Morgunblaðið - 09.05.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 09.05.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 13 C& ,   G G   * > $      > $     /      ,    /     & ' > $   & $0,-    A  $     '%   0 '+   ? !0   * M "$   &  %     1221 1232 1227 1246 1249 1221 1221 1221 1226 1243 1245 1244 1226 1242 1243 1221 : 72 17 6 79 6 6 6 9 83 96 88 6 17 79 6 6 9 7 6 6 6 6 6 6 1 : 1: 6 1 : 6 6 :5 6 8 6 6 6 6 6 6 6 5 6 6 6 6 84 6 6 6 6 6 6 1 17 ;( ,' ./0 '  ! $       0   ;  9 4 2 1: 15 13 78 1 '- ,. 3 16 11 19 12 76 71 77 75 ,0/23- ,. 7 8 : 5 14 79 74 ' '- ,. ?) 1244 124: 9 3 6 6 6 6       +    ;    '     G 0    G  C   & ? +   1247 1227 1226 1249 1242 1221 1226 72 7 71 75 1: 1 6 1 6 6 1 1 6 6 4   B     % C  D Alexandra Tómasdóttir, byrjuð aftur Berglind Magnúsdóttir frá KR Bojana Besic frá Napredak Elva Friðjónsdóttir frá Tindastóli Lára Júlía Harðardóttir frá BÍ Claire Johnstone í Celtic Hulda Frímannsdóttir, hætt Pamela Liddell í Stjörnuna Selma Sigurðardóttir, hætt Shay Sade til Ísraels Valdís Ósk Sigurðardóttir í Sindra   *+   () „RAKEL Hönnudóttir er gríðar- lega mikilvæg fyrir liðið. Ég er á þeirri skoðun að hún sé einn allra besti framherji á Íslandi í dag,“ sagði Dragan Stojanovic, þjálfari Þórs/KA, spurður um landsliðskon- una Rakel sem verður í fremstu víglínu Akureyrarliðsins. Hún er 19 ára, var markahæst Akureyringanna í fyrrasumar með sex mörk í deildinni auk þess sem hún skoraði sjö mörk í bikarkeppn- inni. Þá var Rakel kjörin efnilegasti leikmaður úrvalsdeildar kvenna síðasta haust. Rakel hefur verið í A-landsliðs- hópi Íslands í vetur, á fimm leiki að baki með A-liðinu og gerði fyrsta markið sitt 12. mars sl. í 3:0-sigri á Finnum á æfingamótinu í Algarve. DRAGAN Stojanovic, þjálfari Þórs/ KA, reiknar með að Lands- bankadeild kvenna verði nokkuð tvískipt eins og í fyrra. Hann býst við að Valur, KR og Breiðablik berjist um efstu sætin og Keflavík gæti helst veitt þeim keppni. Það er varla hægt að segja að Akureyrarliðið fái óskabyrjun í Landsbankadeildinni að þessu sinni. Fyrsti leikurinn er gegn Ís- landsmeisturum Vals á útivelli, síð- an koma KR-ingar í heimsókn norð- ur, þá mæta Akureyringarnir HK/Víkingi á útivelli og loks kem- ur lið Breiðabliks í heimsókn. Byrja á bestu liðunum Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is „OKKUR hefur gengið nokkuð vel í vor, unnum alla leikina í Lengjubik- arnum nema einn sem endaði með jafntefli, og við unnum keppnina,“ segir Dragan Stojanovic, þjálfari Þórs/KA, en lið hans var í B-deild Lengjubikarkeppninnar. Þetta er annað árið sem Dragan þjálfar akureyrska kvennnaliðið og hann telur leikmannahópinn sterkari nú en í fyrra. „Við höfum að vísu misst nokkrar stelpur úr byrjunar- liðinu en höfum fengið aðrar í stað- inn auk þess sem ungu stelpurnar eru reyndari nú en áður; þær fengu dýrmæta reynslu í fyrrasumar,“ sagði Dragan í samtali við Morgun- blaðið. Berglind Magnúsdóttir markvörð- ur er gengin til liðs við Þór/KA frá KR og fyrrverandi serbnesk lands- liðskona, Bojana Besic, einnig. Hún lék um tíma í Bandaríkjunum en síð- ast í heimalandinu. Þá hefur Alex- andra Tómasdóttir tekið fram skóna á nýjan leik eftir tveggja ára fjar- veru vegna meiðsla. „Okkur er spáð 7. sætinu í deild- inni og ég verð að segja að ég yrði ánægður ef við næðum þeim árangri. Auðvitað yrði betra ef við yrðum enn ofar, en liðið er ungt og kröfurnar verða að vera raunhæfar.“ Hann segir einn helsta styrkleika liðsins vera liðsheildina, góðan móral og mikla stemningu, eins og í fyrra- sumar, „og auðvitað framherjinn okkar, Rakel Hönnudóttir“. Dragan segist leggja mikla áherslu á að bæta varnarleikinn frá því í fyrra. „Þá fengum við aðeins færri mörk á okk- ur en ÍR, sem féll, og nú verðum við að spila betri vörn.“ Bojana hin serb- neska er varnarmaður og getur líka spilað sem aftasti miðjumaður, og Dragan segir hana styrkja liðið heil- mikið. Akureyrarliðið fór til Algarve í Portúgal eina viku í vor og Dragan segir það hafa verið dýrmætt. „Við æfðum vel og spiluðum tvo leiki, báða við Stjörnuna; unnum annan 4:1 en töpuðum hinum 4:2. Þetta er annað árið í röð sem við förum í æf- ingaferð til Algarve og hún var vel heppnuð.“ Dragan ítrekar að Akureyrarliðið sé mjög ungt „og okkar markmið er að halda meistaraflokknum í Lands- bankadeildinni og halda 2. flokki áfram í A-deild líka. Við eigum marga mjög efnilega leikmenn í yngri flokkunum sem við bíðum eftir að komi inn í meistaraflokkinn á næstu árum og við viljum festa liðið í sessi í efstu deild áður; það er miklu betra fyrir þær stelpur að koma upp í þannig meistaraflokk heldur en lið sem er alltaf í botnbaráttu“. Aðstoðarþjálfari liðsins eins og í fyrra er Siguróli „Moli“ Kristjáns- son, sem lék með Þór á sínum tíma við góðan orðstír. „Siguróli er mjög mikilvægur í þessum hópi og það er gaman að vinna með honum.“ Dragan Stojanovic þjálfar lið Þórs/KA Viljum festa liðið í sessi í efstu deild Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Serbnesk þrenna Þrír leikmenn frá Serbíu eru með Þór/KA. Frá vinstri: Bojana Besic, sem gekk til liðs við Þór/ KA í vetur, Dragana Stojanovic og Ivana Ivanovic. Tvær þær síðastnefndu léku líka með Akureyrarliðinu í fyrra. DRAGAN Stojanovic er við stjórnvölinn hjá liði Þórs/KA annað árið í röð. Hann segir leikmannahópinn sterkari en í fyrra, liðið sé enn ungt en hug- myndin sé að byggja upp lið, hægt en örugglega, sem geti fest sig í sessi í efstu deild. Margir efnilegir leikmenn séu í yngri flokkunum, sem vænta megi að komi inn í meistaraflokksliðið á næstu árum. Rakel Hönnudóttir er einn besti framherjinn Carlos Brito/Algarvephotopress Hættuleg Rakel Hönnudóttir á fleygiferð með knöttinn í sigurleik Íslands gegn Portúgal, 3:0, á Alg- arve-mótinu í Portúgal í mars á þessu ári. Stofnað: 1999. Heimavöllur: Akureyrarvöllur. Aðsetur félags: Hamar, félagsheim- ili Þórs v/Skarðshlíð, 603 Akureyri Sími: 461-2081. Fax: 462-2381. Netfang: toti@thorsport.is. Heimasíða: www.thorsport.is. Framkvæmdastjóri: Þórólfur Sveinsson. Þjálfari: Dragan Kristinn Stoj- anovic. Aðstoðarþjálfari: Siguróli Krist- jánsson. Sjúkraþjálfari: Tinna Stefánsdóttir. Formaður kvennaráðs: Nói Björns- son. Íslandsmeistari: Aldrei. Bikarmeistari: Aldrei. Deildabikarmeistari: Aldrei. Þór/KA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.