Vikublaðið - 28.07.1997, Síða 5
28.júlí 1997
tpcDaaaata
5
Þorvaldur Þorvaldsson
Endurfundur víð Albaníu
Eg vissi að allt var ger-
breytt. Allt gerólíkt
því sem það var í fyrri
skipti sem ég kom til Al-
baníu á árunum 1978-86.
Ég vissi meira að segja
ýmislegt um þær breyt-
ingar sem orðið höfðu.
Samt var það áfall að
upplifa breytingarnar.
Eftir hrun sósíalismans í Albaníu í
byrjun þessa áratugar var yfirleitt
farið að tala um lýðræði í landinu,
jafnvei endurheimt lýðræði. Enda
kom fljótlega til valda flokkur sem
kailar sig Lýðræðisflokk. Formaður
hans Salih Berisha varð forseti árið
1992 og hóf hreinsanir í öllum
áhrifastöðum til að koma sínum
mönnum að. Gamli flokkurinn
breytti sér hins vegar í krataflokk og
tók sér nafnið Sósíalistaflokkur Al-
baníu. Nýr Kommúnistaflokkur var
stofnaður haustið 1991 en var bann-
aður hálfu ári síðar.
Fyrir rúmu ári náði Lýðræðis-
flokkurinn endurkjöri með umfangs-
miklu kosningasvindli sem staðfest
var af alþjóðlegum eftirlitsstofnun-
um. Þó var ekkert aðhafst í málinu
og Salih Berisha naut velþóknunar á
alþjóðavettvangi þar til í byrjun
þessa árs voru lýst gjaldþrota nokkur
fjárfestingafyrirtæki sem skipulega
höfðu svikið fé út úr almenningi með
loforðum um ævintýralega ávöxtun.
Fjöldi fólks missti allar eigur sínar
og mikil reiði braust út. Menn ná-
tengdir forsetanum voru viðriðnir
fjársvikin og talið var að þau hefðu
að nokkru fjármagnað flokk hans.
I lok febrúar voru fjölmennar mót-
mælaaðgerðir í flestum borgum
landsins. f borginni Vlora í suður-
hlutanum snérust þær upp átök þar
sem mannfjöldinn yfirbugaði lög-
regluna og réðst inn í vopnabúr hers-
ins. Fjöldinn vopnaðist og tók völdin
í sínar hendur. Þetta ástand breiddist
út um allan suðurhluta landsins.
Uppreisnamefndir voru myndaðar og
krafan var afsögn forsetans.
Þann 9. mars hlupu Sósíalista-
flokkurinn og aðrir stjómarandstöðu-
flokkar undir bagga með forsetanum
og mynduðu þjóðstjórn. Kosningar
vom ákveðnar 29. júní. Fjölþjóðlegt
herlið kom til landsins í apríl. Upp-
reisnin fraus föst.
„Allt getur gerst”
Við þessar aðstæður stóðst ég ekki
lengur mátið og gerði að veruleika
gömul áform um að koma aftur til
Albaníu. Þegar ég kom til landsins
þremur dögum fyrir kosningar var
enn mikil óvissa ríkjandi um fram-
gang þeirra. Deilur voru uppi um
hvort loka skyldi kjörstöðum klukk-
an 6 eða 9. Sósíalistar óttuðust að ef
kjörstaðir væru opnir til kl. 9 gætu
menn forsetans spillt kjörgögnum í
skjóli myrkurs.
Stemmningin var augljóslega á
bandi sósíalistanna en loft var lævi
blandið. Viðkvæði flestra var: „Allt
getur gerst. Ef Salih Berisha vinnur
kosningarnar verður stríð”. Enginn
reiknaði reyndar nteð því að Salih
Berisha sigraði nema með kosninga-
svikum. En fleira var í óvissu. Marg-
ir óttuðust að forsetinn myndi hund-
sa kosningaúrslitin og reyna að
kynda undir frekari upplausn eins og
síðar kom á daginn.
Föstudagsmorguninn 27. júní
lýstu Sósíalistaflokkurinn, Sósíal-
demókrataflokkurinn og Flokkur lý-
ræðisbandalags yfir bandalagi um
stjórnarmyndun eftir kosningarnar.
Þá var haldinn útifundur á Skander-
begtorginu þar sem komu hátt á ann-
að hundrað þúsund manns. Seinna
sama dag hélt Lýðræðisflokkur Salih
reyndu að falsa niðurstöðuna. Á há-
degi sarna dag fylkti „kóngurinn” liði
sínu sem gekk undir vopnum frá
Skanderbegtorginu. Eftir hádegi
skipaði forsetinn lífverði sínum í
fulla viðbragðsstöðu vegna óstöðug-
leika og lýsti yfir í sjónvarpi að hann
væri tilbúinn til að efna til borgara-
stríðs í landinu.
Búist var við frekari ögrunum í
tengslum við hátíðarfund Sósíalista
og bandamanna þeirra seinna um
daginn. Á annað hundrað þúsund
manns komu til fundarins en ekki
dró til frekari tíðinda. Daginn eftir
fylkti „kóngurinn” hins vegar liði
sínu á ný og gekk það undir vopnum
að ráðstefnuhöllinni þar sem kjör-
stjómin hafði aðsetur til að mótmæla
meintum kosningasvikum. Þar kom
til skotbardaga við lögreglu. Einn
göngumanna féll og nokkrir særðust.
Þessir atburðir ollu miklu uppnámi
meðal almennings sem vissi að þessi
öfl voru til alls vís. En stríðsáformin
runnu út í sandinn.
Næturskothríðin sem staðið hefur
síðan í mars hélt þó áfram af litlu
minni þunga. Oft var skotið mörgum
skotum mjög nálægt þar sem ég bjó
við Rruga Qemal Stafa og stuðlaði
ásamt hitanum að stopulum svefni
allar 10 nætumar.
Allt var breytt
Of langt mál væri að tíunda þær
breytingar sem orðið hafa í Albaníu
síðastliðinn áratug. Ibúafjöldinn í
Tirana hefur tvöfaldast á um 15 ámm
og ég sá ekki betur en fólk hefði
Greinarhöfundur ásamt formanni Verslunarmanna-
samtaka Albaníu, Hasan Shkalla t.h. og túlki.
áróðri. Konungserfinginn, Leka
Zogu auglýsti mikið í sjónvarpinu.
þar lét hann kórónu svífa um ýmis
Evrópuríki til að undirstrika vel-
gengni konungsríkjanna. Ekki var
hann þó nákvæmari en svo að kórón-
an flaug í vænum sveig yfir sigur-
bogann í Frakklandi og kannski hún
hafi komið við í fleiri lýðveldum.
Eini flokkurinn sem er bannaður er
Kommúnistaflokkur Albaníu og gat
hann því ekki tekið þátt í kosningun-
um en talið er að fylgi hans hafi auk-
ist talsvert eftir að uppreisnin hófst í
suðurhluta landsins. Formaður
flokksins sagði í samtali við undirrit-
aðan að engir væru eins hættulegir
og fymtm kommúnistar sem snérust
yfir í andkommúnisma. Hann var þó
nokkuð vongóður um að kosninga-
sigur sósíalista yki líkumar á því að
flokkurinn yrði leyfður og það ntyndi
auðvelda starfsemi hans.
Ögranir
Þó að Salih Berisha játaði sig sigr-
aðan á öðrum degi eftir kosningar
var ekki öll sagan sögð. Hann gerði
bandalag við Leka Zogu um að efna
til stríðástands. Miðvikudaginn 2.
júlí birti blað tengt forsetanum sögu-
sagnir um að konungsveldi hefði
fengið 54% atkvæða í þjóðarat-
kvæðagreiðslunni en sósíalistar
hreiðrað um sig undir áhorfendapöll-
unum á aðalknattspymuleikvangin-
um. Einnig er vatn skammtað styttri
tíma á dag vegna þess að vatnsleiðsl-
an frá vatnsbólinu í Selita er svo
grönn.
Tugir þúsunda bfla em í Tirana þar
sem sárafáir voru áður en götunum
er hins vegar lítt eða ekkert viðhaldið
og hafa því verulega látið á sjá.
Það afslappaða andrúmsloft sem
áður einkenndi Tirana heyrir nú sög-
unni til. Margir bera kvíðboga fyrir
framtíðinni. það félagslega öryggi
sem áður var er ekki lengur fyrir
hendi. Einn viðmælandi minn orðaði
það svo að formlega væri ókeypis
aðgangur að sjúkrahúsum en ef þú
átt ekki peninga er betra að verða
ekki veikur.
Líftð lýtur öðrum takti en áður og í
miðborg Tirana er hver lófastór blett-
ur notaður til að byggja kaffihús. Þar
er frekar auðvelt að komast í sam-
band við fólk svo fremi að tungu-
málakunnáttan skarist. Þar á meðal
eru atvinnulausir menntamenn, fóm-
arlömb hreinsana Salih Berisha. Eftir
er að vita hvort þeim vegnar betur
undir nýrri stjóm sósíalista en rnikið
þarf að gerast til að takst megi að
vinna nokkuð á vandamálum þjóðar-
innar á tiltölulega fáum ámm.
fyrir stríð. Samhliða kosningunum
nú var einnig greitt atkvæði um end-
urreisn konungsveldis en því var
hafnað. Formaður Fasistaflokksins
Balli Kombetar, Abaz Ermenji er
kominn til Albaníu eftir 50 ára út-
legð í Frakklandi. Hann kallaði alla
aðra kommúnista í sínum kosninga-
Skriðdrekar eru algeng sjón á götum Tirana.
Kosningaáróður
Kosningaáróður flokkanna risti yf-
irleitt ekki djúpt. Sósíalistaflokkur-
inn og formaður hans Fatos Nano
töluðu mest um að efla hinar lýðræð-
islegu stofnanir rfldsins, koma á lög-
Svo voru mættir á sjónarsviðið
flokkar lengra til hægri, þar á meðal
flokkar sem börðust með nasistum í
stríðinu. Legaliteti berst fyrir endur-
reisn konungsveldis í Albaníu sem
reyndar stóð nú ekki nema í áratug
Formaður Kommúnistaflokks Albaníu, Hysmi Mi-
koshi, ásamt nokkrum ungum félögum.
Útifundur Sósíalistafiokksins á Skanderbegtorgi.
Berisha útifund á sama stað en mér
var ráðið frá því að fara því að dag-
inn áður var skotið á forsetann á
fundi í Lushnja og 15 manns lágu í
valnum. Af sjónvarpinu að dæma var
fundur forsetans mun fámennari en
sósíalistanna.
um og reglu, berjast gegn ört vaxandi
eiturlyfjavanda og ef efnahagsmál
bar á góma þá vísuðu þeir gjaman til
sósíaldemókrata annars staðar í Evr-
ópu sem þar eru víða í stjóm. Flokk-
ur Salih Berisha byggði sinn kosn-
ingaáróður nánast eingöngu á upp-
hrópunum gegn kommúnisma.