Morgunblaðið - 11.01.2008, Page 2

Morgunblaðið - 11.01.2008, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 11. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ bílar NÝLEG skýrsla hefur leitt í ljós að slæmt ástand vega í Bretlandi orsak- ar einn þriðja allra vélrænna bilana á bílum í Bretlandi. Niðurstöður skýrslunnar þykja slæmar því á sama tíma og bensínverð vex stöðugt, þar sem umtalsverð upphæð af bens- ínlítranum fer í skatta, virðist svo vera sem að viðhaldi á vegum sé ábótavant en hluti af skattpeningnum á einmitt að fara í vegagerð. Sama könnun í Bandaríkjunum sýndi að aðeins ein bilun af hverjum átta stafaði af slæmum vegum og mega bandarískir bílstjórar líklega prísa sig sæla að þurfa ekki að aka sínum mjúkfjaðrandi bílum á ómögu- legum breskum vegum. Skýrslan byggist á könnun á hálfri milljón bíla sem gert var við á verk- stæðum beggja vegna Atlantshafsins. Þar kemur einnig fram að slæmir og holóttir vegir valda auðveldlega tjóni á dempurum, gormum, spyrnum og fleiri hlutum í hjólabúnaði bíla. Holur valda einum þriðja skemmda Morgunblaðið/Júlíus Holur Slæmir og holóttir vegir valda auðveldlega tjóni á demp- urum, gormum, spyrnum og fleiri hlutum í hjólabúnaði bíla. ÞRÁTT fyrir samdrátt á heimamarkaði seldu þýsku bíla- verksmiðjurnar Mercedes-Benz fleiri bíla á ný- liðnu ári en nokkru sinni fyrr, eða 1,29 milljónir. Þakkar fyrirtæk- ið það að mestu góðum móttökum nýrra bíla í C-lín- unni. Um er að ræða 2% aukningu miðað við árið 2006 en inni í töl- unum eru einnig Maybach-límúsínur og Smart-smábílarnir. Samdráttur varð í sölu þeirra síðastnefndu upp á 10,3% en af þeim seldust 100.600 bílar á árinu. Mestur vöxtur varð í sölu Merce- des-Benz í Asíu og Kyrrahafslönd- um, eða tæp 10%, en þar seldi fyr- irtækið 143.000 bíla. Í vesturhluta Evrópu, sem er enn stærsti mark- aður þess, varð 1,4% sölusamdráttur miðað við 2006, en þar seldust 778.000 bílar. Í heildina seldust 3,2% fleiri Benz- ar á heimsvísu í fyrra en árið 2006, þar af 260.000 bílar af C-gerð. 25% aukning hjá Audi í Kína Annar þýskur bílsmiður, Audi, fagnaði góðum árangri í Kína á ný- liðnu ári. Þangað seldi fyrirtækið 102.000 bíla árið 2007, eða 25% fleiri en árið áður. Mest munaði um mikla sölu A6-bílsins. Er Kína orðið stærsti markaður Audi utan Þýska- lands og áætlanir fyrirtækisins gera ráð fyrir enn frekari aukningu í ár, með því að styrkja sölukerfi sitt í landinu og með tveimur nýjum bíl- um, R8 og A5. Sölumet hjá Merce- des-Benz Söluvænn Tals- menn Mercedes Benz segja góða sölu C-bíla fyr- irtækisins ástæðu sölumetsins. Eftir Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is BMW–verksmiðjurnar þýsku segjast hafa skotið keppinaut- um í smíði lúxusbíla ref fyrir rass á nýliðnu ári með því að selja mun fleiri bíla, eða 1.500.678 eintök, sem er 9,2% aukning frá árinu 2006 er 1.373.970 BMW–bílar voru af- hentir kaupendum. Af heildinni nam sala BMW–bíla 1.276.793 eintök- um sem er 7,7% aukning milli ára. Í Mini–bílunum varð 18,5% aukning, af þeim seld- ust 222.875 eintök, og sala Rolls–Royce limúsína jókst um 25,5% en af þeim seldust 1.010 bílar. Hefur sala RR– bílanna aukist fjögur ár í röð og er þetta í fyrsta sinn sem yfir þúsund slíkir seljast á einu ári. BMW komst upp fyrir hinn þýska keppinaut sinn Merce- des–Benz, sem jók sölu sína 2007 um 2% í 1,29 milljónir bíla. „Enn á ný er BMW leiðandi framleiðandi gæðabíla hvað sölu varðar. Við er- um bjartsýnir á að sitja einnig í efsta sæti árið 2008,“ segir sölu– og markaðs- stjóri BMW, Stefan Krause. BMW styrkti á nýliðnu ári stöðu sína í Bandaríkjunum, Vestur–Evrópu og Asíu. Bandaríkin eru langstærsti einstaki markaður fyrirtækisins en þar seldi BMW alls 335.840 bíla af öllum gerðum, eða 7,1% fleiri en árið áður. Hefur BMW aldrei selt fleiri bíla þar í landi á einu ári. Og engir evrópskir bílar seldust jafn vel í Bandaríkjunum árið 2007 og þeir sem bera BMW–merkið, eða 293.795 eintök. 37% af heildarbílasölu BMW voru bílar í 3–línunni, eða 555.219 eintök. Í öðru sæti er 5–línan (230.845), þar sem innan við eins prósents samdráttur varð milli ára, og í því þriðja BMW–1 línan (165.803). Samdráttur varð á heimamarkaði í Þýskalandi, þar seldust 4,2% færri bílar en árið 2006. Meginskýringin er sögð hækkun söluskatts úr 16% í 19% í janúar 2007. Þegar á þýska bílamarkaðinn í heild er litið seldust 9,2% færri bílar þar í landi árið 2007, miðað við 2006. BMW seldi flesta lúxusbíla árið 2007 Lúxusbílar Bílaframleiðandinn BMW seldi 1.500.678 eintök lúxusbíla á síðasta ári sem er 9,2% aukning frá árinu 2006. Reuters ÞÝSKI vörubíla- og rútuframleið- andinn MAN hefur aukið hlut sinn í sænska keppinautnum Scania. Tilgangurinn er sagður sá að stuðla að aukinni samvinnu bíl- smiðjanna tveggja en kaupin minna á að MAN hefur sóst eftir samruna þeirra. Talsmaður MAN segir að kaupin endurspegli áhuga fyrirtækisins á auknu samstarfi við Scania á sviði vörubílaframleiðslu. Með hlutafjárskiptum við stóran fjárfesti jók MAN hlut sinn í Scania úr 14,5% í 15,57% á síðasta virkum degi fyrir jól. Keypti MAN 3,6 milljónir A-bréfa í Scania, en í þeim er fólgið aukið atkvæðavægi, og lét af hendi ígildi þeirra í B- bréfum í staðinn. Fyrir kaupin átti MAN 13,2% hlutafjár í Scania með 14,5% atkvæðavægi. Ekki hefur verið látið uppi við hvaða fjárfesti MAN skipti á hlutafé, en samkvæmt skráningu í sænsku kauphöllinni voru aðeins sex fjárfestar með meira en 3,6 milljónir A-hluta í Scania í lok nóv- ember sl. Þar á meðal Volkswa- gen, AB fjárfestingafélagið og Swedbank Robur. Volkswagen á 20% hlutafjár í Scania sem gefur 36,4% atkvæð- isrétt, en þýska fólksbílaverk- smiðjan er einnig stærsti hluthaf- inn í MAN, með 29,9% hlutafjár. MAN freistaði yfirtöku á Scania í fyrra, bauð 10,3 milljarða evra fyrir hlutaféð, en við hana hefði orðið til stærsti vörubílaframleið- andi Evrópu. Ráðamenn og eig- endur Scania spyrntu við fótum og höfnuðu þeim tilraunum. Samkomulag náðist með fyr- irtækjunum eftir yfirtökutilraunir MAN að taka nokkurn tíma í að róa málin niður en hörð og hat- römm skeyti gengu á milli for- svarsmanna fyrirtækjanna er á til- raununum stóð. Eru þau sögð vera að skoða hugsanlega fleti á sam- runa sem einnig fæli í sér aðild vörubíladeildar Volkswagen, sem er stærsti hluthafi bæði í Scania og MAN. Sérfræðingar í sænsku fjár- málalífi sögðu í tilefni kaupanna að þeim kæmi ekki á óvart þótt af samruna Scania og MAN yrði „ein- hvern tímann á árinu 2008“. Man eykur hlut sinn í Scania Morgunblaðið/G.Rúnar Man-vörubílar Sérfræðingar í sænsku fjármálalífi telja ekki ólíklegt að af samruna Scania og MAN yrði einhvern tímann á árinu. UPPLÝSINGAR O is ing Mjódd                        Næsta námskeið hefst 11. janúar n.k. Hyundai Santa Fe, árg. 2006, ek. 40 þús. km, dráttarkúla, filmur, topplúga og fl. Verð 2.690 þús. kr., áhv. 1.100 þús. kr. Gott eintak af bíl! MMC Galant ES V6, árg. 2003, ek. 61 þús. km, 200 Hö, 17" krómfelgur, leður og fl. Stgr.tilboð 1.750 þús. kr. Verð 1.900 þús. kr. Stórglæsilegur bíll!! Porsche Cayenne Turbo, árg. 2003, ek. 65 þús. km, fjarlægðarskynjarar, topp- lúga, GPS og fl. Stgr.tilboð 7.390 þús. kr. Verð 8.630 þús. kr. Gullfallegur bíll!! Toyota Avensis W/G EXE, árg. 2006, ek. 16 þús. km, filmur, leiðsögukerfi, leður og fl. Verð 2. 990 þús. kr. Gullfallegur bíll!! Peugeot 307 XR, árg. 2003, ek. 105 þús. km. Verð 790 þús. kr., áhv. 711 þús. kr. Fæst á yfirtöku+Sölulaun!!! BMW X5 4,8 IS, árg. 2005, ek. 42 þús. km, 355 Hö, 20" felgur, tvöföld sóllúga og m.fl. Stgr.tilboð 5.950 þús. kr. Verð 6.950 þús. kr. Mazda 5, árg. 2006, ek. 36 þús. km. Verð 1.990 þús, kr. áhv. 1.500 þús. kr. Flott eintak af bíl!! Dodge Nitro SXT 4X4, árg. 2007, ek. 24 þús. km. Verð 3.790 þús. kr. Glæsilegur bíll!! Funahöfða 1 • Opið virka daga kl. 10:00-18:30 • Laugardaga kl. 12:00-16:00 M bl 9 57 70 4 Ford F250 EXT 4X4, árg. 1999, ek.136 þús. km, Dísel, Verð 1.750 þús. kr. Glæsilegur bíll!! VW Fox, árg. 2006, ek. 12 þús. km, Verð 1.150 þús. kr., áhv. 960 þús. kr. Sjón er sögu ríkari!!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.