Morgunblaðið - 23.05.2008, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Audi A4 | Hvað segja hinir?
Á vefsíðu bresku sjónvarpstöðv-
arinnar Channel 4 getur að líta
ítarlega dóma um flesta nýja bíla.
Þar hlýtur nýr Audi A4 góða
dóma eða fjórar af fimm stjörn-
um í heildareinkunn. Segir þar
meðal annars: „Nýi A4 er mynd-
arlegur og klár.“ Þá skorar bíll-
inn hátt í öllum þáttum hvort
sem um ræðir öryggi, gæði, akst-
urseiginleika, þægindi eða end-
ursölu.
Channel 4
Þýska tímaritið Auto Motor und
Sport geymir á vefsíðu sinni dóm
um nýjan Audi A4 með 1,8 lítra
vél. Þar er bílnum gefnar þrjár
stjörnur af fimm mögulegum.
„Óvenjulega mikil þróunarvinna
hefur verið lögð í nýjan Audi A4,“
segir í dómnum. Þá segir grein-
arhöfundur að markmið framleið-
andanna sé augljóst en það sé að
bjóða upp á besta lúxusbílinn í
millistærðarflokki.
Auto Motor und Sport
Nýi Audi A4 fær prýðilega einkunn
frá danska tímaritinu Bilmagasinet
sem lesa má á vefsíðu ritsins. Þar
fær bíllinn fimm af sex mögulegum
stjörnum og segir í dómnum að bíll-
inn sé „ekki gallalaus en sam-
anlagðir kostir A4 eru miklir.“ Í
greininni er bílnum sérstaklega
hrósað fyrir þægindi og útlit og
segir greinarhöfundur að bíllinn sé
í rauninni mun fallegri í veru-
leikanum heldur en á myndum.
Bilmagasinet
Nýverið kynnti Hekla nýj-ustu útgáfu Audi A4-bílsins, skömmu eftir aðhinn nýi og gullfallegi
A5 hafði stigið fram á sjónarsviðið.
Svo virðist sem hann hafi fengið
talsvert af fegurðinni lánað frá A5-
bílnum, er í raun sláandi líkur.
Reyndar ætlar kynning Audi á nýj-
um bílum engan endi að taka, en á
næsta ári verður Q5, litli bróðir
jeppans Q7, hleypt af færibönd-
unum og ekki talið ólíklegt að Audi
trappi sig síðan niður og kynni Q3
og að lokum Q1. Þá gerast jeppar
að öllum líkindum ekki minni. Hin
klassíska lína fólksbíla Audi, A3,
A4, A6 og A8, fær þó áfram að
blómstra og nýjar kynslóðir þeirra
stíga stöðugt fram á sviðið og sú
minnsta bætist væntanlega í fjöl-
skylduna á þarnæsta ári, nefnilega
A1. Núna í maí mun A4 Avant,
langbakur (station), verða kynntur
í Þýskalandi og S4, kraftaútfærsla
A4, í desember. Það verða vænt-
anlega fáir óánægðir með nýja
kynslóð Audi A4, þá áttundu í röð-
inni, en í sem fæstum orðum er
hann lúxusbíll af minni gerðinni. Á
undanförnum árum hefur Audi
staðið fyrir mikil gæði og aksturs-
ánægju en fyrir það þarf að borga.
Spræk vél
Bíllinn sem prufaður var er með
1,8 lítra túrbóvél og skilar 160
hestöflum í framhjólin. Þessi vél
dugar bílnum mjög vel og er
spræk, á að skila honum á upp-
gefnum 8,6 sekúndum í hundraðið,
en í prufuakstri með einn farþega
var hann reyndar mældur á 8,0
sekúndum. Þó gerðist lítið fyrstu
sekúnduna, það gætir talsverðs
„turbolag“ þegar bíllinn er botn-
aður, en eftir það er vinnslan feiki-
góð. Hröðunin er mjög þétt og jöfn
allt upp í dónalegar hraðatölur,
alltaf skemmtileg hraðaaukning.
Audi A4 er líka í boði með 3,2 lítra
265 hestafla bensínvél og 2 lítra
143 hestafla og 2,7 lítra 190 hest-
afla díselvélum. Verðið er frá 4,2
milljónum fyrir beinskiptan 1,8
bensínbíl upp í 7,3 milljónir fyrir
3,2 lítra bensínbílinn sem einungis
kemur með tiptronic-sjálfskiptingu.
Prufubíllinn var sjálfskiptur og
kostar kr. 4.560.000 hrár en í hann
var búið að troða feikimiklu af
aukahlutum og var þá verð hans
komið í kr. 6.345.000. Fágun ein-
kennir A4 að ytra sem innra útliti.
Hann er þónokkuð breyttur í ytra
útliti frá forveranum og kippir tals-
vert í kynið við BMW 3-línuna, sér
í lagi að aftan. En gullfallegur er
hann, reyndar eins og aðrar gerðir
Audi um þessar mundir. Nefið, eða
fremsti hluti bílsins, er nokkuð sér-
stakt með útstandandi vindkljúf
sem sækir útlit og vafalaust virkni
til Formúlu 1-bíla.
Eintóm akstursánægja
Ekki þarf lengi að aka hinum
nýja Audi A4 áður en hann er orð-
inn mikill vinur ökumanns. Hann
steinliggur og líður hljóðlaust um
götur borgarinnar og langar að
fara um hana mun hraðar en lögin
leyfa. Bíllinn er sérlega vel hljóð-
einangraður og veghljóð nánast
ekkert. Ekki skemmdi reyndar fyr-
ir að njóta í leiðinni Bang & Oluf-
sen-hljóðkerfisins, sem er auka-
búnaður og inniheldur 14 hátalara.
Það má leggja mikið á A4 og
beygjur á talsverðri ferð vefjast
ekki fyrir honum. Fjöðrun bílsins
er alveg einstök, en hann étur
hreinlega allar misfellur og erf-
iðustu hraðahindranir. Frábær
sætin fara einkar vel með ökumann
og það síðasta sem mann dreymir
um að gera er að enda ökutúrinn,
slík er ánægjan. Eitt kom þó að-
eins á óvart, en stýrið er nokkuð
stíft og sker sig aðeins úr akstri á
A6- og A8-bílum Audi. Þó er það
mjög nákvæmt og venst vel. Mikill
tæknibúnaður er innifalinn í hinum
nýja A4. Audi Drive Select-kerfið
tryggir kvika og fullkomna stjórn
yfir bílnum og er þannig skynvætt
að það lærir á ökumanninn. Audi
Side Assist- og Audi Line Assist-
kerfin tryggja öruggari og ánægju-
legri akstur. Af einum lúxusnum
enn má nefna að sætin eru loft-
kæld.
Audi A4 er hlaðinn útbúnaði og
þægindum. Þar mætti til dæmis
nefna 6,5 tommu litaskjá þar sem
stjórna má öllum stillingum í bíln-
um, sem eru fjöldamargar. Hiti í
framsætum, leðurklætt aðgerða-
stýri, loftfrískunarkerfi, rafstýrð
handbremsa, regnskynjari á rúðu-
þurrkum, ESP-stöðugleikastýring,
hraðastillir, 10 hátalara hljóðkerfi
og margt fleira er staðalbúnaður í
Audi A4 en er það ekki í flestum
öðrum bílum. Öllu er afar hag-
anlega komið fyrir og innréttingin í
heild sérlega falleg. Þá kemur
hann „standard“ á 16 tommu fal-
legum álfelgum. Einn af þeim
aukahlutum sem voru í prufubíln-
um var fjarlægðarskynjari að
framan og aftan og mikið var ég
feginn þegar ég fann takkann þar
sem hægt er að aftengja þennan
búnað sem mér leiðist mjög og tel
næsta óþarfan fyrir óblinda. Auk
þess slekkur hann á útvarpinu sem
mér fannst ansi pirrandi. Verra var
þó að aftengja varð búnaðinn í
hvert skipti sem bíllinn var ræstur.
Það kemur skemmtilega á óvart að
opna farangursrýmið, en það er
merkilega stórt í bíl í þessum
stærðarflokki og gerir hann hæfan
til lengri ferðalaga. Í ferðalögum
þarf líka að vera gott rými fyrir
aftursætisfarþega og er það mjög
viðunandi fyrir fullorðna. Þarna
hefur verið gerð mikil bragarbót
frá forveranum, en lenging bílsins
milli kynslóða hefur greinilega öll
farið í að rýmka til fyrir aftursæt-
isfarþega.
Hörð samkeppni
Audi A4 á sína helstu keppinauta
í BMW 3- og Mercedes C-línunni,
bílum á sama verðbili, álíka vel
búnum og með álíka marga val-
kosti er kemur að vélbúnaði. Bíla-
blaðamenn um allan heim keppast
við að mæra alla þessa bíla og sitt
sýnist hverjum um hver þeirra ber
höfuðið hæst. Ekki skal hér fella
dóm um slíkt, en ef undirritaður
var Audi-aðdáandi fyrir prufuakst-
ur þessa nýja A4, þá hefur ekkert
slegið á þá aðdáun. Hér er stór-
kostlegur bíll á ferð, nokkuð dýr en
hverrar krónu virði.
Lítill lúxusbíll
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Lúxusbíll Framhluti bílsins er nokkuð sérstakur að sjá með útstandandi vindkljúf.
Vél: 1,8 lítra, 4 strokka
með túrbínu
Hestöfl: 160
Hröðun:
8,6 sek. í 100 km hraða
Hámarkshraði: 218 km
Lengd: 4.703 mm
Breidd: 1.826 mm
Hæð: 1.427 mm
Þyngd: 1.410 kg
Eyðsla:
7,4 l í blönduðum akstri
Útblástur:
179 CO2 (g/km)
Verð: 4.560.000 kr
Umboð: Hekla
Audi A4
REYNSLUAKSTUR
Audi A4
Finnur Orri Thorlacius
Innrýmið Bíllinn er sérlega vel hljóðeinangraður og veghljóð nánast ekkert.
Aðgengi Búnaði er afar haganlega
komið fyrir í fallegri innréttinginu.
Afturendinn Útlit afturendans kipp-
ir talsvert í kynið við BMW 3-línuna.