Morgunblaðið - 19.06.2008, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 19. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
viðskipti/athafnalíf
!"
Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, net-
fang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Björgvin Guðmundsson, frétta-
stjóri, bjorgvin@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími
5691110 Prentun Landsprent ehf.
LJÓST má
telja að ráða-
menn Eimskips
hafi í upphafi
ekki litið vanda
dótturfélagsins
Innovate jafn al-
varlegum augum
og nú, að sögn
Sindra Sindra-
sonar, stjórnar-
formanns félagsins. Félag í meiri-
hlutaeigu Sindra, Otec Investment,
keypti í lok mars hlutabréf í Eim-
skip að virði 70 milljóna króna, en
vitneskja um málið lá þá þegar fyrir
stjórn félagsins. Sama dag var einn-
ig tilkynnt um kaup Guðmundar
Davíðssonar, forstjóra Eimskips á
Íslandi, fyrir um 20 milljónir króna.
Sindri segir upplýsingarnar ekki
hafa haft áhrif á kaupin, þau hafi
verið eðlileg hreyfing á markaði.
Hann kveðst ekki hafa áhyggjur af
fjárfestingunni. Málið sé auðvitað
áfall, en félagið sé traust og verði
það áfram. Eimskip mun afskrifa
um níu milljarða króna vegna Innno-
vate.
Fjármálaeftirlitið hefur tekið mál-
ið til skoðunar, að sögn Írisar Bjark-
ar Hreinsdóttur, upplýsingafulltrúa
FME. Hún segir þó of snemmt að
greina frekar frá málavöxtum.
Kauphöllin hefur einnig sent
spurningar um málið til Eimskips.
„Kjarni málsins er hvort fyrirtæk-
inu hafi verið heimilt að þegja yfir
þessu máli frá því í febrúar,“ segir
Þórður Friðjónsson, forstjóri kaup-
hallarinnar.
Að sögn Þórðar starfar kauphöllin
með FME eftir því sem eftirlitið
óskar hverju sinni, en framgangur
rannsóknar sé alfarið undir verk-
stjórn FME. Reynt verður að ljúka
málinu af hálfu kauphallarinnar í
þessum mánuði, en beðið verði svara
frá Eimskip áður en málsatvik verði
metin. halldorath@mbl.is
Engin áhrif á 90
milljóna viðskipti
Mál Eimskips til skoðunar hjá FME
Vandinn alvarlegri en talið í upphafi
Sindri Sindrason
FRÉTTASKÝRING
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
FJÖLMIÐLAFYRIRTÆKIÐ 365
hf. tilkynnti í gær að stjórn þess
muni leggja til við hluthafafund um
mánaðarmótin að félagið verði af-
skráð úr kauphöllinni. Í tilkynning-
unni kemur fram að 85% hluthafa fé-
lagsins hafi þegar samþykkt af-
skráninguna og því er ljóst að 365
verður ekki skráð félag öllu lengur.
Þar með verður 365 áttunda félag-
ið sem óskar eftir afskráningu úr
kauphöllinni það sem af er ári. Gangi
samruni Kaupþings og Spron eftir
verða þau níu. Á sama tímabili hefur
einungis eitt fyrirtæki verið skráð.
Hvað veldur?
Eðlilegt er að velta vöngum yfir því
hvað veldur þessum mörgu afskrán-
ingum. Horfur í efnahagslífinu eru
vissulega ekki bjartar en það á við
víðar en hér á landi. Í löndunum í
kringum okkur hefur afskráningum
lítið fjölgað á milli ára, a.m.k. í Bret-
landi og Svíþjóð. Því má ætla að
flóttinn úr kauphöllinni sé ekki bein
afleiðing efnahagsaðstæðna, nema
þá að úthaldsleysi fjárfesta valdi
flóttanum líkt og rætt hefur verið.
Því má leiða líkur að því að ástæð-
urnar séu að einhverju leyti aðrar.
Þá má velta vöngum um hvort þau
fyrirtæki sem hafa óskað eftir af-
skráningu, fyrir utan þau sem hafa
verið afskráð vegna samruna, hafi
átt eitthvert erindi í kauphöllina. Í
þessu samhengi er mikilvægt að hafa
í huga að stærð þarf alls ekki að
skipta máli. Í kauphöllum heimsins
er aragrúi smáfyrirtækja skráð sem
mörg hver pluma sig vel og hafa mik-
ið gagn af skráningunni.
Úr dagsljósinu
Nokkur þeirra fyrirtækja sem nú
hafa ákveðið að yfirgefa kauphöllina
hafa átt í erfiðleikum og voru jafnvel
lent í þeim áður en þau voru skráð.
Ætla má að tilgangur skráningar
hafi í einhverjum tilvikum einfald-
lega verið sá að afla ódýrs fjár. En
hvað vinnst með afskráningu?
Eins og einn viðmælenda Morgun-
blaðsins orðaði það: „Það eina sem
fyrirtækin hafa upp úr því að fara út
er að þau losna við dagsljósið og geta
sleikt sárin.“ Þó ber að hafa í huga að
töluverður kostnaður fylgir því að
vera skráð fyrirtæki auk þess sem
upplýsingaskylda getur reynst
mörgum óþægileg.
Flótti úr kauphöllinni
#
$
%
&
'##( '##(
Í HNOTSKURN
» Þau sjö fyrirtæki sem þeg-ar hafa óskað eftir af-
skráningu eru: FL Group,
Flaga, Icelandic Group, OMX,
Skipti, Tryggingamiðstöðin
og Vinnslustöðin.
» Á fyrri helmingi ársins2007 var ekkert fyrirtæki
afskráð í kauphöllinni.
Sjö fyrirtæki hafa óskað eftir afskráningu úr kauphöllinni það sem af er árinu
365 bætist brátt í hóp þeirra og líklegt má telja að Spron fari sömu leið
BRÚ II Venture Capital, fjárfest-
ingarsjóður í eigu Straums og nokk-
urra lífeyrissjóða, auk annarra, hef-
ur keypt hlut í Voice Commerce
Group, bresku upplýsingatæknifyr-
irtæki sem sérhæfir sig í þróun
lausna fyrir greiðslumiðlun á netinu
og netviðskipti með farsíma.
VCG var stofnað árið 2005 og hef-
ur m.a. þróað veflausnina Engage,
sem styður sýndarsamfélög á net-
inu. Jafnframt á fyrirtækið dótt-
urfélagið VoicePay, sem veitir þjón-
ustu sem nýtir raddauðkennistækni
til að tryggja greiðsluöryggi á net-
inu.
Brú II Venture Capital verður
einn stærsti hluthafi fyrirtækisins
og mun Gísli Hjálmtýsson, fram-
kvæmdastjóri Thule Investments,
taka sæti í stjórn VCG, en Thule
annast rekstur og umsýslu Brú II
Venture Capital. bjarni@mbl.is
Morgunblaðið/G.Rúnar
Stjórnarmaður Gísli Hjálmtýsson
mun taka sæti í stjórn VCG.
Brú II fjár-
festir í
Bretlandi
INNFLUTNINGUR Kínverja frá
Íslandi á fyrstu þremur mánuðum
ársins nam samtals um 6,6 millj-
ónum dala og jókst hann um tæp
2% á milli ára. Þetta kemur fram í
frétt kínversku fréttastofunnar
Xinhua.
Þar segir jafnframt að í mars
hafi útflutningur héðan til Kína
numið um 2,5 milljónum dala en í
sama mánuði í fyrra tæpum 2,4
milljónum dala. Nemur aukningin
á milli ára í mars því um 6,2%.
Heildarútflutningur til Kína árið
2007 nam 35,6 milljónum dala.
sverrirth@mbl.is
Útflutningur
til Kína eykst
NASDAQ OMX Group, móð-
urfélag kauphallarinnar á Íslandi,
kynnti í gær vísitölur afleiðu-
viðskipta með losunarheimildir á
koltvísýringi og mun það vera fyrsta
vísitala sinnar tegundar í heiminum.
Um er að ræða tólf vísitölur með
mismunandi áherslum, en und-
irliggjandi eru viðskipti með los-
unarheimildir byggðar á reglum
Evrópusambandsins og á reglum
Kyoto-samningsins, en í tilkynningu
segir að viðskipti með losunarheim-
ildir á öðrum grunni geti verið tekin inn í vísitölurnar þegar nægilega mik-
il viðskipti eru komin með heimildirnar.
Bob Greifeld, forstjóri Nasdaq OMX segir að vísitölurnar muni auðvelda
viðskipti með losunarheimildir og einfalda fólki að meta stöðu á markaði
með losunarheimildir. bjarni@mbl.is
Fyrsta losunarvísitalan
Kolanáma Mikið magn koltvísýr-
ings verður til við brennslu kola.
Reuters
ís -húsið
S: 566 6000
Netverslun ishusid.is
Var heitt
í fyrra?
Vertu undirbúinn
fyrir sumarið.
-Loftkæling
-Viftur
-Uppgufunarkælar