Morgunblaðið - 25.04.2008, Side 2
2 FÖSTUDAGUR 25. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Renault-samsteypan franska er orðin
þriðji stærsti bílaframleiðandi heims
með kaupum á hlut í rússnesku bíl-
smiðjunni Actovaz og eignarhaldi
sínu á Nissan. Einungis General Mot-
ors (GM) og Toyota eru stærri. Sam-
keppnisstofnun Evrópusambandsins
(ESB) samþykkti í síðustu viku kaup-
in á Avtovaz, sem m.a. framleiðir
Lada.
Renault, Nissan og Avtovaz munu
sín á milli smíða rúmlega sjö milljónir
bíla í ár. Avtotaz er stærsti bílafram-
leiðandi Rússlands og með afkasta-
getu upp á rúma milljón bíla á ári.
Sala fyrirtækisins í fyrra nam um
700.000 bílum á heimamarkaði og
180.000 bíla seldi það til annarra
landa, aðallega fyrrverandi ríkja Sov-
étríkjanna.
Sín á milli seldu Renault og Nissan
6,16 milljónir bíla í fyrra en auk GM
og Toyota seldu aðeins tvö fyrirtæki
fleiri bíla, Ford og Volkswagen. Þrátt
fyrir aukna erfiðleika í bílaframleiðslu
vegna efnahagslegra þrenginga og
hækkandi bensínverðs gerir forstjóri
Renault, Carlos Ghosn, ráð fyrir að
bílasala Renault-Nissan aukist um
10% í ár.
Kapphlaupi lokið
Fyrstu þrjá mánuðina 2008 jókst
fólks- og sendibílasala Renault-sam-
steypunnar um 6,5% miðað við sama
tímabil í fyrra. Þar af jókst sala Ren-
ault-bíla um 4,7%, Dacia-bíla um 37%
en sala Renault Samsung dróst sam-
an um 9%. Inni í þessum tölum er
ekki sala Nissan.
Renault kaupir 25% hlut í rúss-
nesku bílsmiðjunni og einn hlut til við-
bótar. Eignarhlutnum fylgir neitun-
arvald í öllum málum félagsins.
Tilgangurinn með kaupunum er að
dreifa kröftunum víðar en í Vestur–
Evrópu – bílasala dróst þar saman
um 6% í fyrra – og sækja inn á nýja
vaxandi markaði, eins og í Rússlandi.
Talið er að um 2,5 milljónir bíla
seljist í Rússlandi í ár og að sú tala
muni fara hækkandi á næstu árum.
Þannig áætlar Renault að þar seljist
3,5 til 4,0 milljónir bíla árlega um
miðjan næsta áratug.
Með kaupum Renault á hlutnum í
Avtotaz lauk löngu kapphlaupi er-
lendra fjárfesta um þennan stærsta
bílaframleiðanda Rússlands.
Lada í endurnýjun lífdaga
Franski bílsmiðurinn borgar millj-
arð dollara við gildistöku samningsins
og 166 milljónir dollara árið 2010, ef
árangur af samstarfinu verður í sam-
ræmi við áætlanir og væntingar.
Markaðsvirði Avtotaz er talið vera
fimm milljarðar dollara um þessar
mundir. Í nýrri fimm manna fram-
kvæmdastjórn fyrirtækisins verða
fjórir fulltrúar Renault og í stjórn fé-
lagsins verða þrír af 12 fulltrúum
franskir.
Renault hefur heitið því að blása
nýju lífi í Lada-bílana og yngja bílalín-
una upp með því að leggja bílsmiðj-
unum til nýja framleiðslutækni, gír-
kassa og mótora. Með því er vonast til
að Lada endurheimti fyrri stöðu í
Rússlandi en hún hefur farið halloka
fyrir innfluttum bílum. Gera áætlanir
ráð fyrir að smíði bílsins verði um leið
stóraukin og gangi allar áætlanir um
söluaukningu eftir verði 1,5 milljónir
Lada smíðaðar árið 2014.
Reuters
Renault Laguna Með kaupum á hlut í rússnesku bílsmiðjunni Actovaz og eignarhaldi sínu á Nissan er
Renault-samsteypan franska orðin þriðji stærsti bílaframleiðandi heims.
Renault-sam-
steypan þriðji
stærsti bíl-
smiður heims
Morgunblaðið/Þorkell
Endurnýjun lífdaga Renault hefur heitið því að blása nýju lífi í Lada-
bílana og yngja bílalínuna upp með því að leggja bílsmiðjunum til nýja
framleiðslutækni, gírkassa og mótora.
Ducati er það stóð til boða fyrir 23 árum.
„Sjálfur hjóla ég á Ducati, 180 hest-
afla, og hef því fleiri hestöfl á kíló en ég
nyti á 1.001 hestafls Bugatti,“ segir
Piech.
Sérfræðingar í bílaiðnaði segja að fjár-
málakreppa og efnahagssamdráttur – og
miklar verðhækkanir á eldsneyti – hafi
leitt til aukins áhuga fyrir mótorhjólum.
Það þykir þó ekki enn hafa sýnt sig í auk-
inni sölu þeirra.
Volkswagen í mótorhjólin?
VW Mótorhjól frá Volkswag-
en munu hugsanlega þjóta á
vegum í náinni framtíð.
MÓTORHJÓL með Volkswagen-
merkinu á gætu átt eftir að sjást á vegum
úti því þýski bílaframleiðandinn er með
áform um að kaupa upp fyrirtæki í mót-
orhjólasmíði, að sögn stjórnarformanns-
ins Ferdinands Piechs.
„Ég hef áhuga á litlu og verðmætu
mótorhjólafyrirtæki,“ segir Piech í sam-
tali við þýska vikuritið Stern. Hnykkir
hann á með að segjast sjá eftir að hafa
ekki keypt ítölsku mótorhjólasmiðjuna
Bremsuhlutir
í alla jeppa
og pickupa
Vagnhöfða 7
110 Reykjavík
Sími: 517 5000
Diskar
Klossar
Dælur
Borðar
Ísetningarþjónusta
P
R
E
N
T
S
N
IÐ
E
H
F
.