Morgunblaðið - 28.12.2007, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 39
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnu-
stofa opin 9-16.30, jóga kl. 9, versl-
unarferð í Bónus kl. 10, hádegismatur kl.
12, kaffi kl. 15 og söngstund við píanóið
kl. 15.30. Vinnustofa, leikfimi, bingó,
söngstund við píanóið.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun,
morgunkaffi/dagblöð, hádegisverður, al-
menn handavinna, kaffi. Námskeið fé-
lagsstarfsins hefjast mánudaginn 7. jan.
Ný námskeið í glerlist verða fyrir og eft-
ir hádegið á miðvikud. Skráning í s. 535
2760. Jóga-leikfimistímar verða tvisvar
í viku á mánud. og fimmtud. kl. 9-9.45.
Félagsheimilið Gjábakki | Jóga kl.
10.50. Hádegisverður kl. 11.40. Fé-
lagsvist kl. 20.30. Lokað á gamlársdag
og nýarsdag. Starfsmenn Gjábakka óska
öllum gestum félagsstarfsins gleðilegs
árs með þökk fyrir liðin ár.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 14.15
koma Aðalheiður Þorsteinsdóttir og
Anna Sigga í heimsókn og syngja með
okkur fram að kaffi kl. 15. Allir velkomnir.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaað-
gerðir kl. 9.15-14.30 handavinna kl.
10.15-11.45, spænska, byrjendur kl. 11.45-
12.45, hádegisverður kl. 13.30-14.30,
sungið v/flygilinn kl. 14.30-15.45, kaffi-
veitingar kl. 14.30-16, dansað í aðalsal.
Kirkjustarf
Aðventkirkjan á Suðurnesjum | Blika-
braut 2, Reykjanesbæ. Björgvin Snorra-
son, prestur kirkjunnar, sér um biblíu-
rannsókn kl. 11 og prédikar í guðþjónustu
kl. 12.
Aðventkirkjan í Árnesi | Eyravegi 67,
Selfossi. Biblíurannsókn 29. des. kl. 11 og
guðþjónusta kl. 12. Styrmir Ólafsson
prédikar.
Aðventkirkjan í Reykjavík | Ingólfs-
stræti 19. Biblíurannsókn verður 29.
des. kl. 11. Boðið er upp á barna- og ung-
lingadagskrá. Þá er umræðuhópur á
ensku. Tónlistarguðþjónusta kl. 12, tón-
list, upplestur og hugvekja í umsjá Odd-
nýjar Þorsteinsdóttur.
Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum |
Brekastíg 17. Jóhann Ellert Jóhannsson
leiðir biblíurannsókn 29. des. kl. 10.30.
Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Loft-
salnum, Hólshrauni 3. Biblíurannsókn og
samkoma 29. des. kl. 11. Barna- og ung-
lingastarf. Prédikari verður Gavin Ant-
hony.
Áskirkja | Sóknarprestur Áskirkju verð-
ur með guðsþjónustu á Dalbraut 27, kl.
13 í dag. Furugerðiskórinn leiðir söng
undir stjórn Ingunnar Guðmundsdóttur,
sem jafnframt leikur á orgel. Djákni Ás-
kirkju verður með stólajóga og bæn á
Dalbraut 27, kl. 10.15 í dag.
Gullbrúðkaup | Í dag,
28. desember, eiga
hjónin Þórunn Rut
Þorsteinsdóttir og Er-
ling Jóhannsson, Brön-
dukvísl 13, Reykjavík,
50 ára brúðkaups-
afmæli. Þau halda upp
á daginn í faðmi fjöl-
skyldunnar.
Gullbrúðkaup | Í
dag, 28. desember,
eiga Þórður Magn-
ússon og Hrönn
Hannesdóttir 50
ára brúðkaups-
afmæli.
dagbók
Í dag er föstudagur 28. desember, 362. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. (I. Kor. 8, 2.)
Ídesember og janúar verða á höf-uðborgarsvæðinu opnaðar fjórarnýjar líkamsræktarstöðvarWorld Class. Hafdís Jónsdóttir
er ein af eigendum World Class: „Ís-
lendingar verða æ betur meðvitaðir um
nauðsyn þess að halda líkamanum í
góðu formi til að viðhalda góðri heilsu
og þreki fyrir störf og tómstundir.
Ánægjulegt er að sjá hver breiður ald-
urshópur notar þjónustu líkamsrækt-
arstöðva reglulega, og getur fólk á öll-
um aldri fundið hreyfingu við sitt
hæfi,“ segir Hafdís. „Nýju líkamsrækt-
arstöðvunum er ætlað að auðvelda við-
skiptavinum okkar að koma heilsu-
ræktinni inn í skipulag dagsins. Oft
getur verið vandasamt að finna tíma
fyrir heilsuna í daglegu amstri, og
skiptir þá máli að líkamsræktarstöðin
sé ekki úr leið, en með nýju stöðvunum
færum við okkur nær viðskiptavininum
og gerum holla hreyfingu aðgengilegri
fyrir alla íbúa höfuðborgarsvæðisins.“
Opnuð hefur verið stöð í Actavis-
húsinu í Dalshrauni 1 í Hafnarfirði,
með bættu aðgengi fyrir íbúa Hafn-
arfjarðar, Garðabæjar, Álftaness og
Voga: „Þann 15. desember opnuðum
við stöð í Íþróttamiðstöðinni við Lága-
fellslaug í Mosfellsbæ, og 29. desember
opnum við heilsuræktarstöð á Seltjarn-
arnesi, með aðgangi að sundlaug Sel-
tjarnarnesbæjar,“ segir Hafdís. „Loks
munum við opna aðstöðu á 15. hæð
Turnsins í Kópavogi 19. janúar, þar
sem njóta má útsýnis yfir allt höf-
uðborgarsvæðið.“
Allar eru nýju stöðvarnar útbúnar
vönduðum tækjabúnaði og margskonar
þjónusta verður þar í boði: „Á Seltjarn-
arnesi og í Mosfellsbæ er aðgangur að
sundlaug, og á Seltjarnarnesi verður
einnig starfrækt baðstofa með allskyns
heilsumeðferðum í formi sána- og gufu-
baða,“ segir Hafdís. „Einnig er boðið
upp á einkaþjálfun á öllum stöðvum
World Class, þar sem sérmenntaðir
þjálfarar bjóða sérsniðnar lausnir til að
ná heilsumarkmiðum hvers og eins.“
Í tilefni opnunar World Class á Sel-
tjarnarnesi verður opið hús í heilsu-
ræktarstöðinni á laugardag milli kl. 14
og 17. Starfsemi hefst í stöðinni á Sel-
tjarnarnesi þann 7. janúar.
Finna má nánari upplýsingar á
heimasíðu World Class, www.worldc-
lass.is.
Heilsurækt | World Class opnar fjórar nýjar líkamsræktarstöðvar
Heilsa í næsta nágrenni
Hafdís Jóns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1961.
Hún lauk kenn-
araprófi í sam-
kvæmisdansi frá
Dansráði Íslands
og BS-gráðu í
dansi frá Florida
School of the Arts
1981. Hafdís kenndi dans um langt
skeið og stofnaði Dansstúdíó Dísu
1981. Hún hefur um árabil starfrækt
heilsuræktarstöðvar World Class með
eiginmanni sínum, Birni Leifssyni,
frkv.stj. Eiga þau Björn tvö börn.
Tónlist
Fríkirkjan í Reykjavík | Jólaljós, tónleikar til
styrktar Fjölskylduhjálp Íslands kl. 20. Fjöldi
þekktra listamanna koma að tónleikunum
ásamt kirkjukór Lágafellssóknar í Mosafellsbæ.
Stjórnandi er Jónas Þórir. Aðgangseyrir er
2500 kr.
Þorlákskirkja | Menningarkvöldstund verður í
Þorlákskirkju föstudaginn 28. desember og
hefst kl. 20. Jónas Ingimundarson spilar
Beethovensónötur á flygilinn, Margrét Frí-
mannsdóttir flytur erindi og Söngfélag Þor-
lákshafnar syngur jólalög. Aðgangur ókeypis.
Skemmtanir
Harmonikkufélag Reykjavíkur | Harmonikku-
félag Reykjavíkur heldur dansleik í Húnabúð í
kvöld.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-samtakanna er
895 1050.
SERGEY Surovegin þjáist ekki af loft-
hræðslu ef marka má meðfylgjandi
mynd. Surovegin skellti sér í jóla-
sveinabúning og kom fjölskyldu sinni
á óvart með því að koma inn um
glugga á íbúð þeirra í fjölbýlishúsi í
borginni Krasnoyarsk í Síberíu nú um
jólin.
Gluggagægir í háloftunum
Reuters
FRÉTTIR
Norðurlandakeppni ungra sýnenda í hundarækt var haldin í
Stokkhólmi sunnudaginn 16. desember og hélt landslið Íslands til
Svíþjóðar laugardaginn 15. desember sl. á vegum Hundarækt-
arfélags Íslands.
Landslið Íslands skipuðu þær Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir,
Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir, Rakel Ósk Þrastardóttir og Þor-
björg Ásta Leifsdóttir. Liðsstjóri og þjálfari var Auður Sif Sig-
urgeirsdóttir.
Dómari Norðurlandakeppninnar var Tatjana Urek frá Slóveníu
og voru öll Norðurlöndin mætt til leiks með liðin sín sem hvert um
sig skipaði fjóra liðsmenn. Árangur liðsins var mjög góður og end-
aði það í 2. sæti í liðakeppninni og Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir
náði þeim frábæra árangri að verða í 3. sæti í einstaklings-
keppninni. Í 1. sæti í liðakeppninni var lið Danmerkur og í því
þriðja lið Svíþjóðar. Dönsk stúlka, Katrine Kryh, varð í 1. sæti í
einstaklingskeppninni og önnur dönsk stúlka, Mette Pålsson, í 2.
sæti, segir í fréttatilkynningu.
Hundarækt Guðrún Dögg Sveinbjörnsdóttir náði þeim frábæra
árangri að verða í 3. sæti í einstaklingskeppninni.
Norðurlandakeppni
ungra sýnenda
Í FRAMHALDI af vinnuferð
Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur utanríkisráðherra til
Ísraels, Palestínu og Jórdaníu í
júlí sl. var í utanríkisráðuneyt-
inu gerð starfsáætlun um Mið-
Austurlönd þar sem m.a. er
stefnt að því að auka mannúð-
ar- og neyðaraðstoð á herteknu
svæðunum. Á þessu ári fær
Barnahjálp Sameinuðu þjóð-
anna (UNICEF) í Palestínu
sérstakt framlag, um 6 milljón-
ir króna, auk þess sem starfs-
maður á vegum íslensku frið-
argæslunnar starfar á
skrifstofu UNICEF í Jerúsal-
em. Á næsta ári er stefnt að því
að auka fjárframlög til alþjóð-
legra stofnana, frjálsra félaga-
samtaka og palestínskra stjórn-
valda, auk þess sem til stendur
að fjölga íslenskum friðar-
gæsluliðum sem starfa hjá
stofnunum SÞ í Mið-Austur-
löndum.
Börn á hernumdu svæðunum
hafa ekki farið varhluta af
versnandi ástandi undanfarna
mánuði og í skýrslu UNICEF
frá september sl. er að finna
mörg merki þess að bæði lík-
amlegu og andlegu ástandi pal-
estínskra barna fari hrakandi.
Starf UNICEF er einkum á
sviði heilbrigðismála, næringar,
menntunar, drykkjarvatns,
barnaverndar og ungmenn-
astarfs og beinist að þeim hóp-
um samfélagsins sem minnst
mega sín. Fjöldi léttbura hefur
nærri tvöfaldast á tæpu ári og
skortur er á nauðsynlegum lyfj-
um og hreinu drykkjarvatni,
sem eykur líkur á margvísleg-
um sjúkdómum meðal barna. Á
fyrri helmingi ársins 2007 létu
31 barn lífið og 19 slösuðust í
átökum við Ísraelsmenn og um
26 börn létust af völdum ofbeld-
is innan Palestínu, sem eru tvö-
falt fleiri en árið 2006. Flest
þessara barna eru frá Gasa
svæðinu. Versnandi aðstæður
unglinga, bæði félags- og efna-
hagslegar, auka líkur á að þau
leiðist út í ofbeldi eða verði
fórnarlömb misnotkunar.
Íslenska friðargæslan
tekur þátt í starfinu
í Palestínu
Íslenska friðargæslan hefur
tekið þátt í starfi Barnahjálpar
SÞ í Palestínu síðan í mars á
þessu ári. Steinunn Guðrún
Björgvinsdóttir, friðargæslu-
liði, starfar hjá UNICEF í
Jerúsalem og vinnur með
stjórnvöldum og frjálsum fé-
lagasamtökum að því að skapa
verndað og öruggt umhverfi
fyrir börn. Samstarf við félags-
málayfirvöld og barnaverndar-
yfirvöld á hernumdu svæðunum
í Palestínu er mikilvægur hluti
starfsins, auk heimsókna á
Vesturbakkann og samstarf við
skrifstofu UNICEF í Gasa.
Ætlunin er að fjölga stöðum
friðargæsluliða í Mið-Austur-
löndum á næsta ári í samstarfi
við stofnanir Sameinuðu þjóð-
anna sem þar starfa.
Ráðuneytið styrkir
UNICEF í Palestínu