Morgunblaðið - 25.02.2008, Qupperneq 1
mánudagur 25. 2. 2008
íþróttir mbl.isíþróttir
Ramos vann fyrsta titilinn með Tottenham Hotspur >> 8
FROSTIÐ BEIT EKKI Á BERG
HITAR UPP MEÐ ÞVÍ AÐ MOKA KASTSVÆÐIÐ OG
SETTI ÍSLANDSMET Í FROSTINU Í FINNLANDI >> 2
Eftir Víði Sigurðsson
vs@mbl.is
„Ég var með ákvæði í mínum
samningi um að þegar ég hefði
verið 15 sinnum í byrjunarliði
yrði samið að nýju og það er kom-
ið af stað. Ég vonast eftir því að
það verði í höfn innan tveggja
vikna,“ sagði Eggert við Morg-
unblaðið í gær en hann hefur full-
an hug á að leika áfram með fé-
laginu.
„Já, mér líður vel hérna og svo
er ég kornungur og þess vegna
liggur mér ekkert á að velta öðru
fyrir mér. Það er gott að vera hjá
Hearts og Edinborg er fín borg.
Ég hef góðan félagsskap því við
Haraldur búum saman hérna,“
sagði Eggert en Haraldur
Björnsson, markvörður 21-árs
landsliðs Íslands, leikur með
vara- og unglingaliði Hearts og
hefur af og til verið í aðalliðs-
hópnum í vetur
Get ekki eignað mér sigur-
markið gegn Motherwell
Eggert átti stóran þátt í óvænt-
um útisigri Hearts á Motherwell í
skosku úrvalsdeildinni á laugar-
daginn, 1:0. Eftir snögga sókn
fékk hann boltann á miðjum vall-
arhelmingi Motherwell og skaut
að marki af 25 metra færi. Varn-
armaður Motherwell teygði sig í
boltann og af honum fór hann yfir
markvörðinn og í netið.
„Það var sætt að sjá á eftir
boltanum í markið en ég get víst
ekki eignað mér markið, það var
sjálfsmark. En sigurinn var
geysilega mikilvægur því við
stefnum á að komast í hóp sex
efstu liðanna sem spila innbyrðis í
síðustu umferðum deildarinnar.
Annars var ekki hægt að spila
neinn fótbolta í Motherwell, völl-
urinn var eitt drullusvað og þetta
var því bara einn stór bardagi,“
sagði Eggert Gunnþór Jónsson,
sem lék allan leikinn á miðjunni
hjá Hearts.
Eggert semur við Hearts
EGGERT Gunnþór Jónsson, Esk-
firðingurinn ungi sem leikur með
skoska knattspyrnuliðinu Hearts,
er í viðræðum við félagið um nýjan
samning. Eggert, sem er 19 ára,
hefur verið í röðum Edinborg-
arliðsins í hálft þriðja ár og vann
sér í vetur fast sæti í byrjunarlið-
inu.
Nítján ára fastamaður í liðinu Líður vel hjá Hearts og liggur ekkert á að
velta öðru fyrir sér Átti heiðurinn af sigurmarkinu gegn Motherwell
ENSKA knattspyrnufélagið West Ham,
með Íslendinga við stjórnvölinn, hefur
mikinn hug á að fá Hólmar Örn Eyjólfs-
son, varnarmanninn efnilega úr HK, í
sínar raðir. Hólmar dvaldi hjá félaginu
við æfingar í síðustu viku og stóð sig
það vel að Alan Curbishley knatt-
spyrnustjóri hefur gefið til kynna að
hann vilji fá hann í sinn hóp.
Hólmar staðfesti þetta við Morg-
unblaðið í gær en sagði að formlegar
viðræður væru ekki farnar af stað.
„Mér leist mjög vel á mig hjá West Ham
og það er vissulega spennandi kostur
að fara þangað,“ sagði Hólmar. West
Ham hefur ekki sett sig í samband við
forráðamenn HK enn sem komið er.
Hólmar er 17 ára en hefur verið í
byrjunarliði 21-árs landsliðsins í síð-
ustu leikjum og þá spilaði hann bæði
með U19 ára og U17 ára landsliðunum
á síðasta ári. Hólmar lék 12 leiki með
HK í úrvalsdeildinni síðasta sumar, alla
í byrjunarliði.
West Ham
með augastað
á Hólmari
RAGNAR Óskarsson, handknattleiks-
maður hjá Nimes í Frakklandi, slasaðist
á ný á hné í leik liðsins gegn Sélestat í
fyrrakvöld. Ekki náðist í Ragnar í gær
en netmiðillinn Handzone skýrði frá
þessu og þar kom fram að talin væri
mikil hætta á að Ragnar myndi ekki
leika meira á þessu tímabili.
Sagt er að Ragnar eigi eftir að fara í
ítarlegri rannsókn á hnénu og þá komi
betur í ljós hversu alvarleg meiðslin eru.
Ragnar hefur verið einn albesti leik-
maðurinn í Frakklandi í vetur, eins og
mörg undanfarin ár. Hann er þriðji
markahæsti leikmaður deildarinnar,
hefur skorað tæp 8 mörk að meðaltali í
leik fyrir Nimes í vetur, og samkvæmt
einkunnagjöf Handzone er hann næst-
besti leikmaðurinn í deildinni.
Ragnar meiddist líka á hné í leik með
Nimes í byrjun desember. Þá var óttast
að krossband væri slitið, rétt eins og
gerðist fyrir fimm árum þegar hann
missti úr heilt tímabil í Frakklandi. Svo
var ekki en Ragnar gat fyrir vikið ekki
leikið með íslenska landsliðinu á EM.
Aftur til Dunkerque?
Handzone segir ennfremur að und-
anfarið hafi verið umræða í gangi um að
Ragnar væri á leiðinni aftur til Dunker-
que, þar sem hann hóf feril sinn í
franska handboltanum á sínum tíma.
Dunkerque er í fjórða sæti deildarinnar
en Nimes er í 6. sætinu og hefur liðið
ekki staðið undir væntingum í vetur þó
að Ragnar hafi átt mjög gott tímabil.
Ragnar Ósk-
arsson aftur
meiddur á hné
Bikarmeistarar Kvennalið Grindavíkur og karlalið Snæfells urðu í gær bikarmeistarar í körfuknattleik en bæði lið unnu titilinn í fyrsta skipti. »4-5
Árvakur/Frikki