Morgunblaðið - 03.12.2007, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 3
W W W. I C E L A N DA I R . I S
49.300 KR.
Verð á mann
í tvíbýli frá
+ Nánari upplýsingar:
www.icelandair.is/ithrottaferdir
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
93
26
12
/0
7
Icelandair er
samstarfsaðili
West Ham og
býður ferðir á
alla heimaleiki
liðsins í vetur.
Fjölmargir
leikir framundan,
s.s. á móti
Blackburn,
Portsmouth og
Derby.
29. FEB.
–2. MARS
C
H
E
LS
E
A
stöðu. Þær slá flestar „flata“ bolta á
mig og ég kann vel við það og get því
smassað og komið þeim á óvart.“
Það eru ekki margir íslenskir
íþróttamenn eða -konur í einstak-
lingsíþróttum sem eru í sviðsljósinu
allt árið um kring í alþjóðlegum
keppnum. Ragna og kylfingurinn
Birgir Leifur Hafþórsson eru mest
áberandi þessa stundina en Ragna
segir að hún finni ekki fyrir neinni ut-
anaðkomandi pressu.
„Badminton hefur á undanförnum
árum ekki verið mikið í fréttum. Fjöl-
miðlar sýna okkur áhuga á Íslands-
mótinu og fyrir utan það hefur lítið
verið um áreiti. Það er fyrst núna á
undanförnum mánuðum sem mér
finnst áhuginn vera að vakna og það
er bara fínt. Mér finnst allir vera já-
kvæðir og í raun geri ég mestu kröf-
urnar um árangur. Aðrir sem fylgjast
með mér eru bara ánægðir með allt
sem ég geri –þrátt fyrir að ég hafi
ekkert getað í síðasta móti. Ég finn
því ekki fyrir neinni pressu,“ sagði
Ragna Ingólfsdóttir.
Morgunblaðið/Golli
Einbeitt Ragna Ingólfsdóttir er staðráðin í að komast á Ólympíuleikana í Peking á næsta ári.
ÞAÐ fylgir því mikill kostnaður þeg-
ar tekin er ákvörðun um að komast í
fremstu röð í einstaklingsíþrótt og
Ragna Ingólfsdóttir hefur á und-
anförnum árum kynnst því að það
gengur ekki vel að ná endum saman.
„Ég væri ekki að æfa og keppa eins
og ég geri í dag án aðstoðar einkafyr-
irtækja. Úthlutunarreglur afreks-
sjóðs Íþrótta- og ólympíusambands
Íslands eru með þeim hætti að ég er
á C-styrk. Samkvæmt þeirra reglum
þarf ég að vera í einu af 10 efstu sæt-
um heimslistans til þess að fá A-
styrk og í 11.-40. sæti til þess að fá B-
styrk. Þetta eru reglurnar en sem
betur fer eru fyrirtæki og ein-
staklingar sem styðja við bakið á
mér. Það má ekki gleyma því að hjá
ÍSÍ fæ ég aðgang að ýmsum sérfræð-
ingum án þess að greiða fyrir það og
munar mestu um sjúkraþjálfun, nær-
ingarfræðinga og sálfræðinga.“
Ragna fær um 60.000 kr. á mánuði
frá Ólympíusamhjálpinni, og um
40.000 kr. frá Afrekssjóði ÍSÍ. Hún
fær 80.000 kr. á mánuði í afreksstyrk
frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur.
„Badmintonsambandið og TBR hafa
stutt vel við bakið á mér. Ása Páls-
dóttir og Anna Lilja Sigurðardóttir
hjá BSÍ eru með puttann á púlsinum
hjá mér og aðstoða mig við ýmislegt
sem tengist ferðalögunum. Að öðru
leyti sé ég um allt sjálf. Ég fékk á
dögunum óvæntan glaðning frá
„Trukkunum“ sem er félagsskapur
hjá TBR. Þau styrktu mig um
250.000 kr. og ég var ótrúlega glöð að
þau skyldu styrkja mig með þessum
hætti. Það eru fáir sem átta sig á því
hve dýrt þetta íþróttabrölt er.
SPRON er minn stærsti bakhjarl og
án þeirra stuðnings væri þetta ekki
hægt. Ég fæ mánaðarlega greiðslu
frá þeim og samningurinn gildir til
ársloka 2008,“ segir Ragna.
Fær 40.000 á
mánuði frá
afrekssjóði
rúmlega 2 tíma í einu. Ég var ekki
með nein lóð eða þyngingar á fæt-
inum fyrstu 8 vikurnar en smátt og
smátt fór ég að auka álagið. Ég hef
alltaf hugsað um þessi meiðsli sem
„hindrun“ sem varð á vegi mínum í
átt að Ólympíuleikunum og ég fann
einu lausnina sem var í boði til að
komast yfir þessa hindrun.
Það er danskur sjúkraþjálfari sem
starfar hér á landi sem hefur sett
upp æfingaplan fyrir mig og hann
hefur svo sannarlega gert sitt gagn.
Ég fór í ýmsar mælingar þar sem
vöðvastyrkurinn var mældur og frá
þeim tíma hef ég farið reglulega í
slíkar mælingar.“
Ragna hefur leikið með spelku á
hnénu frá því hún sleit krossbandið.
„Fyrsta spelkan var risastór og mér
fannst ég vera að dröslast með mörg
kíló. Þetta vandist smátt og smátt en
í dag er ég með mun léttari spelku
sem ég finn minna fyrir. Þessi hjálp-
artæki eru nauðsynleg en ég hef
fengið fína aðstoð hjá Össuri.“
Ragna lék á HM landsliða um 2½
mánuði eftir að hún sleit kross-
bandið, í tvíliða- og tvenndarleik.
„Ég var mjög hæg í því móti og ég
gerði mér alveg grein fyrir því að
þetta tæki tíma. Í júlí fór ég á tvö
mót og þar lagði ég að velli helstu
keppinauta mína og ég fann alveg að
þær voru að reyna að hreyfa mig
mikið á vellinum – þar sem þær
vissu af meiðslunum hjá mér. Ég tók
enga sénsa og ef ég fann að ég
myndi ekki ná einhverjum bolta þá
sleppti ég því bara,“ segir Ragna.
ÞAÐ getur verið erfitt fyrir íþróttakonu í fremstu
röð á heimsvísu að fá ögrandi verkefni til að glíma
við frá degi til dags í litlu þjóðfélagi á borð við Ís-
land. Ragna Ingólfsdóttir fann auðvelda leið til þess
að fá meiri hraða og áreiti í æfingar sínar í einliða-
leik í badminton. Hún spilar einfaldlega við bestu
strákana og hefur oftar en ekki betur. „Ég tel mig fá
meira út úr því að keppa við strákana. Þeir eru með
öðruvísi leikstíl, smassa oftar og eru hraðari í leik
sínum. Það sem einkennir kvennaleiki eru fleiri lang-
ir boltar og hæg dropp rétt yfir netið og mitt spil er
vissulega aðeins „strákalegra“ miðað við það sem
gengur og gerist hjá stelpum.
Vissulega spila ég við stelpur hér á Íslandi á æfing-
um og þá eru þær oftast tvær á móti mér einni. Það
er líka fín æfing.“ Ragna hefur lagt flesta karlfélaga
sína úr TBR á æfingum en það er ein hindrun sem
hún á eftir að yfirstíga. „Ég á eftir að vinna Helga
Jóhannesson. Hann hefur enn yfirhöndina en ég á
eftir að vinna hann,“ segir Ragna ákveðin og hún
viðurkennir það fúslega að það fari nett í taugarnar
á henni að ná ekki að vinna Helga. „Við vorum í
keppni í gær þar sem hann hafði betur, 21:17 og
21:13. Og ég var ekki sátt.“
Það vildi svo vel til að Helgi var staddur í TBR-
húsinu þegar viðtalið var tekið og þegar hann var
spurður að því hvort hann ætlaði sér að halda áfram
að sigra Rögnu brosti hann og sagði:
„Þegar ég finn að ég hef ekkert í hana þá mun ég
gera mér upp meiðsli og hætta í badminton,“ en
Helgi hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari í einliða-
leik.
Vinnur bestu strákana
ALÞJÓÐABADMINTONSAM-
BANDIÐ uppfærir heimslistann á
fimmtudögum allt árið og er
Ragna Ingólfsdóttir í 55. sæti á
listanum sem uppfærður var í síð-
ustu viku. Íslandsmeistarinn hef-
ur fallið um eitt sæti síðan í síð-
ustu viku en hún er í 19. sæti ef
aðeins er tekið mið af kepp-
endum frá Evrópu.
Fyrr á þessu ári náði Ragna 37.
sæti heimslistans og 14. sæti á
lista yfir leikmenn frá Evrópu en
það er besti árangur hennar á
þessu ári. Fram til 1. maí á næsta
ári mun Ragna reyna að safna
eins mörgum stigum og hún get-
ur með því að taka þátt í alþjóð-
legum mótum en á heimasíðu BSÍ
er greint frá því að hún þurfi lík-
lega að vera í 50.-60. sæti heims-
listans þann 1. maí til að vinna
sér þátttökurétt á Ólympíu-
leikunum í Peking. Aðeins 10
bestu mótin hjá Rögnu á tíma-
bilinu 1. maí 2007-1. maí 2008
telja þegar heimslistinn verður
gerður upp 1. maí 2008.
Heimslistinn
ræður miklu