Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.2008, Blaðsíða 12

Lesbók Morgunblaðsins - 05.04.2008, Blaðsíða 12
Á Hugvísindaþingi sem fer fram í Háskóla Íslands eftir hádegi dagana 4. og 5. apríl er sagt frá rannsóknum á ýmsum sviðum hugvísinda. Fyrirlestrunum er skipað saman í málstofur þar sem rætt er um tengd eða skyld efni. Í einni málstofunni, sem ber heitið „Íslenskan öll?“, er nokkurs konar uppskeruhátíð rannsóknaverkefnisins Tilbrigði í setn- ingagerð. Það verkefni fékk svonefndan Öndvegisstyrk úr Rann- sóknasjóði fyrir árin 2005-2007 og Höskuldur Þráinsson, prófessor við Háskóla Íslands, hefur stýrt því. Í þessari grein er verkefninu lýst og nefnd dæmi um niðurstöður. Í framhaldinu er síðan spurt hvort ís- lenska sé að líða undir lok: Er íslenskan bráðum öll? Eftir Höskuld Þráinsson hoski@hi.is Þ ví er oft haldið fram að íslenska sé „einsleitt mál“ og þá er átt við að hér á landi sé minni mállýsk- umunur en víðast annars staðar. Flestir kannast þó við að Norðlend- ingar tala ekki nákvæmlega eins og Sunnlendingar né heldur Vestfirð- ingar eins og Austfirðingar. En þeg- ar rætt er um staðbundinn mál- farsmun á Íslandi er oftast átt við framburð (t.d. harðmæli annars veg- ar og linmæli hins vegar) eða þá til- brigði í orðafari (t.d. kók í bauk eða dós). Íslenskar framburðarmál- lýskur voru kannaðar í tveim ít- arlegum rannsóknum á sl. öld, fyrst af Birni Guðfinnssyni upp úr 1940 og síðan af Kristjáni Árnasyni og Hösk- uldi Þráinssyni 40 árum síðar. Rann- sóknir á staðbundnum orðaforða standa líka á gömlum merg hér á landi, t.d. rannsóknir á vegum Orða- bókar Háskólans. Þessar rannsóknir þóttu renna stoðum undir þá kenn- ingu að minni mállýskumunur væri á Íslandi en í flestum nágrannalönd- unum. Í öðrum löndum beindust mál- lýskurannsóknir líka upphaflega að framburði og orðaforða og náðu yf- irleitt ekki til setningagerðar fyrr en á síðustu árum eða áratugum. Ástæðan er ekki síst sú að það er mun erfiðara að rannsaka tilbrigði í setningagerð en framburði og orða- forða. Á undanförnum árum hafa hins vegar farið af stað rann- sóknaverkefni á Norðurlöndum sem miða að því að kanna tilbrigði í nor- rænni setningagerð og íslenska til- brigðaverkefnið er liður í þeim rann- sóknum. Ætlunin var að „kortleggja tilbrigði í íslenskri setningagerð (með nokkrum samanburði við fær- eysku), gera grein fyrir dreifingu þeirra og skýra þau“, eins og það var orðað í markmiðslýsingu. Að verk- efninu loknu ætti þá að vera hægt að svara þeirri spurningu hvort ís- Íslenskan öll? Er íslenskan að líða undir lok? Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að sumar breytingar á málinu breiðast hratt út, aðrar á lengri tíma. lenska sé einsleitt mál að því er varðar setningagerð. Tilgangur mállýskurannsókna En hver er þá tilgangurinn með því að rannsaka mállýskur almennt eða tilbrigði í setningagerð sérstaklega? Honum má lýsa á eftirfarandi hátt: – Fræðimenn vilja fá að vita hvernig tungumálið er í raun og veru, þ.e. hvernig fólk talar. Er mál- ið mismunandi eftir landshlutum, kyni, aldri eða öðrum félagshópum? Er raunveruleikinn í samræmi við það sem handbækurnar segja? – Hvernig verður málfarsmunur til? Hvernig breytast tungumál og af hverju? Fyrra atriðið má kalla lýsandi markmið. Málfræðingar vilja lýsa málinu eins vel og kostur er, vita hver einkenni þess eru og hvernig það er talað. Það getur m.a.s. haft hagnýtt gildi í sambandi við gerð kennsluefnis og handbóka. Síðara atriðið er fræðilegs eðlis því málvís- indamenn vilja sífellt öðlast betri skilning á viðfangsefni sínu, rétt eins og eðlisfræðingar, jarðfræðingar eða félagsfræðingar. Samanburður á skyldum málum og mállýskum getur sýnt okkur hvernig málbreytingar gerast og um leið varpað ljósi á eðli mannlegs máls. Umfang og aðferðir Tilbrigðaverkefnisins Í verkefnisstjórn voru, auk verkefn- isstjóra, þau Eiríkur Rögnvaldsson (HÍ), Sigríður Sigurjónsdóttir (HÍ), » Aftur á móti benti forkönnunin til þess að um talsverðan ald- ursbundinn mun væri að ræða í ýmsum tilvikum. Tilbrigðaverkefnið sjálft hefur staðfest þetta að verulegu leyti. 12 LAUGARDAGUR 5. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ lesbók

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.