Vikublaðið - 28.07.1997, Qupperneq 3

Vikublaðið - 28.07.1997, Qupperneq 3
28. júlí 1997 ™[P30GD Utvarpsstjóri á kostnað -Guðlaugur Þór veitir 12 rnilljón króna styrk til Fíns miðils. Fær stöðu útvarpsstjóra að launum Guðlaugur Þór Þórðar- son, formaður Sam- bands ungra Sjáifstæðis- manna hefur verið ráðinn útvarpsstjóri fjölmiðlafyr- irtækisins Fíns miðils frá og með 1. ágúst næstkom- andi. Fínn miðill er sam- runi Útvarps FM hf. og Aflvakans hf. sem reka út- varpsstöðvarnar FM 95,7 og Aðalstöðina. Það sem vekur athygli við ráðn- ingu Guðlaugs Þórs er að síðustu ár hefur hann ver- ið formaður Menningar- sjóðs Útvarpsstöðva og þar með haft tögl og hagldir í því hvaða aðilar fá styrki til að framleiða sjónvarps- og útvarpsefni og á síðustu tveimur árum hefur hann veitt 12 millj- ónum króna til eigenda Fíns miðils, síðast nú í vor. Árin 1996 og 1997 var 35 millj- ónum varið til framleiðslu á út- varpsefni til fjórtán aðila úr Menn- ingarsjóði Útvarpsstöðva. Þar af hafa fyrirtækin sem nú standa að Fínum miðli, vinnuveitanda Guð- laugs Þórs, fengið 12 milljónir króna í styrki úr sjóðnum. Þetta þykja mönnum í bransanum ótrúleg tíðindi og það var sama við hvem Vikublaðið talaði, enginn átti orð til að lýsa vandlætingu sinni á því að Guðlaugur Þór skyldi hafa ausið fé í þessa aðila og síðan verið ráðinn út- varpsstjóri til þeirra þegar væri búið að nota styrkina af opinberu fé til að koma fótunum undir fyrirtækið. Þann 9. maí veitti Guðlaugur Þór fyrir hönd Menningarsjóðs Út- varpsstöðvanna 7 milljónir króna til Útvarps FM og Aflvakans. Með öðrum orðum núverandi vinnuveit- anda sínum; Fínum miðli. „Slíkur fjáraustur til eins og sama aðilans er nánast einsdæmi úr sjóð- asukki íslendinga og í þokkabót er sjóðsstjórinn ráðinn til aðilans. Þetta er með bíræfnari og siðlausari pólitískum fyrirgreiðslum sem ég hef heyrt um. Og ekki hægt að kalla þetta annað en glæpamennsku,” segir þjóðkunnur útvarpsmaður sem grannt hefur fylgst með úthlutunum Menningarsjóðs útvarpsstöðva í tíð Guðlaugs Þórs. Fínn miðill, fín fyrirgreiðsla Eigendur Fíns miðils eru Ámi Samúelsson, Bjöm Ámason og Baldvin Jónsson sem aftur eru „Það nær engri átt að misnota með svo svívirði- legum hætti almannafé til að koma fram hefridum í samkeppni á fjölmiðla- markaðinum. Steininn tek- ur úr með því að, að öllum líkindum hefur hann verið búinn að ráða sig til þeirra á bak við tjöldin áður en síðasta styrkveiting fór fram. Fyrirgreiðslan er fín en algjörlega siðlaus,” seg- ir maður úr fjölmiðla- heiminum. helstu andstæðingar Jóns Ólafsson- ar á afþreyingarmarkaðinum og hel- stu keppinautar. Ekki síst eftir að veldi Jóns gleypti Stöð 3 sem Ámi Samúelsson og mörg gömlu kol- krabbafyrirtækjanna stóðu að. „Guðlaugur Þór er að ausa fé til flokksbræðra sinna sem róa að því öllum árum að koma höggi á Jón Ólafsson og Islenska útvarpsfélagið eftir niðurlæginguna í kringum Stöð 3. Þama eru hatursmenn Jóns Ólafs- sonar að koma sér upp mótvægi við útvarpsstöðvar hans og nota til þess aðgang að opinberum sjóðum sem þeir ausa óspart úr. Það nær engri „Guðlaugur á undir högg að sækja innan ungliðahreyfingarinnar og á von á skelli í for- mannsslagnum í haust þannig að hann mátti ekki við þessu ofan á allt saman. Þetta er það al- varlegur karakterbrestur að ég held að hann hafi ekkert að gera í pólitík.” átt að misnota með svo svívirðileg- um hætti almannafé til að koma fram hefndum í samkeppni á fjöl- miðlamarkaðinum. Steininn tekur úr með því að, að öllum líkindum hefur hann verið búinn að ráða sig til þeirra á bak tjöldin áður en síð- asta styrkveiting fór fram. Fyrir- greiðslan er fín en algjörlega sið- laus,” segir maður úr fjölmiðla- heiminum. Áfram í stjórn Samkvæmt lögfræðiskrifstofu Bjama Þórs Óskarssonar sem ann- ast málefni Menningarsjóðs Út- varpsstöðva þá situr Guðlaugur Þór áfram í stjóm sjóðsins. Ekki var hægt að fá staðfest hvort hann væri áfram formaður sjóðsins eða ekki. „Guðlaugur Þór er með þessu at- hæfi sínu að grafa sína eigin gröf pólitískt séð. Þó að mönnum hafi liðist það hér á ámm áður að sukka svona í opinberum sjóðum sjálfum sér til framdráttar gengur þetta ekki upp í dag. Þegar ungir menn verða uppvísir af svona athæfi snemma á sínum pólitíska ferli þá fylgir það þeim alla ævi enda ber það vott um mikla siðferðisbresti að hygla sjálf- um sér með svo gróflegum hætti. Það er þó skárra þegar menn eru að liðka til fyrir öðrum en þetta tekur öliu fram,” segir framámaður í Sjálfstæðisflokknum sem vildi ekki láta nafn síns getið vegna stöðu sinnar innan flokksins. Um stöðu Guðlaugs innan flokks- ins segir hann: „Guðlaugur á undir högg að sækja innan ungliðahreyf- ingarinnar og á von á skelli í for- mannsslagnum í haust þannig að hann mátti ekki við þessu ofan á allt saman. Þetta er það alvarlegur ka- rakterbrestur að ég held að hann hafi ekkert að gera í pólitík.” Ráðamenn þegja Þeir ráðamenn innan Sjálfstæðis- flokksins sem inntir voru álits á gjörðum Guðlaugs vildu ekki tjá sig opinberlega um málið og sögðu að farið yrði með það sem innanhús mál Sjálfstæðisflokksins. Greinilegt var þó á viðbrögðum þeirra að þeim þótti málið hið vandræðalegasta og umræðan um það óþægileg. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Vikublaðs- ins tókst ekki að ná sambandi við Guðlaug Þór vegna málsins. „Eg hélt að Guðlaugur myndi komast skammlaust frá formennsk- unni í SUS en það var ekki. Það er leiðinlegt þegar ágætir menn falla í gryfju pólitískrar spillingar og það er vonandi að hann sjái að sér. Ann- ars á hann enga framtíð í stjómmál- um,” segir framámaður í Sjálfstæð- isflokknum. KLIPPT... Vændi 1 Reykjavík ítarleg og opinská umfjöllun tímaritsins Mannlífs á vændi í Reykjavík hefur vakið mikla athygli. í greininni er flett ofan af vændihúsarekstri Ingu nokkurrar á Túngöt- unni. Þar svala margir af virðulegustu mönn- um bæjarins sínum lægstu hvötum og eru lýs- ingar fyrrverandi vændiskonu á kúnnum sín- um vægast sagt hrikalegar. Mannlíf vekur þama enn og aftur upp umræður um mein þjóðfélagsins sem annars em aldrei rædd á vettvangi fjölmiðlanna. Það kennir margra grasa í þessu nýjasta tölublaði Mannlífs og má nefna viðtal við Jóhannes Bjöm rithöfund þar sem fram koma sláandi upplýsingar um þróun mála í eiturlyfjaheiminum og opinskátt viðtal við Finn Jónsson handboltakappa þar sem hann segir frá baráttu sinni við eiturlyfin og íþróttimar. Prestar æfir Mikill barlómur er í prestum landsins um þessar mundir. Eins og menn muna þá fengu þeir mjög ríflega launahækkun fyrir nokkrum ámm þar sem þeir fóm langt fram úr viðmið- unarhópum sínum á borð við kennara. Fyrir utan há gmnnlaun hafa prestar vemlegar aukatekjur fyrir allar athafnir sem þeir fram- kvæma. Á dögunum fengu þeir 4-8% launa- hækkun samkvæmt úrskurði kjaradóms. Mun meiri hækkanir en hinn almenni launamaður og auka því prestar forskot sitt vemlega á aðra opinbera starfsmenn. En ekki dugir þetta blessuðum guðsmönnunum því mikill vill meira. Þeir segjast æfir yfir úrskurði Kjara- dóms og skilja ekkert í því af hverju laun þeirra hækka ekki meira. Mörgum þykir orð- ið nóg um barlóm prestastéttarinnar og þykir kominn tími til að þeir snúi sér að andlegum málefnum og sáluhjálp. Lítil von er þó um breytingar úr þeirri áttinni og heyrst hefur frá Hagstofunni að eftir þetta nýjasta upphlaup presta hafi hrina úrsagna úr þjóðkirkjunni riðið yfir. Varkárir dátar! Eins og menn vita em nú stundaðar heræf- ingar af miklum móði hér á landi. Einn liður í þessum æfingum er víst fólginn í því að senda tugi fallhlífarhermanna úr flugvélum á Suður- landi en þeirra takmark mun vera að setja upp spítala með öllu tilheyrandi á jörðu niðri. Sú saga hefur heyrst að forsprakkar Sam- varðar, þ.e. æfingarinnar, hafi farið þess á leit við íslensk stjómvöld að þau tækju rafmagns- strauminn af Suðurlandi öllu á meðan á æf- ingunni stæði. Fallhlífarmennimir em víst hræddir um að lenda á háspennulínum. Þessu var hafnað enda hefðu sunnlenskir kúabændur vafalaust ekki verið hrifnir af því að þurfa handmjólka sínar kýr á meðan dátar sveimuðu í fallhlífum yfir bæjum þeirra. Erótík og kynlíf Sem kunnugt er var Davíð Þór Jónsson ráð- inn ritstjóri tímaritsins Bleikt og Blátt. Fyrsta tölublaðið undir ritstjóm Davíðs ber með sér ferska vinda og hefur honum tekist að hrista vel upp í blaðinu og er fjöldi skemmtilegra greina og vandaðara erótískra mynd að finna í blaðinu. Davíð er kjarkmaður og óhræddur við að fjalla um tabúin í þjóðfélaginu og því ljóst að ekki verður um neina lognmollu að ræða þar á bæ. Hreinsanir hjá Útvarpinu Eins og menn vita hafa undanfarið átt sér miklar skipulagsbreytingar hjá Ríkisútvarp- inu. Breytingamar, sem em hugarsmíð nokk- urra sjálfstæðismanan, hafa haft í för með sér umtalsverðar uppsagnir á fólki. Það hefur vakið athygli að vinstri menn hafa umfram aðra fengið reisupassann. Má þar nefna starfs- menn eins og Sigurð G. Tómasson, Mariu Kristjánsdóttur og Andreu Jónsdóttur. Ja, það er illt að eiga ekki fulltrúa í útvarpsráði! ...OGSKOm

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.