Morgunblaðið - 11.01.2008, Page 1

Morgunblaðið - 11.01.2008, Page 1
föstudagur 11. 1. 2008 bílar mbl.isbílar Hinu árlega Dakar-ralli var skyndilega afĺýst af öryggisástæðum » 6 TÆKIN AFHJÚPUÐ TOPPLIÐ FORMÚLUNNAR FRUMSÝNA KEPPNIS- BÍLANA SEM TEFLT VERÐUR FRAM Í ÁR >> 4 Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is Ódýrasti bíll í heimi hefur hugsanlega litið dags- ins ljós. Bíllinn sem um ræðir nefnist Nano og var afhjúpaður á bílasýningunni í Nýju-Delí í gær, en eintakið kostar einungis um 2.500 dali eða tæpar 160.000 krónur. Bíllinn, sem hefur fengið viðurnefnið „alþýðubíllinn“ (The People’s Car), er í eigu indverska fyrirtækisins Tata Gro- up og er því spáð að hann muni valda straum- hvörfum í samgöngumálum á Indlandi en þar eru íbúar fleiri en milljarður. Bílaáhugamenn og sérfræðingar um heim allan hafa veitt bílnum mikla athygli og eru menn sér- staklega forvitnir um nákvæmlega hverju sé fórnað við framleiðslu á svo ódýrri bifreið. Tals- menn Tata Group segja að sparnaðurinn felist í mörgum þáttum en það er nokkuð ljóst að bíllinn er strípaður hvers kyns aukabúnaði og flúri sem þjónar ekki á beinan hátt meginþáttum ökutæk- isins. Annars leggur fyrirtækið áherslu á að halda öllum helstu framleiðsluupplýsingum leyndum fyrir keppinautum. Þá er heldur ólíklegt að bíllinn muni nokkurn tíma sjást hér á landi eða annars staðar þar sem mengunarstaðlar og ör- yggisreglugerðir meina honum væntanlega að- gang. Nano-bíllinn er líkur Smart-bifreið í útliti og er með 624 rúmsentímetra vél sem afkastar 33 hest- öflum. Bifreiðin er fernra dyra og fimm sæta og í einföldustu útgáfunni er engin loftkæling, engar rafstýrðar rúður og ekkert vökvastýri. Þó verður boðið upp á tvær ögn dýrari útgáfur til viðbótar þar sem aukin þægindi er að finna. Nano-bíllinn er væntanlegur á markað síðar á þessu ári og telja sérfræðingar úr bílaiðnaðinum að hann muni hafa víðtæk áhrif á bílaframleiðslu um heim allan. Heimsins ódýrasta bifreið Reuters Alþýðubíll Indverska fyrirtækið Tata Group afhjúpaði í gær Nano-bílinn sem er sagður vera ódýrasti bíll í heimi en kaupverð hans er um 160.000 krónur. Veruleg aukning hefur orðið á út- flutningi mótorhjóla frá Kína. Fluttu Kínverjar út 7,27 mótorhjól fyrstu 11 mánuði ársins sem er 22,84% aukn- ing miðað við sama tímabil í fyrra, að sögn samtaka kínverskra bifreiða- framleiðenda. Á sama tíma jukust tekjurnar af útflutningi þessum um 27,36% milli ára en þær námu 3,6 milljörðum dollara til nóvemberloka. Fimm vinsælustu mótorhjólagerð- irnar báru uppi 91,6% heildarút- flutningsins, eða 6,66 milljónir hjóla. Þar á meðal eru hjól með 125, 100 og 110 rúmsentímetra slagrými. Samtök kínverskra bifreiðafram- leiðenda áætla að heildarsala og framleiðsla mótorhjóla nemi 25 millj- ónum eintaka í ár og því fer tæpur þriðjungur til útflutnings. Alls fram- leiðir 91 fyrirtæki mótorhjól í Kína. Stóraukinn útflutningur á mótorhjólum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.