.
CITROEN C3 SX SJÁLFSKIPTUR
árg 6/2004 ek. 60 þ.km. Verð 1.190 þ.
Sjá fleiri myndir á www.heimsbilar.is
Raðnúmer 103224.
LAND ROVER DEFENDER 130 TDI
DOUBLE CAB DÍSEL árg 4/2003
ek. 144 þ.km. Verð 1.890 þ.
Sjá fleiri myndir á www.heimsbilar.is
Raðnúmer 103101.
MAZDA 6 TS SJÁLFSKIPTUR árg
1/2004 ek. 58 þ.km. Verð 1.790 þ.
Sjá fleiri myndir á www.heimsbilar.is
Raðnúmer 103414.
HONDA CR-V I-V-TEC 150 HÖ SJÁLF-
SKIPTUR árg 5/2003 ek. 72 þ.km.
Verð 2.190 þ.
Sjá fleiri myndir á www.heimsbilar.is
Raðnúmer 250136.
TOYOTA LAND CRUISER 90 DÍSEL
árg 1997 ek. 194 þ.km. Verð 1.490 þ.
Sjá fleiri myndir á www.heimsbilar.is
Raðnúmer 250177.
TOYOTA YARIS SOL SJÁLFSKIPTUR
árg 2001 ek 53 þ.km. Verð 990 þ.
Sjá fleiri myndir á www.heimsbilar.is
Raðnúmer 250159.
Heimsbílar - Kletthálsi 2
110 Reykjavík - Sími 567 4000
Næstum tveir af hverjum þrem-
ur karlkyns ökumönnum í Bret-
landi aka að jafnaði yfir 160
km/klst. (100 mph) á þjóðvegum
landsins samkvæmt nýlegri
könnun. Um fjögur þúsund
breskir ökumenn tóku þátt í
könnuninni og þar af játuðu 63%
karlanna að keyra að jafnaði um
50 km/klst. hraðar en lögin
segja til um. Aftur á móti játuðu
aðeins 36% kvennanna slíkt hið
sama. Í sömu könnun kom jafn-
framt fram að 90% karlkyns
þátttakendanna og þrír fjórðu
kvenkyns þátttakendanna við-
urkenndu að keyra að jafnaði yf-
ir leyfilegum hámarkshraða sem
er um 110 km/klst. (70 mph).
Þrátt fyrir þessar tölur hafa
aðrar tölur sýnt að akstur á
þjóðvegum er um tíu sinnum
hættuminni en hægari akstur í
þéttbýli. Þá sýnir könnunin jafn-
framt að breskar konur eru var-
kárari bílstjórar en breskir karl-
ar og ólíklegri til að taka óþarfa
áhættur á þjóðvegunum.
Morgunblaðið/Ómar
Hraðahvöt Um þriðjungur breskra karla viðurkennir að keyra að jafnaði um 50 km/klst yfir leyfilegum hámarkshraða.
Breskum
körlum
liggur á