Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.2008, Síða 3
Mótmælt Frá mótmælum í Wakefield, Masschusetts, í Bandaríkjunum 29. október 1967.
Ljósmynd/© Bettmann/CORBIS
William Matthews (1942-1997) er eitt af þekktari ljóðskáldum
Bandaríkjanna á seinni helmingi síðustu aldar. Hann hlaut ýmiss
konar viðurkenningu fyrir ljóðlist sína, m.a. National Book Cri-
tics Circle Award árið 1995. Ljóðið birtist fyrst í bókinni Ruining
the New Road (1970).
Vegna þess að við hömumst
innan gömlu markanna,
eins og ung stelpa sem segir skilið við kirkjuna,
en óttast foreldra sína.
Vegna þess að okkur dreymir öll um að bjarga
vísundinum með stríðhærðan, klepraðan feldinn
og skýla hjörðinni með líkömum okkar.
Vegna þess að sorgin sameinar okkur,
eins og elgi með samanlæst horn
sem deyja á hnjánum í pörum.
William Matthews
Guðni Elísson þýddi.
Af hverju erum
við ein þjóð
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 3
Háskólaútgáfan gefur út fjölbreytt frumsamin og þýdd ritverk er varða rannsóknir og kennslu við Háskóla Íslands og
stofnanir hans. Háskólaútgáfan gefur að jafnaði út um 60 rit á ári hverju
ı Háskólabíó við Hagatorg ı 107 Reykjavík ı Sími 525 4003 ı Fax 525 5255 ı hu@hi.is ı www.haskolautgafan.hi.is ı
www.haskolautgafan.is
Inngangur að miðöldum
Handbók í íslenskir miðaldasögu
Gunnar Karlsson
Inngangsbindi að fræðilegu yfirlitsriti um íslenska
mið alda sögu.Hér er vísað á leiðir til að finna rit um
viðfangsefnið, skrifað yfirlit um miðaldahugtakið, ásamt
fleiri hugtökum um tímabil í Íslandssögu miðalda, farið
er yfir rannsóknarsögu og birt stutt yfirlit yfir evrópska
miðaldasögu. Lengsti hluti bókarinnar er svo yfirlit um
heimildir íslenskrar miðaldasögu - fornleifar, sögur, lög,
skjöl og annála. Loks er gerð grein fyrir mælieiningum og
tímatali miðaldafólks. 386 bls.
Kr. 5.200,-
Fjölmenning á Íslandi
Hanna Ragnarsdóttir, Elsa Sigríður Jónsdóttir, Magnús
Þorkell Bernharðsson
Bókin fjallar á gagnrýninn hátt um ýmsa þætti fjölmenningarsam-
félagsins. Kaflarnir eru tengdir nýlegum rannsóknum í viðkomandi
fræðum, bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Meðal efnis eru
þróun fjölmenningarlegs samfélags og skólasamfélags, straumar
og stefnur í fjölmenningarfræðum, tvítyngi og móðurmál, íslenska
sem annað mál, staðalmyndir og fordómar, sjálfsmynd, menning
og trúarbrögð, menningarlæsi og íslenskar rannsóknir, m.a. á
stöðu og reynslu barna og fullorðinna í fjölmenningarsamfélagi.
Enn fremur eru í bókinni svonefndir gluggar um líf innflytjenda á Íslandi, svo og valin
ljóð er tengjast viðfangsefninu. 360 bls.
kr. 3.900,-
Heilagra karla sögur
Sverrir Tómasson, Bragi Halldórsson og Einar
Sigurbjörnsson sáu um útgáfuna
Heilagra karla sögur eru sögur 12 dýrlinga frá mið-
öldum, flestar þýddar eða endursagðar úr latínu eða
lágþýsku, en kirkjulegar bókmenntir af þessu tagi eru
einn gildasti þáttur íslenskra fornbókmennta.
Bókin hefur að geyma lífssögur heilags Nikuláss,
Marteins, Rochusar og Ágústinusar kirkjuföður og
píslarsögur Ólafs helga, Vitusar og Stefáns frumvottar
og auk sögur af einsetumönnunum Páli og Maurusi.
Í bókarlok er svo sagan af frægasta syndara miðalda, Gregoríusi á
klettinum. Þetta er í fyrsta sinn sem helgisögur af þessu tagi eru gefnar út á
Íslandi. 364 bls.
kr. 4.900
Almanak HÍ 2008
Dr. Þorsteinn Sæmundsson
stjörnufræðingur reiknaði og bjó
til prentunar.
Auk dagatals eru margvíslegar upplýs-
ingar, svo sem um sjávarföll og gang
himintungla, yfirlit um hnetti himingeims-
ins, mælieiningar, veðurfar, stærð og
mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og
tímann í höfuðborgum þeirra. 96 bls.
Kr. 1.285,-
Afburðaárangur
Agnes Hólm Gunnarsdóttir og
Helgi Þór Ingason
Um stjórnunaraðferðir sem grund-
vallast á gæðastjórnun og rann-
sóknir á fyrirtækjum sem náð hafa
afburðaárangri. Hvaða aðgerðir
og aðferðir eru líklegar til að
stuðla að afburðaárangri í rekstri
fyrirtækis eða stofnuna. Í þessari
bók er leitast við að skapa yfirsýn
yfir nokkrar vel þekktar rannsóknir á
þessu sviði, sem og nokkrar vinsælar stjórnunaraðferðir. 139 bls.
Kr. 3.990,-
Hegravarpið
Lise Tremblay
Smásagnasafn sem vakið hefur
mikla athygli í heimalandi höf-
undar Kanada fyrir einfaldan
og beinskeyttan stíl. Sögurnar
lýsa lífi íbúa í smábæ í
Québec-fylki, sem byggja
afkomu sína á veiðimönnum,
fuglafræðingum og borgar-
börnum í leit að ró. Fyrir þetta
verk hlaut höfundurinn ein
merkustu bókmenntaverðlaun sem veitt eru í Kanada.
Kr. 2.800,-
Ljóðmæli
Einars Sigurðssonar í
Eydölum
Einar Sigurðsson var höfuðskáld
þjóðarinnar í árdaga lúthersks siðar
hér á landi.Bókin skiptast í þrjá
hluta. Inngangur fjallar um sálma-
kveðskap í lútherskum sið og ævi
Einars í Eydölum. Þá tekur við
kveðskapur Einars, alls 45 sálmar
og kvæði. Í síðasta hluta, Skýringum og athugasemdum, er gerð
rækileg grein fyrir einstökum sálmum og kvæðum og varðveislu
þeirra. Bókinni fylgja heimildaskrá, handritaskrá og nafnaskrá.
Kr. 5.600,-
Villa á öræfum / Allein durch die Einöde
eftir Pálma Hannesson
Tvímála útgáfa á sívinsælum hrakningasögum Pálma
Hannessonar, f.v. rektors MR og alþingismanns. Þær
leika meira að segja hlutverk í glæpasögum Arnaldar
Indriðasonar þar sem söguhetjan Erlendur er sífellt að
lesa þær og má kannski halda því fram að þær gegni
því hlutverki þar að undirstrika íslensk sérkenni þessa
rannsóknalögreglumanns.
Bókin er á tveimur tungumálum, íslensku og þýsku, og er
mikill fengur að þessu verki fyrir áhugamenn um hálendið
og þessar hrakningasögur sem hafa verið ófáanlegar
árum saman.
Kr. 3.300,-
Söngvarnir frá Písa
Ezra Pound
Söngvarnir frá Písa teljast til stórvirkja í ljóðabókmenntum
Vesturlanda og eru að margra mati hápunkturinn í hinu mikla
æviverki Ezra Pound sem hann nefnir Cantos. Ljóðaflokkurinn
er ortur í fangabúðum Bandaríkjahers norðan við Písa á
Ítalíu 1945, en þar sat Pound um nokkurra mánaða skeið,
ákærður fyrir landráð og með dauðadóm vokandi yfir sér.
Hann gerir upp líf sitt og les brot úr því saman við rústir
Evrópu sem og við leiftur úr liðinni sögu og þá goðsagna-
kjarna sem hann taldi óforgengilega.
Kr. 3.400,-
Leitin lifandi
Líf og störf sextán kvenna
Sextán konur, sem allar hafa lokið doktors-
námi við erlenda háskóla, eiga kafla í
bókinni. Þær starfa við ýmsa háskóla
landsinss og hafa allar, um lengri eða
skemmri tíma, stundað eigin rannsóknir
og miðlað þeim ríkulega í ræðu, kennslu
og riti. Í bókinni greina konurnar frá eigin
fræða- og rannsóknarsviði, hvernig áhugi
þeirra á því vaknaði og hvernig þeirra
eigin lífssaga og persónuleg reynsla hafði áhrif á starfsval þeirra. Þær
fjalla einnig um hugmyndafræðilega þróun innan síns fræðasviðs og
hvernig hún hefur endurspeglast í lífi þeirra, störfum og rannsóknum.
Kr. 3.500,-