Morgunblaðið - 03.11.2007, Side 2
2 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
úrslit
KÖRFUKNATTLEIKUR
Hamar – Snæfell 70:77
Hveragerði, Iceland Express-deild karla,
föstudagur 2. nóvember 2007.
Gangur leiksins: 18:17, 44:37, 62:58, 70:77.
Stig Hamars: Friðrik Hreinsson 21,
George Byrd 16, Marvin Valdimarsson 11,
Viðar Hafsteinsson 8, Raed Mostafa 8, Lár-
us Jónsson 4, Bojan Bojovic 2.
Fráköst: 11 í sókn, 18 í vörn.
Stig Snæfells: Justin Shouse 26, Sigurður
Á. Þorvaldsson 16, Hlynur Bæringsson 11,
Árni Ásgeirsson 9, Slobodan Subasic 8, Jón
Ólafur Jónsson 5, Anders Katholm 2.
Fráköst: 10 í sókn, 27 í vörn.
Villur: Hamar 16 – Snæfell 14.
Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Björn
Leósson.
Staðan:
Keflavík 5 5 0 495:406 10
Grindavík 5 4 1 446:426 8
KR 5 4 1 467:432 8
Njarðvík 5 3 2 412:373 6
Tindastóll 5 3 2 429:440 6
Snæfell 5 2 3 431:438 4
ÍR 5 2 3 402:428 4
Stjarnan 5 2 3 417:428 4
Skallagrímur 5 2 3 399:402 4
Hamar 5 1 4 360:380 2
Þór A. 5 1 4 414:470 2
Fjölnir 5 1 4 381:430 2
1. deild karla
Valur – KFÍ........................................... 87:94
Breiðablik – Ármann/Þróttur ............. 85:75
Þróttur Vogum – FSu .......................... 75:85
Staðan:
Breiðablik 4 4 0 375:310 8
FSu 4 4 0 339:286 8
Valur 4 3 1 325:314 6
Ármann/Þrótt. 5 2 3 393:417 4
KFÍ 4 2 2 331:322 4
Höttur 4 2 2 337:320 4
Reynir S 3 1 2 257:287 2
Haukar 3 1 2 221:251 2
Þór Þorl. 3 0 3 205:228 0
Þróttur V. 4 0 4 279:327 0
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Miami – Detroit .....................................80:91
Utah – Houston ...................................95:106
Seattle – Phoenix................................ 99:106
HANDKNATTLEIKUR
Eimskips-bikar karla, 16 liða úrslit:
Afturelding 2 – Fram 2 ........................ 33:31
KNATTSPYRNA
England
2. deild:
Swansea – Gillingham.............................. 1:1
Þýskaland
Energie Cottbus – Schalke..................... 1:0
Christian Bassila 46.
Holland
Willem II – Venlo ..................................... 1:2
um helgina
HANDKNATTLEIKUR
Laugardagur:
N1 deild kvenna:
Kaplakriki: FH – Fram .............................16
Fylkishöll: Fylkir – Akureyri...............16.15
Evrópukeppni kvenna
Vodafonehöllin: Valur – N. Krusevac.......17
Sunnudagur:
Eimskipsbikarkeppni karla, 16 liða úrslit:
Víkin: Víkingur 2 – Þróttur V....................18
Mýrin: Stjarnan – HK................................17
Austurberg: ÍR – Akureyri .......................17
Framhús: Fram – Afturelding..................17
Ásvellir: Haukar 2 – Valur.........................15
Evrópukeppni kvenna
Vodafonehöllin: Valur – N. Krusevac..18.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Laugardagur:
Iceland Express-deild kvenna:
Hveragerði: Hamar – Fjölnir....................16
DHL-höllin: KR – Valur ............................16
1. deild karla:
Egilsstaðir: Höttur – KFÍ ....................15.30
Sandgerði: Reynir S. – Haukar.................17
Sunnudagur:
Iceland Express-deild kvenna:
Ásvellir: Haukar – Keflavík..................19.15
BLAK
Laugardagur:
1. deild kvenna:
Kennaraháskólinn: Þróttur R. – HK........14
Neskaupst.: Þróttur N – Fylkir ................18
Sunnudagur:
1. deild karla:
Digranes: HK – Þróttur R.........................13
1.deild kvenna:
Neskaups.: Þróttur N. – Fylkir ................12
félagslíf
Herrakvöld Fram
Framarar verða með hið árlega herrakvöld
sitt föstudaginn 9. nóvember kl. 20. Rögn-
valdur gáfaði flytur gamanmál og Sigurður
Tómasson er veislustjóri.
íþróttir
GIL
al, 3
Arse
velli
arke
liðsi
léku
stór
Lan
mað
cott
B
U
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
„Málið er að ég hef haldið með
Manchester United frá sex ára
aldri. Þá gaf frændi minn mér
Manchester-trefil, og í staðinn
varð ég að halda með United. Það
þurfti ekki meira til og ég hef
haldið með liðinu síðan,“ sagði
Hermann, sem oft hefur þurft að
leggja stuðninginn við Manchester
United til hliðar undanfarinn ára-
tug því hann hefur margsinnis
spilað gegn uppáhaldsliðinu í úr-
valsdeildinni – síðast með
Portsmouth í haust. Hann telur að
trefillinn góði sé reyndar löngu
glataður.
Tvö langskemmti-
legustu liðin í dag
„Ef ég ætti að svara þessu sem
Manchester-maður myndi ég segja
að þeir væru of sterkir fyrir Ars-
enal. Það er hins vegar dálítil ósk-
hyggja því lið Arsenal hefur leikið
frábærlega og sýnt mikinn stöð-
ugleika það sem af er tímabilinu.
Það hafa verið endalausar vanga-
veltur um hvort Arsenal geti hald-
ið svona áfram út tímabilið, þegar
vellirnir fara að versna, en þeir
eru einfaldlega búnir að sýna að
þeir eru alveg nógu góðir. Með
þessu áframhaldi vinna þeir deild-
ina, en það sama má að sjálfsögðu
segja um Manchester United sem
hefur haldið sínu striki frá því í
fyrra, sérstaklega síðustu vikurnar
þar sem liðið hefur raðað inn
mörkum, og getur á sama hátt
hæglega unnið deildina aftur.
Arsenal og Manchester United
eru einfaldlega tvö sterkustu og
langskemmtilegustu liðin í deild-
inni. Chelsea er vissulega það lið
sem helst getur ógnað þeim og er
afar traust og þétt lið, en spilar
ekki nærri því eins góðan fótbolta
og hin tvö,“ sagði Hermann.
Manchester sama vélin
og undanfarin ár
Portsmouth lék gegn Manchest-
er United á Fratton Park í annarri
umferð deildarinnar, hinn 15.
ágúst, og sá leikur endaði 1:1.
Hermann var þar í byrjunarliði
Portsmouth eins og í öllum hinum
deildaleikjum tímabilsins fram að
deginum í dag.
„Manchester er sama vélin og
mörg undanfarin ár en við veittum
þeim mjög harða keppni í þessum
leik, sem gat endað á hvorn veginn
sem var.“
Rúmum hálfum mánuði síðar
var Hermann í liði Portsmouth
sem beið lægri hlut fyrir Arsenal á
Emirates, 3:1.
Unun að horfa á Arsenal
„Við áttum alveg möguleika á
móti þeim en létum þá ekki hafa
nógu mikið fyrir sigrinum því
mörkin voru ódýr. Þeir skoruðu
eftir hornspyrnu og aukaspyrnu,
en auðvitað voru þeir mjög góðir í
leiknum. Við gerðum þeim full-
auðvelt fyrir. Arsenal hefur bætt
sig talsvert síðan í fyrra, án þess
að eyða miklum peningum. Arsene
Wenger virðist alltaf geta fundið
unga og ferska stráka í sitt lið og í
vetur er búin að vera hrein unun
að horfa á þá spila sinn stór-
skemmtilega fótbolta.“
Hermann kvaðst fyrst og fremst
vonast eftir skemmtilegum leik
tveggja hörkuliða á Emirates í
dag. „Já, ef hann verður eins og
Liverpool gegn Arsenal á Anfield
um daginn, þá verður þetta í góðu
lagi. Það var frábær leikur og mik-
ill hraði. Arsenal var yfirburðalið í
þeim leik, lenti undir en leikmenn
liðsins sýndu og sönnuðu hvað þeir
geta á útivelli á móti Liverpool – á
Anfield. Þeir tóku leikinn gjörsam-
lega í sínar hendur,“ sagði Her-
mann Hreiðarsson.
Reuters
Á siglingu Aleksandr Hleb, Hvít-Rússinn í herbúðum Arsenal, hefur farið á kostum með liðinu í vetur og skorað
meira en áður. Þessi fjölhæfi leikmaður verður í sviðsljósinu gegn Manchester United í dag.
TAK
ches
vals
ellef
skor
í En
mað
hjá M
Mar
spyr
mar
B
grei
G
SNÆFELL innbyrti í gærkvöld ann-
an sigur sinn í röð í úrvalsdeildinni í
körfuknattleik með því að leggja
Hamar að velli í Hveragerði, 77:70.
Hólmarar töpuðu þremur fyrstu
leikjum sínum í deildinni en hafa nú
náð að rétta hlut sinn talsvert.
Þeir voru þó lengi vel í basli í
gærkvöld því Hamar var yfir lengi
vel, 44:37 í hálfleik og 62:58 eftir
þriðja leikhluta, en Snæfell sneri
leiknum loks sér í hag á lokasprett-
inum.
Justin Shouse var mjög atkvæða-
mikill í liði Snæfells en hann skoraði
26 stig og átti sjö stoðsendingar.
Sigurður Á. Þorvaldsson skoraði 16
stig og tók átta fráköst og Hlynur
Bæringsson skoraði 11 stig og tók
níu fráköst.
Friðrik Hreinsson skoraði 21 stig
fyrir Hamar og hitti úr fimm af níu
þriggja stiga skotum sínum í leikn-
um. George Byrd skoraði 16 stig og
tók 12 fráköst og Marvin Valdimars-
son skoraði 11 stig fyrir Hamars-
menn sem þar með sitja við botninn
með einn sigur í fyrstu fimm leikj-
um sínum.
Snæfell náði
að sigra í
Hveragerði
„Wenger finnur alltaf
unga og ferska stráka“
HERMANN Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth og íslenska landsliðsins í
knattspyrnu, vonast eftir því að Manchester United nái að sigra Arsenal á
Emirates-leikvanginum í London í dag. Sú von Hermanns á sér 27 ára
gamla sögu en hann sagði við Morgunblaðið að búast mætti við stór-
skemmtilegri viðureign tveggja bestu liða ensku úrvalsdeildarinnar þar
sem nánast væri ógjörlegt að spá um úrslitin.
Hermann Hreiðarsson býst við stórskemmtilegum leik Arsenal og Man.Utd á
Emirates Fékk United-trefil sex ára gamall og hefur haldið með liðinu síðan
Hermann Hreiðarsson
Tve
STJARNAN tapaði fyrir sænsku
meisturunum Falkenberg, 3:0, á
Norðurlandamóti karla í blaki í Sví-
þjóð í gærkvöld. Hrinurnar enduðu
25:20, 25:23 og 25:18. Dönsku meist-
ararnir í Middelfart unnu öruggan
sigur á Oslo Volley, 3:0, í sama riðli
en þar enduðu hrinurnar 25:18,
25:22 og 25:17. Stjarnan leikur við
Middelfart í dag og við Oslo Volley á
morgun en tvö efstu liðin í riðlinum
komast í fjögurra liða úrslit mótsins
sem leikin verða síðar í vetur. Mótið
var í fyrsta skipti haldið í fyrra og ís-
lenskt lið er nú með í fyrsta sinn.
Svíarnir unnu
Stjörnuna