Morgunblaðið - 03.12.2007, Síða 8

Morgunblaðið - 03.12.2007, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 3. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ íþróttir Eftir Sigurð Víðisson HK vann afar auðveldan sigur á ÍBV, 36:22, þegar liðin mættust í úrvalsdeild karla í handknattleik í Digranesi í gær. HK er þar með komið með 17 stig og er í öðru sæti deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði Hauka, en á leik til góða á Hafnfirðingana. Eyja- menn sitja sem fyrr á botni deild- arinnar með aðeins tvö stig. Jafnræði var með liðunum til að byrja með en HK náði fljótlega undirtökunum, komst í 7:3 og síð- an 13:7, og þar með var mót- spyrna Eyja- manna brotin á bak aftur. Staðan var 19:10 í hálfleik og munurinn jókst jafnt og þétt í seinni hálfleiknum og varð mestur 16 mörk skömmu fyrir leikslok. Eins og tölurnar gefa til kynna og búast mátti við var mikill munur á liðunum á flestum svið- um handboltans. HK-ingar notuðu allan sinn hóp vel í leiknum og lykilmenn eins og Augustas Strazdas voru mikið utan vallar. Ragnar Hjaltested var í aðal- hlutverki hjá Kópavogsliðinu og skoraði 10 mörk á fjölbreyttan hátt. Nýja rússneska skyttan í liði Eyjamanna, Sergei Trotsenko, er greinilega góður liðsauki fyrir þá. Trotsenko var allt í öllu í sóknarleik ÍBV og skoraði 12 af 22 mörkum liðsins í leiknum. Markvörðurinn Kolbeinn Aron Ingibjargarson stóð sig líka með prýði og varði vel allan tímann. HK lagði Eyjamenn auðveldlega Ragnar Hjaltested SNORRI Steinn Guðjónsson lék í 20 mínútur með heimsúrvali hand- knattleiksmanna í gær þegar það mætti landsliði Egyptalands í Kaíró í tilefni af 50 ára afmæli handknatt- leikssambands Egyptalands. Snorri skoraði tvö mörk í jafnmörgum skot- tilraunum en leikurinn þótti ágæt skemmtun þótt e.t.v. tækju menn hann ekki mjög alvarlega þar sem um sýningarleik var að ræða. Heimsliðið vann með einu marki, 40:39. Ólafur Stefánsson meiddist á dögunum og gat ekki leikið með heimsúrvalinu en hann hafði verið valinn til þátttöku. Á laugardaginn var Snorri Steinn í aðalhlutverki hjá GOG þegar liðið lagði Bjerr- ingbro/Silkeborg, 31:27, í undanúr- slitum dönsku bikarkeppninnar. Snorri skoraði tvö mörk fyrir GOG en Ásgeir Örn Hallgrímsson var markahæstur með sjö mörk. Klukkan þrjú aðfara- nótt sunnudagsins hélt Snorri síðan til Kaíró frá Kaupmannahöfn. Snorri lék með í Kaíró Snorri Steinn Guðjónsson Magnús Þormar, knatt-spyrnumarkvörður úr Kefla- vík, gekk um helgina til liðs við Grindavík, nýliðana í úrvalsdeild- inni. Magnús er 23 ára og á 9 deilda- leiki að baki með Keflavík en hann lék með Stjörnunni í ár og spilaði 15 leiki með Garðabæjarliðinu í 1. deild.    Þá samdi Scott Ramsay að nýjuvið Grindavík, til fjögurra ára, en hann átti frábært tímabil með lið- inu í 1. deildinni í ár. Ennfremur samdi Jóhann Helgason við Grindavík til þriggja ára. Hann fór frá Grindvíkingum til Vals fyrir síðasta tímabil en var síð- an lánaður aftur til þeirra og lék með þeim allt sumarið.    Björgvin Björgvinsson varð í 17.sæti af 108 keppendum á svig- móti Evrópubikarsins í Are í Sví- þjóð á laugardaginn. Aflýsa þurfti síðari ferðinni vegna veðurs. Í gær var keppt á ný í Are en þá féll Björg- vin í fyrri ferðinni og var þar með úr leik. Björgvin er á leið til Geilo í Noregi þar sem hann keppir í stór- svigi í Evrópubikarnum í vikunni.    Logi Gunnarsson skoraði 9 stigog lék í 17 mínútur þegar Gijon sigraði Cornella, 82:62, í spænsku 2. deildinni í körfuknattleik á laug- ardaginn. Gijon er í toppbaráttunni og hefur unnið níu af fyrstu ellefu leikjum sínum.    Hollenski knattspyrnumaðurinnDion Esajas sem er til reynslu hjá Fylki lék með Árbæingum á laugardag þegar þeir biðu lægri hlut fyrir HK, 1:2, í æfingaleik í Kórnum í Kópavogi. Esajas, sem er fram- herji, náði ekki að skora. Halldór Hilmisson kom Fylki yfir en Her- mann Geir Þórsson og Almir Cosic svöruðu fyrir HK. Esajas leikur aft- ur með Fylki í kvöld, gegn ÍR.    Hannes Jón Jónsson skoraði tvömörk fyrir Fredericia HK og Gísli Kristjánsson eitt þegar lið þeirra tapaði fyrir Kolding, 26:24, í slag nágrannalið- anna í undan- úrslitum dönsku bikarkeppninnar í handknattleik á laugardag en leikið var í Fre- dericia á Jót- landi. Fannar Þorbjörnsson lék einnig með Fredericia HK. Hann skoraði ekki en stóð sig afar vel í vörninni að vanda eins og Gísli gerði reyndar einnig.    Hreiðar Guðmundsson þóttileika vel í marki Sävehof þeg- ar það vann Ystad, 35:24, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gær. Fólk sport@mbl.is Leikurinn var í járnum nær allan leik- tímann, ef undan eru skildar um tíu mínútur upp úr miðjum fyrri hálfleik þegar Haukar náðu þriggja marka forskoti. Þá kom Fannar Friðgeirs- son sprækur til leiks og skoraði þrjú mikilvæg mörk á stuttum kafla og kom Valsmönnum inn í baráttuna á nýjan leik. Í síðari hálfleik munaði aldrei meira en einu marki en þrjár mínútur voru eftir er Valsmenn náðu tveggja marka forskoti, 21:19. Leik- menn Hauka reyndu hvað þeir gátu til að jafna en Ólafur reyndist þeim óþægur ljár í þúfu í marki Vals. Það var svo Ingvar Árnason sem skoraði 23. og sigurmark Vals 12 sekúndum fyrir leikslok þegar hann stakk sér á milli tveggja varnarmanna Hauka eftir sókn sem virtist vera renna út í sandinn. Annars var leikurinn afar skemmtilegur og spennandi allan tím- ann og ljóst að bæði lið ætluðu að selja sig dýrt til þess að komast í undan- úrslitin og þar af leiðandi einu skrefi nær úrslitaleik bikarkeppninnar í mars nk. Það var sigurreifur þjálfari Vals, Óskar Bjarni Óskarsson, sem stóð uppi sem sigurvegari og hann langar svo sannarlega í úrslitaleikinn enda brátt tíu ár síðan Valur varð síð- asta bikarmeistari. „Dauðlangar í Höllina“ „Mig dauðlangar í Höllina í úrslita- leikinn. Það verður erfitt og að sjálf- sögðu stefnum við þangað en það verður erfitt, sama hvaða liði við mæt- um í undanúrslitum,“ sagði Óskar en bætti því jafnframt við að enn væri langur vegur í úrslitaleikinn því eftir væri að leika til undanúrslita. „Það eru tíu ár síðan við vorum þar síðast. En við verðum að gera okkur grein fyrir að við verðum að taka eitt skref í einu. En við ætlum okkur í Höllina,“ sagði Óskar. „Þetta var baráttuleikur eins og viðureignir þessa liða hafa verið í deildinni í vetur. Ég er því afar stoltur yfir að hafa náð að vinna að þessu sinni og leggja það lið að velli sem sit- ur afar sanngjarnt í efsta sæti úrvals- deildarinnar. Það er erfitt að eiga við Haukaliðið sem leikur afar skynsam- lega og gerir fá mistök og hleypur vel aftur í vörnina. Þar af leiðir að við fengum við fá hraðaupphlaup. Þessi sigur okkar sýnir ákveðinn styrkleika í okkar röðum og ég viss um að lið mitt er á réttri leið um þessar mund- ir,“ sagði Óskar Bjarni. Fórum illa með opin færi „Þetta var fyrst og fremst hörku- leikur tveggja góðra liða sem börðust hart fyrir sínu. Varnarleikurinn og markvarslan var í aðalhlutverki eins og sést á að aðeins voru skoruð 45 mörk í leiknum. En við féllum fyrst og fremst á því að við létum Ólaf mark- vörð verja alltof mikið frá okkur úr opnum færum,“ sagði Aron Krist- jánsson þjálfari Hauka í leikslok. „Við létum verja alltof mikið frá okkur úr opnum færum. Í stöðunni 18:18 fóru þrjú opin færi hjá okkur forgörðum og slíkt er mjög dýrt í jöfn- um leik. Á þessu atriði töpuðum við í jöfnum hörkuleik,“ sagði Aron og við- urkenndi að það væri gremjulegt að falla úr bikarkeppninni. „Við ætluð- um okkur í Höllina en því miður tókst það ekki. Nú er bara næsta mál og það er að vinna þá titla sem við getum krækt í héðan af,“ sagði Aron Krist- jánsson, þjálfari Hauka, er hann gekk til búningsklefa í leikslok. Úrslitin voru ráðin í hálfleik Úrvalsdeildarlið Akureyar átti ekki í vandræðum með að leggja Aftureld- ingu 2 (Jumboys) í hinni viðureign átta liða úrslita bikarkeppninnar þeg- ar liðin mættust í gamla íþróttasaln- um að Varmá. Lokatölur 39:20, fyrir Akureyri sem var 16 mörkum yfir í hálfleik, 20:4. Leikmenn Akureyrar sýndu Mosfellingum enga miskunn og notuðu hvert tækifæri til þess að fara upp í hraðauppahlaup og nýta sér veikleika í sókn Aftureldingar- liðsins sem komið hefur á óvart með tveimur sigrum í keppninni á fyrri stigum, m.a. sló liðið út úrvalsdeild- arlið ÍBV. Morgunblaðið/Kristinn Barátta Andri Stefan, leikmaður Hauka, komst lítt áleiðis gegn Erni Hrafni Arnarsyni og Fannari Friðgeirssyni, leikmönnum Vals, sem gáfu ekkert eftir í vörninni enda fór svo að Valsmenn fögnuðu sigri og sæti í undanúrslitum bikarkeppninnar ásamt Akureyri. Í kvöld kemur í ljós hvaða lið fylgja Val og Akureyri eftir þegar Fram mætir Stjörnunni í íþróttahúsi Fram og Þróttur úr Vogum leikur við Víkinga í íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði. Stórleikur Ólafs Hauks fleytti Valsmönnum áfram MARKVÖRÐURINN Ólafur Hauk- ur Gíslason átti einn stærsta þátt- inn í að tryggja Val sæti í undan- úrslitum bikarkeppni HSÍ, Eimskipsbikarnum, með sigri á Haukum, 23:22, í sannkölluðum bik- arleik í íþróttahúsi Vals síðdegis í gær þar sem Íslandsmeistararnir mættu efsta liði úrvalsdeildar karla. Ólafur varði 21 skot og hélt sínum mönnum svo sannarlega á floti því ekki var sóknarleikur Vals- manna upp á marga fiska lengst af. Valsmenn voru marki yfir í hálf- leik, 12:11. Eftir Ívar Benediktsson iben@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.