Morgunblaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.11.2007, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 3. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ úrslit KÖRFUKNATTLEIKUR Hamar – Snæfell 70:77 Hveragerði, Iceland Express-deild karla, föstudagur 2. nóvember 2007. Gangur leiksins: 18:17, 44:37, 62:58, 70:77. Stig Hamars: Friðrik Hreinsson 21, George Byrd 16, Marvin Valdimarsson 11, Viðar Hafsteinsson 8, Raed Mostafa 8, Lár- us Jónsson 4, Bojan Bojovic 2. Fráköst: 11 í sókn, 18 í vörn. Stig Snæfells: Justin Shouse 26, Sigurður Á. Þorvaldsson 16, Hlynur Bæringsson 11, Árni Ásgeirsson 9, Slobodan Subasic 8, Jón Ólafur Jónsson 5, Anders Katholm 2. Fráköst: 10 í sókn, 27 í vörn. Villur: Hamar 16 – Snæfell 14. Dómarar: Björgvin Rúnarsson og Björn Leósson. Staðan: Keflavík 5 5 0 495:406 10 Grindavík 5 4 1 446:426 8 KR 5 4 1 467:432 8 Njarðvík 5 3 2 412:373 6 Tindastóll 5 3 2 429:440 6 Snæfell 5 2 3 431:438 4 ÍR 5 2 3 402:428 4 Stjarnan 5 2 3 417:428 4 Skallagrímur 5 2 3 399:402 4 Hamar 5 1 4 360:380 2 Þór A. 5 1 4 414:470 2 Fjölnir 5 1 4 381:430 2 1. deild karla Valur – KFÍ........................................... 87:94 Breiðablik – Ármann/Þróttur ............. 85:75 Þróttur Vogum – FSu .......................... 75:85 Staðan: Breiðablik 4 4 0 375:310 8 FSu 4 4 0 339:286 8 Valur 4 3 1 325:314 6 Ármann/Þrótt. 5 2 3 393:417 4 KFÍ 4 2 2 331:322 4 Höttur 4 2 2 337:320 4 Reynir S 3 1 2 257:287 2 Haukar 3 1 2 221:251 2 Þór Þorl. 3 0 3 205:228 0 Þróttur V. 4 0 4 279:327 0 NBA-deildin Leikir í fyrrinótt: Miami – Detroit .....................................80:91 Utah – Houston ...................................95:106 Seattle – Phoenix................................ 99:106 HANDKNATTLEIKUR Eimskips-bikar karla, 16 liða úrslit: Afturelding 2 – Fram 2 ........................ 33:31 KNATTSPYRNA England 2. deild: Swansea – Gillingham.............................. 1:1 Þýskaland Energie Cottbus – Schalke..................... 1:0 Christian Bassila 46. Holland Willem II – Venlo ..................................... 1:2 um helgina HANDKNATTLEIKUR Laugardagur: N1 deild kvenna: Kaplakriki: FH – Fram .............................16 Fylkishöll: Fylkir – Akureyri...............16.15 Evrópukeppni kvenna Vodafonehöllin: Valur – N. Krusevac.......17 Sunnudagur: Eimskipsbikarkeppni karla, 16 liða úrslit: Víkin: Víkingur 2 – Þróttur V....................18 Mýrin: Stjarnan – HK................................17 Austurberg: ÍR – Akureyri .......................17 Framhús: Fram – Afturelding..................17 Ásvellir: Haukar 2 – Valur.........................15 Evrópukeppni kvenna Vodafonehöllin: Valur – N. Krusevac..18.30 KÖRFUKNATTLEIKUR Laugardagur: Iceland Express-deild kvenna: Hveragerði: Hamar – Fjölnir....................16 DHL-höllin: KR – Valur ............................16 1. deild karla: Egilsstaðir: Höttur – KFÍ ....................15.30 Sandgerði: Reynir S. – Haukar.................17 Sunnudagur: Iceland Express-deild kvenna: Ásvellir: Haukar – Keflavík..................19.15 BLAK Laugardagur: 1. deild kvenna: Kennaraháskólinn: Þróttur R. – HK........14 Neskaupst.: Þróttur N – Fylkir ................18 Sunnudagur: 1. deild karla: Digranes: HK – Þróttur R.........................13 1.deild kvenna: Neskaups.: Þróttur N. – Fylkir ................12 félagslíf Herrakvöld Fram Framarar verða með hið árlega herrakvöld sitt föstudaginn 9. nóvember kl. 20. Rögn- valdur gáfaði flytur gamanmál og Sigurður Tómasson er veislustjóri. íþróttir GIL al, 3 Arse velli arke liðsi léku stór Lan mað cott B U Eftir Víði Sigurðsson vs@mbl.is „Málið er að ég hef haldið með Manchester United frá sex ára aldri. Þá gaf frændi minn mér Manchester-trefil, og í staðinn varð ég að halda með United. Það þurfti ekki meira til og ég hef haldið með liðinu síðan,“ sagði Hermann, sem oft hefur þurft að leggja stuðninginn við Manchester United til hliðar undanfarinn ára- tug því hann hefur margsinnis spilað gegn uppáhaldsliðinu í úr- valsdeildinni – síðast með Portsmouth í haust. Hann telur að trefillinn góði sé reyndar löngu glataður. Tvö langskemmti- legustu liðin í dag „Ef ég ætti að svara þessu sem Manchester-maður myndi ég segja að þeir væru of sterkir fyrir Ars- enal. Það er hins vegar dálítil ósk- hyggja því lið Arsenal hefur leikið frábærlega og sýnt mikinn stöð- ugleika það sem af er tímabilinu. Það hafa verið endalausar vanga- veltur um hvort Arsenal geti hald- ið svona áfram út tímabilið, þegar vellirnir fara að versna, en þeir eru einfaldlega búnir að sýna að þeir eru alveg nógu góðir. Með þessu áframhaldi vinna þeir deild- ina, en það sama má að sjálfsögðu segja um Manchester United sem hefur haldið sínu striki frá því í fyrra, sérstaklega síðustu vikurnar þar sem liðið hefur raðað inn mörkum, og getur á sama hátt hæglega unnið deildina aftur. Arsenal og Manchester United eru einfaldlega tvö sterkustu og langskemmtilegustu liðin í deild- inni. Chelsea er vissulega það lið sem helst getur ógnað þeim og er afar traust og þétt lið, en spilar ekki nærri því eins góðan fótbolta og hin tvö,“ sagði Hermann. Manchester sama vélin og undanfarin ár Portsmouth lék gegn Manchest- er United á Fratton Park í annarri umferð deildarinnar, hinn 15. ágúst, og sá leikur endaði 1:1. Hermann var þar í byrjunarliði Portsmouth eins og í öllum hinum deildaleikjum tímabilsins fram að deginum í dag. „Manchester er sama vélin og mörg undanfarin ár en við veittum þeim mjög harða keppni í þessum leik, sem gat endað á hvorn veginn sem var.“ Rúmum hálfum mánuði síðar var Hermann í liði Portsmouth sem beið lægri hlut fyrir Arsenal á Emirates, 3:1. Unun að horfa á Arsenal „Við áttum alveg möguleika á móti þeim en létum þá ekki hafa nógu mikið fyrir sigrinum því mörkin voru ódýr. Þeir skoruðu eftir hornspyrnu og aukaspyrnu, en auðvitað voru þeir mjög góðir í leiknum. Við gerðum þeim full- auðvelt fyrir. Arsenal hefur bætt sig talsvert síðan í fyrra, án þess að eyða miklum peningum. Arsene Wenger virðist alltaf geta fundið unga og ferska stráka í sitt lið og í vetur er búin að vera hrein unun að horfa á þá spila sinn stór- skemmtilega fótbolta.“ Hermann kvaðst fyrst og fremst vonast eftir skemmtilegum leik tveggja hörkuliða á Emirates í dag. „Já, ef hann verður eins og Liverpool gegn Arsenal á Anfield um daginn, þá verður þetta í góðu lagi. Það var frábær leikur og mik- ill hraði. Arsenal var yfirburðalið í þeim leik, lenti undir en leikmenn liðsins sýndu og sönnuðu hvað þeir geta á útivelli á móti Liverpool – á Anfield. Þeir tóku leikinn gjörsam- lega í sínar hendur,“ sagði Her- mann Hreiðarsson. Reuters Á siglingu Aleksandr Hleb, Hvít-Rússinn í herbúðum Arsenal, hefur farið á kostum með liðinu í vetur og skorað meira en áður. Þessi fjölhæfi leikmaður verður í sviðsljósinu gegn Manchester United í dag. TAK ches vals ellef skor í En mað hjá M Mar spyr mar B grei G SNÆFELL innbyrti í gærkvöld ann- an sigur sinn í röð í úrvalsdeildinni í körfuknattleik með því að leggja Hamar að velli í Hveragerði, 77:70. Hólmarar töpuðu þremur fyrstu leikjum sínum í deildinni en hafa nú náð að rétta hlut sinn talsvert. Þeir voru þó lengi vel í basli í gærkvöld því Hamar var yfir lengi vel, 44:37 í hálfleik og 62:58 eftir þriðja leikhluta, en Snæfell sneri leiknum loks sér í hag á lokasprett- inum. Justin Shouse var mjög atkvæða- mikill í liði Snæfells en hann skoraði 26 stig og átti sjö stoðsendingar. Sigurður Á. Þorvaldsson skoraði 16 stig og tók átta fráköst og Hlynur Bæringsson skoraði 11 stig og tók níu fráköst. Friðrik Hreinsson skoraði 21 stig fyrir Hamar og hitti úr fimm af níu þriggja stiga skotum sínum í leikn- um. George Byrd skoraði 16 stig og tók 12 fráköst og Marvin Valdimars- son skoraði 11 stig fyrir Hamars- menn sem þar með sitja við botninn með einn sigur í fyrstu fimm leikj- um sínum. Snæfell náði að sigra í Hveragerði „Wenger finnur alltaf unga og ferska stráka“ HERMANN Hreiðarsson, leikmaður Portsmouth og íslenska landsliðsins í knattspyrnu, vonast eftir því að Manchester United nái að sigra Arsenal á Emirates-leikvanginum í London í dag. Sú von Hermanns á sér 27 ára gamla sögu en hann sagði við Morgunblaðið að búast mætti við stór- skemmtilegri viðureign tveggja bestu liða ensku úrvalsdeildarinnar þar sem nánast væri ógjörlegt að spá um úrslitin.  Hermann Hreiðarsson býst við stórskemmtilegum leik Arsenal og Man.Utd á Emirates  Fékk United-trefil sex ára gamall og hefur haldið með liðinu síðan Hermann Hreiðarsson Tve STJARNAN tapaði fyrir sænsku meisturunum Falkenberg, 3:0, á Norðurlandamóti karla í blaki í Sví- þjóð í gærkvöld. Hrinurnar enduðu 25:20, 25:23 og 25:18. Dönsku meist- ararnir í Middelfart unnu öruggan sigur á Oslo Volley, 3:0, í sama riðli en þar enduðu hrinurnar 25:18, 25:22 og 25:17. Stjarnan leikur við Middelfart í dag og við Oslo Volley á morgun en tvö efstu liðin í riðlinum komast í fjögurra liða úrslit mótsins sem leikin verða síðar í vetur. Mótið var í fyrsta skipti haldið í fyrra og ís- lenskt lið er nú með í fyrsta sinn. Svíarnir unnu Stjörnuna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.