Morgunblaðið - 23.05.2008, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 2008 7
bílar
Eftir Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
SEXTÍU ár eru í
haust frá því Citroën
Deux Chevaux (2CV)
bíllinn leit fyrst dags-
ins ljós á götum
Frakklands, en lands-
mönnum leist ekki of
vel á gripinn í fyrstu.
Jafnframt eru 18 ár
frá því síðasti bíllinn af
um fimm milljónum
smíðuðum rann af
framleiðslulínunni.
Vegna tímamótanna hefur verið
opnuð sýning í vísindasafninu í París
(Cité des Sciences) sem tileinkuð er
afmæli „braggans“, eins og bíllinn
hefur löngum verið uppnefndur á Ís-
landi.
Þar eru smíðiseintök frá ýmsum
tíma, allt frá meinlætislega gráum bíl
frá 1948 upp í „Charleston“-
stælbílinn frá níunda áratugnum.
Fyrir augu ber hvernig bíllinn hefur
þróast og breyst í áranna rás þó að
ytri línur hafi í aðalatriðum haldið
sér. Einnig er gerð grein fyrir ýms-
um nýjungum sem Citroën hefur
fundið upp um dagana.
Þar má sjá strigasætin gömlu sem
kippa mátti úr bílnum í lautarferðum
svo vel færi um menn úti í nátt-
úrunni. Líka langa bensínfetilinn
sem var í fyrstu módelunum svo
bændur gætu ekið bílnum í trékloss-
unum sem þeir klæddust jafnan.
Setjast má upp í bíl og finna hina
miklu færslulengd sem var í fjöðrun
2CV-bílsins en sú útfærsla kom sér
vel á ferðalögum á misjafnlega vel
viðhöldnum sveitavegum.
Traustur og bilar sjaldan
Meðal hönnunarforsendna bragg-
ans var að hann væri „lítill fjögurra
sæta bíll er gæti ekið yfir plægðan
akur með eggjakörfu í aftursætinu
án þess að neitt þeirra brotnaði“.
Upphaflega var hann hugsaður sem
ódýrt farartæki fyrir efnalítið dreif-
býlisfólk með sæti fyrir fjóra.
Í sýningarskránni segir að með
uppsetningunni sé pínulítill og
tæknilega framúrstefnulegur bíll er
þjónaði kynslóðum notenda heiðr-
aður. Blaðið Le Monde segir sýn-
inguna „tilfinningalega lofgjörð“.
Blaðið sagði einnig: „Allt annað en að
dást að bílnum er erfitt, miðað við þá
þjónustu sem hann innti af hendi og
þær minningar sem honum tengj-
ast.“
Allir núlifandi Frakkar á miðjum
aldri og eldri eiga minningar tengdar
2CV-bílnum. Hann reyndist traustur
og bilaði sjaldan, var ódýr í rekstri.
Segja má að hann hafi enst vel því
vart líður sá dagur að maður sjái
ekki „bragga“ á ferð. Einkum þó úti
á landi, í sveitum, t.a.m. á Bret-
aníuskaganum þar sem hann þjónar
ennþá eigendum sínum – yfirleitt
öldruðu bændafólki – vel.
Á eftirstríðsárunum komu fram
litlir fólksbílar sem áttu eftir að
verða nokkurs konar þjóðartákn og
ná miklum vinsældum. Jafnvel langt
út fyrir landsteina viðkomandi ríkja.
Ítalir fengu Fiat 500, Þjóðverjar
bjölluna frá Volkswagen, Bretar
mínibílinn frá Austin og Frakkar
framdrifna „tvíhófinn“ eins og marg-
ir nefna 2CV-bílinn. Þar er óbeint
skírskotað til þess að framan af var
hann knúinn tveggja strokka, 375
rúmsentimetra og níu hestafla loft-
kældum mótor.
Stöðutákn víða um heim
Langlífi Citroën-bílsins er annálað
og einungis bjallan stenst honum
snúning í þeim efnum. Báðir bílarnir
voru fundnir upp fyrir seinna stríðið.
Fyrstu 2CV-bílarnir, sem Citroën
nefndi reyndar TPV, voru tilbúnir til
að fara á markað sumarið 1939.
Citroën greip hins vegar til þess
ráðs að eyðileggja nær alla bílana
hundrað sem tilbúnir voru svo að
þeir féllu ekki í hendur innrásarherja
nasista. Nokkrir voru faldir á sveita-
bæjum og í geymsluskúrum. Komu
fyrstu bílarnir af þessari földu frum-
smíð ekki fram í dagsljósið fyrr en
árið 1968.
Þrír TPV-bílar í mjög góðu ásig-
komulagi fundust árið 1998 undir
heyi í hlöðu við gamla æfingabraut
Citroën við Ferté-Vidame í héraðinu
Eure-et-Loir. Vöktu þeir mikla at-
hygli á fornbílasýningu í París sama
ár.
Þegar 2CV-bíllinn birtist svo í sýn-
ingargluggum bílasala í París 14.
október 1948 og fór þar með á al-
mennan markað var hann ögn nú-
tímalegri en frumsmíðin. Bíla-
blaðamönnum þótti hann þó
gamaldags og hálfúreltur og almenn-
ingur hafði í fyrstu efasemdir um bíl-
inn. En ekki leið á löngu þar til al-
menningur tók ástfóstri við
braggann vegna einfaldleikans. Áður
en varði var fimm ára biðlisti eftir
bílnum.
Á sjöunda áratugnum og síðar
þjónaði 2CV-bíllinn eigendum sínum
í öllum löndum Evrópu og í Suður–
Ameríku. Og hann var í lykilhlut-
verki í margri kvikmyndinni, þar á
meðal í Bond-myndinni „For Your
Eyes Only“ frá árinu 1981 og í
„Apocalypse Now“. Að því kom að
franski fátæklingabíllinn varð að
stöðutákni víða um heim. Jafnvel á
Íslandi.
Framdrifni tvíhófinn Langlífi Citroen „braggans“
er annálað og aðeins bjallan stenst honum snúning.
Citroën-bragginn sextugur
NISSAN X-TRAIL ELEGANCE ÁRG. '06
ek. 32 þús. km., sjálfssk., leður, rafm. í
sætum, krókur, spoiler, v+s dekk á felgum.
Uppl. í síma 864 3801.
MMC ÁRG. '04 EK. 62 ÞÚS. KM, 1800 ÞÚS.
Góður bíll, fjórhjóladrifinn á heilsárs-
dekkjum, sjálfskiptur með cruise control.
Verð 1800 þús., áhv. 1600 þús., afb. ca 35
þús. á mán. Uppl. Viggó s. 662 4472.
KAWASAKI KXF 250, 2007,
ekið 40 tíma, nýr stimpill. Mjög flott hjól.
Upplýsingar gefur Ottó í síma 823 5368.
Jeppar
TOYOTA RAV4, ÁRG. 2003,
ekinn 83 þús km, beinsk. fimm dyra.
Vetrardekk fylgja, vel með farinn bíll.
Verð 1.290 þús. Uppls. í s: 692 2010.
SPARIBAUKUR, SUZUKI JIMNY ´99,
ek. 120 þ. km. Mjög góður og vel með far-
inn, stórlækkað verð, ekinn 120.000 km,
fjórhjóladrif, hátt og lágt drif, er á grind,
rafdrifnar rúður, samlæsingar, ný tíma-
reim, bremsur nýlegar, nýir spindlar, nýjar
framhjólalegur, ABS, höfuðpúðar að aft-
an, líknarbelgir, loftkæling, reyklaust
ökutæki. S. 895 1961.
LAND ROVER FREELANDER,
árg ´03, ekinn 81.000 km. Fæst á 290.000.-
og yfirtöku á láni frá Lýsingu kr. 1.036.000.-
afborgun pr. mán. 20.000.-
Upplýsingar í síma 896 3362.
Bílar óskast
YFIRTAKA Á ERLENDU LÁNI ÓSKAST!
Óska eftir rúmgóðum jeppa eða skutbíl
með góðum stgr. afslætti gegn yfirtöku á
erl. láni + allt að 1 mkr í pening.
Upplýsingar sendist á
jeppioskast@btinternet.com
Húsbílar
VANDAÐUR ECONOLINE HÚSBÍLL
Ford E350 XL árg. ´98, 5.4 L bensín, ssk,
ek. 75000 míl., vel búinn. Innfl. 2004. Hár
toppur, filmur, gasmiðst. og fl. Verð 2,7 mil.
Uppl. í síma 692 3420.
Hópbílar
FORD TRANSIT
Ford Transit 19 farþ. rúta, árg. 2005, ekin
55 þús. km, verð 3,5 millj. Góður bíll.
Uppl. í síma 869-0678.
Bílasmáauglýsingar 569 1100
Bílar
Smáauglýsingar
sími 569 1100
Fréttir
á SMS