Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.2008, Blaðsíða 1

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.2008, Blaðsíða 1
Laugardagur 5. 4. 2008 81. árg. lesbók HVAÐ ER RAUNSÆI? MEÐ FORSPÁRGILDI SKÁLDSKAPARINS Í HLUTFÖLLUM VIÐ AÐRA KRAFTA MENNINGARINNAR ERUM VIÐ STÖDD Í SKÁLDSÖGU BRAGA ÓLAFSSONAR » 10 Það verður enginn ísbíltúr í dag: pabbi er þunnur » 2 Eftir Þröst Helgason throstur@mbl.is Kjúklingalund „fajitas“ að hætti Google-manna, mexíkósk maíssúpa og súkku-laðiís. Þannig hljómaði matseðillinn í mötuneyti Orkuveitu Reykjavíkur daginn sem ljósmyndarinn Spessi tók myndirnar sem eru nú komnar út á bók með þessu sama heiti. Í bókinni birtast, auk uppskriftar að réttinum fyrir 400 manns, ljósmyndir af matarbökkum og diskum starfsmanna eftir að þeir hafa borðað af þeim. Eftir sitja leifar matarins og ummerki þess sem hefur athafnað sig á diskinum. Myndirnar eru teknar ofan á bakkana og diskana. Sjónarhornið er hið sama og þegar teknar eru myndir af landi úr lofti. Landslagið sem blasir við á þessum myndum er auðvitað manngert. Grunnformin eru reglulegir fern- ingar og hringir, en þau eru brotin upp á óreiðu- kenndan hátt með matarleifunum og öðru sem manneskjan, sem borðaði matinn, hefur skilið eftir sig. Táknmál myndanna er ákaflega sterkt og auðlæsilegt. Það birtir í fyrsta lagi afhjúpandi mynd af neyslumynstri nútímasamfélaga, að minnsta kosti í hinum velmegandi vestræna heimi. Nánast enginn klárar af diskinum sínum! Leifarnar lýsa ofgnóttarsamfélagi sem hefur tapað tilfinningunni fyrir verðmætum. Um leið kallast þessir leifadiskar úr Orkuveitu Reykja- víkur auðvitað á við leifarnar sem orkuiðnaður- inn skilur eftir sig eftir að hafa fengið sér af gnægtaborði náttúrunnar. Landslag leifanna Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Þorvaldur Þorsteinsson Hann lýsir eftir þeim ómælisvíddum sem búa ókannaðar í okkur öllum og freistar þess að kynna þau verkfæri sem best hafa nýst honum í slíku landnámi. » 4

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.