Morgunblaðið - 09.05.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 09.05.2008, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ KR og Valur skáru sig nokkuð úr í spá forráðamanna félaganna og kemur það líklegast ekki á óvart enda eru flestir þeirrar skoðunar að Reykjavíkurrisarnir séu með best mönnuðu liðin. KR er spáð titlinum en Valur á Íslandsmeistaratitil að verja en KR veitti Hlíðarendaliðinu mjög harða keppni á síðustu leiktíð. Spáin í Landsbankadeild kvenna er þessi: 1. KR.........................................283 2. Valur ....................................278 3. Breiðablik............................240 4. Keflavík ...............................192 5. Stjarnan...............................172 6. Fylkir ...................................134 7. Þór/KA ................................105 8. Afturelding ...........................86 9. HK/Víkingur ........................81 10. Fjölnir ....................................79 Hrefna Huld Jóhannesdóttir framherji KR-inga sagði við Morgunblaðið að vissulega væri hún sammála spánni. ,,Nei, í sjálfu sér kom þessi spá- dómur mér ekki á óvart. Við háð- um hörkurimmu við Val í fyrra og á undirbúningstímabilinu höfum við skipst á að vinna. Ég vil meina að við séum með betra lið heldur en í fyrra og mætum sterkari til leiks,“ sagði Hrefna. Spurð hvort í vændum sé ein- vígi KR og Vals um titilinn og ekkert annað lið geti blandað sér í þá baráttu sagði Hrefna; ,,Nei, ég er eiginlega ekki alveg sammála þeim sem hafa sagt þetta. Ég get alveg séð fyrir mér að Breiðablik geti blandað sér í þessa baráttu. Mér finnst Blikarnir koma sterk- ari til leiks en í fyrra og af eigin reynslu veit ég að Vanda Sig- urgeirsdóttir er mjög fær þjálfari sem nær oft því besta út úr leik- mönnum sínum. Þá held ég Kefla- vík og Stjarnan geti alveg strítt okkur og Val í sumar,“ sagði Hrefna. Um eigin markmið í sum- ar og hvort hún ætli sér ekki að skora fullt af mörkum sagði Hrefna: ,,Svo framarlega sem við vinnum leikina og tökum titilinn þá er mér alveg sama hver skorar. Ég mun reyna að nýta mín mark- tækifæri eins vel og ég get og spila eins vel fyrir liðið og ég get.“ Þjóðin tippar á Val Á kynningarfundinum var einn- ig kynnt skoðanakönnun frá Capacent Gallup. Spurt var í henni: 1.100 manns voru í úrtak- inu á aldrinum 16 til 75 ára. Nið- urstaðan afgerandi. Flestir spáðu Val titlinum eða 54,7%. KR var með 15,8% og Breiðablik 15,7%. KR og Valur skáru sig úr Stofnað: 1988. Heimavöllur: Fjölnisvöllur. Aðsetur félags: Íþróttamiðstöðin Dalhúsum 2, 112 Reykjavík. Sími: 567-2085. Fax: 587-44584. Netfang: fjolnir@fjolnir.is. Heimasíða: www.fjolnir.is. Framkvæmdastjóri: Málfríður Sigurhansdóttir. Þjálfari: Theódór Sveinjónsson. Aðstoðarþjálfari: Magnús Guð- mundsson. Liðsstjóri: Eyjólfur Hilmarsson. Formaður knattspyrnudeildar: Ás- geir Heimir Guðmundsson. Íslandsmeistari: Aldrei. Bikarmeistari: Aldrei. Deildabikarmeistari: Aldrei. Ungmenna- félagið Fjölnir Elísa Ósk Viðarsdóttir, byrjuð aftur Kim Lisun frá Bandaríkjunum Kristin Hextall frá Bandaríkjunum Kristin Sotak frá Bandaríkjunum Carolyn Warhaftig til Bandaríkj- anna Edda M. Birgisdóttir í Stjörnuna Elín H. Gunnarsdóttir í Stjörnuna Fanný Ragna Gröndal í Fylki Guðný Jónsdóttir í Stjörnuna Hrefna Lára Sigurðardóttir til Danmerkur Meagan DeWan til Bandaríkjanna Sigrún Eva Jónsdóttir í Fylki   *+   Andrés Ellert, sem hefur verið með liðið síðustu árin, varð að hætta af persónilegum ástæðum og ég tók við 1. mars. Við fórum því ekkert til útlanda og við erum búin að hafa lítinn tíma - það er að segja ég, en ég tek við góðu búi. Þetta hefur verið ágætt nema hvað að mínar hugmyndir eru ekki enn komnar í gegn, en góðir hlutir ger- ast hægt eins og sagt er,“ sagði Theódór. Spenningur í stelpunum „Stelpurnar er mjög spenntar að reima á sig skóna og hlaupa út á grasið og berjast fyrir lífi sínu í deildinni. Við eigum svona frekar von á að vera í baráttunni á þeim endanum og ætlunin er að tryggja stöðu sína í deildinni og byggja upp til fraḿtiðar hér í Grafarvoginum,“ sagði Theódór. Leikmenn Fjölnis hafa verið til- tölulega lausir við meiðsli í vetur og gerir Theódór ráð fyrir því að allir leikmenn hans verði tilbúnir í fyrsta leik. Theódór er hóflega bjartsýnn Eftir Ingibjörgu Hinriksdóttur „Undirbúningstímabilið hjá okkur var ekki beint hefðbundið því fyrir sumarið. „Þetta er mitt fyrsta ár sem aðalþjálfari í efstu deild kvenna og verkefnið verður ekki auðvelt, en hópurinn er þéttur og samheldinn. Ég lít ekki svo á að ég standi einn í þessu verkefni heldur er þetta fyrir allan hópinn og það er það sem skiptir máli í þessu öllu saman.“ Theódór segir að liðið muni fá liðstyrk frá Bandaríkjunum en þaðan er von á þremur leikmönn- um. Erum alveg á jörðinni Fjölnir hefur orðið fyrir nokkr- um skakkaföllum frá síðasta sumri þar sem sterkir leikmenn hafa yf- irgefið liðið, m.a. Elín Heiður Gunnarsdóttir sem var fyrirliði Fjölnis á síðustu leiktíð. Aðspurður sagði Theódór að væntingarnar til sumarsins væru hóflegar. „Við er- um alveg á jörðinni, við stefnum engu að síður að því að styrkja stöðu okkar í deildinni og byggjum upp til framtíðar. Við erum með marga góða unga leikmenn innan okkar raða sem eiga eftir að spila stórt hlutverk í sumar. Í liðinu eru margar stelpur með stórt Fjöln- ishjarta og það á eftir að hjálpa okkur mikið,“ sagði Theódór Svein- jónsson, þjálfari Fjölnis. Ljósmynd/Ingibjörg Hinriksdóttir Tilbúin í slaginn Theódór Sveinjónsson, þjálfari Fjölnis, Sonný Lára Þráinsdóttir, Erla Þórhallsdóttir, fyrirliði, Helga Franklínsdóttir og Kristrún Kristjánsdóttir. Theódór Sveinjónsson, nýr þjálfari Fjölnis í Grafarvogi „Við byggjum upp til framtíðar“ THEÓDÓR Sveinjónsson stýrir nú liði Fjölnis og er hann á sínu fyrsta ári sem aðalþjálfari í efstu deild en áður hefur hann aðstoðað þjálfara Vals, El- ísabetu Gunnarsdóttur. Lið Fjölnis er, líkt og nokkur önnur lið í deildinni, skipað tiltölulega ungum leikmönnum en meðalaldur liðsins er 19,3 ár. %&   ' ?     -(' $    0    C A $     $  0     & A +        ./    'F  ,+   ! '(#+     ' M 1244 1249 1244 1221 1249 1242 1245 1228 1227 1228 1242 1249 86 8 86 15 6 76 6 6 6 6 6 6 8 1 1 6 6 5 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 6 1 ;( ,' ./0   /    ;  4 1: 1 '- ,. 7 3 2 11 15 13 76 75 79 73 ,0/23- ,. 8 : 5 9 16 78 7: 74 ' '- ,. ?) 1249 71 6 6 > 0? +    #,(#        & /#          " /     & %/     &!0 &!    1243 1243 1249 1248 1226 1244 1226 1221 9 1 6 87 5 16 6 6 6 6 6 6 6 1 6 6 4   B     % C  D

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.