Morgunblaðið - 09.05.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.05.2008, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ    Stofnað: 1950. Heimavöllur: Kópavogsvöllur. Aðsetur félags: Smárinn, Dals- mára 5, 201 Kópavogi. Sími: 510-6404. Fax: 554-0050. Netfang: knattspyrna@breidablik- .is. Heimasíða: www.breidablik.is. Stuðningsmannasíða: www.blik- ar.is. Þjálfari: Vanda Sigurgeirsdóttir. Aðstoðarþjálfari: Jóhannes Karl Sigursteinsson. Liðsstjóri: Magnús Valdimarsson. Sjúkraþjálfari: Jófríður Halldórs- dóttir. Framkvæmdastjóri: Svavar Jós- efsson. Formaður knattspyrnudeildar: Einar Kristján Jónsson. Íslandsmeistari: (15) 1977, 1979, 1980, 1981, 1982, 1983, 1990, 1991, 1992, 1994, 1995, 1996, 2000, 2001, 2005. Bikarmeistari: (9) 1981, 1982, 1983, 1994, 1996, 1997, 1998, 2000, 2005. Deildabikarmeistari: (5) 1996, 1997, 1998, 2001, 2006. Ungmennafélagið Breiðablik Elín Anna Steinarsdóttir, byrjuð aftur Elsa Hlín Einarsdóttir frá Þrótti R. Erna B. Sigurðardóttir, byrjuð aftur Harpa Þorsteinsdóttir frá Stjörn- unni Sigríður B. Þorláksdóttir frá Hetti Guðrún Sóley Gunnarsdóttir í KR Jill Mansfield til Bandaríkjanna Kathryn Moos til Bandaríkjanna Laufey Björnsdóttir í Fylki Mette Olesen til Danmerkur Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, hætt   *+   Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson thorkel@mbl.is „Sumarið leggst bara mjög vel í mig. Mikil stemning í hópnum og fyrir mig persónulega finnst mér þetta bara svo ótrúlega gaman, að vera farin að þjálfa aftur, og það í úrvalsdeild og hjá Breiðabliki. Ég hef ekkert þjálfað í úrvalsdeildinni síðan ég var með KR 2003. Staðan á hópnum hjá mér er mjög góð. Erna B. Sigurðardóttir er að koma aftur eftir meiðsli – eft- ir að hafa slitið krossbönd síðasta vor. Petra, sem var markvörður okkar í fyrra og einnig markvörður í nítján ára landsliðinu, er meidd og óvíst hvort hún nær að leika í sum- ar, en við erum búin að fá Elsu, sem varði markið hjá Þrótti, til að standa í markinu hjá okkur í sum- ar. Breiðablik var með yngsta liðið í deildinni í fyrra og liðið er auðvitað ennþá mjög ungt. Stelpurnar hafa öðlast reynslu síðan þá. Elín Anna Steinarsdóttir er að koma aftur eftir barneignarleyfi og svo er Þuríður Þorláksdóttir einnig að koma á ný í hópinn og það má segja að hún lyfti aðeins upp með- alaldrinum í hópnum. Að mínu mati er Breiðablik með frábæran hóp, sem er ætlunin að hlúa vel að. Markmiðið hjá okkur í sumar er að veita Val og KR harða keppni og vera samkeppnishæf við þessi öfl- ugu lið. Á pappírunum – þegar landsliðsmennirnir eru taldir í lið- unum – á þetta ekki að vera hægt, en knattspyrnan er óútreiknanleg og það er allt hægt á góðum degi. Ég vil ekki nefna neitt ákveðið sæti sem markmið í sumar. Við munum gera okkar besta. Að mínu mati er mjög gott að það skuli vera tíu lið í deildinni í sumar. Það hefur fjölgað verulega í deildinni síðan ég var þjálfari síð- ast, fyrir fimm árum. Ég finn fyrir miklum breytingum – knattspyrna kvenna hefur tekið mjög miklum framförum á síðustu fimm árum. Stúlkurnar sem leika nú með lið- unum eru mjög vel þjálfaðar, enda leggja þær meira á sig við æfingar en áður. Svo er tækni þeirra og leikskilningur mjög góður. Við erum að hugsa aðallega um tvennt hjá okkur í Breiðabliki fyrir þetta tímabil; að vera í mjög góðri líkamlegri æfingu – við höfum æft grimmt til að ná því – og þá er það skipulag. Það er mikill áherslu- punktur hjá okkur að vera vel skipulagðar. Ég get ekki annað en verið bjart- sýn. Það er mikill spenningur fyrir sumrinu. Ég er með sigurlið fram- tíðarinnar í höndunum,“ sagði Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari Breiðabliks. Vanda Sigurgeirsdóttir er farin að þjálfa á nýjan leik og stjórnar Blikunum „Er með sigurlið fram- tíðarinnar í höndunum“ VANDA Sigurgeirsdóttir, fyrrver- andi leikmaður Breiðabliks og þjálfari landsliðsins, er einhver reyndasti þjálfari landsins í kvennaknattspyrnu. Vanda mun þjálfa Breiðablik í sumar, en fimm ár eru síðan hún þjálfaði síðast í efstu deild kvenna. Morgunblaðið/Sverrir Fögnuður Hér sjást fjórar stúlkur úr Breiðabliki fagna marki síðasta sumar. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Vanda Sigurgeirsdóttir ásamt dótt- ur sinni, Þórdísi Dóru Jakobsdóttur. ' ,        0   , % $0    & *     + (/      '   '    'F/     * &    & % +   ? ? +       (/      1242 1244 1243 1248 1233 1226 1242 1249 1244 1247 1226 1227 7: 82 97 28 54 18 : 4: 7 166 71 : 6 1: 89 :: 14 : 6 8: 6 51 8 6 6 6 76 : 6 6 6 2 6 71 6 6 6 6 7 6 6 6 1 77 ;( ,' ./0 & ' &    @    +   ;  7 12 78 1 '- ,. 8 3 2 16 11 14 76 79 73 ,0/23- ,. : 5 9 19 13 74 ' '- ,. ?) 1248 1244 :4 81 6 6 6 6 '  @ $   ,+0& ' $   !      $.*   * /  +   ! ("#     1244 1244 124: 1245 1242 1249 7 85 38 73 19 8 6 6 : 8 1 6 4   B     % C  D „KVENNAKNATTSPYRNAN ryður sér mjög til rúms um allan heim, og ávallt fjölgar þeim löndum sem taka kvennaknattspyrn- una upp á stefnuskrá sína,“ segir í ársskýrslu Knattspyrnu- sambands Íslands í lok árs 1972, en það ár fór fram fyrsta Ís- landsmót kvenna utanhúss og urðu FH-ingar Íslandsmeistarar. Til að þrýsta á að Íslandsmótið færi fram gaf Gull og silfur bik- ar til að keppa um og var hann afhentur á stjórnarfundi hjá KSÍ. Í ársskýrslu KSÍ segir um þennan atburð: „Í keppni þessari var keppt um bikar sem verslunin Gull og silfur, Reykjavík, gaf, en bikarinn afhenti Sigurður Steinþórsson, eigandi verzlunarinnar, stjórn KSÍ, að gjöf til að keppa um á Ís- landsmóti kvenna utanhúss. Við athendingu bikarsins til stjórnar KSÍ, þakkaði formaður KSÍ [Albert Guðmundsson], blaðamanni Tímans, Sigmundi Ó. Steinarssyni, fyrir áhuga hans á kvenna- knattspyrnu, en hann átti mjög ríkan þátt í að bikarinn var gef- inn.“ FH-stúlkurnar lögðu Ármann í úrslitaleik, 2:0. Anna Lísa Sig- urðardóttir skoraði bæði mörkin. Fyrst keppt um Gull- og silfurbikarinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.