Morgunblaðið - 24.07.2008, Page 1
fimmtudagur 24.
7. 2008
viðskipti mbl.is
viðskipti
Það er dásamlegt þegar fjölskylda getur unnið samhent saman » 8
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
VERÐMÆTI BYR sparisjóðs nem-
ur 58,2 milljörðum króna samkvæmt
mati Capacent, sem lagt hefur verið
fyrir stjórn sparisjóðsins.
Jón Þorsteinn Jónsson, stjórnar-
formaður Byrs, segist vera ágætlega
sáttur við þetta verðmat. Ýmis fyr-
irtæki séu metin lægra en markaðs-
virði og öfugt. Að öðru leyti vill hann
lítið tjá sig um matið og segir það
verða til umræðu á fundi stofnfjár-
eigenda í haust. Áætlað er að halda
fundinn 27. ágúst nk.
Verðmatið miðast við rekstur
BYRs fyrstu þrjá mánuði þessa árs
og stöðuna eins og hún var 31. mars
sl. Síðan þá hefur verðmæti fjár-
málafyrirtækja lækkað mikið.
Í undirbúningi er að breyta BYR í
hlutafélag. Til umræðu er hversu
stór eignarhlutur stofnfjáreigenda
verður og hve stóran hlut sjálfseign-
arstofnun BYRs eignast. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins munu
stofnfjáreigendur eiga um 90% í
BYR en sjálfseignarstofnunin ráða
yfir 10% hlutafjár.
Gangi þetta eftir munu stofnfjár-
eigendur eignast að andvirði 52
milljarða króna en 6 milljarðar króna
falla sjálfeignarstofnuninni í skaut.
Er þá miðað við verðmat Capacent.
Miðað við viðskipti með stofnfjár-
bréf BYR undanfarið er markaðs-
verðmæti sparisjóðsins rétt undir 43
milljörðum króna og því töluvert
undir mati Capacent. Gengið í síð-
ustu viðskiptum með stofnfjárbréf
var 1,25 samkvæmt MP banka.
Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðs-
stjóri BYRS, segir þetta gengi það
lægsta sem sést hafi í langan tíma.
Gengi stofnfjárbréfa hafi undanfarið
rokkað á milli 1,3 og 1,7. Sé miðað við
gengið 1,7 er markaðsvirði BYRs
tæpir 58 milljarðar króna.
Verðmat Byrs
58 milljarðar
Stofnfjáreigendur eignast 90% í BYR
hlutafélagi og sjálfseignarstofnun 10%
ÞEIM hefur fjölgað undanfarið sem fara í verslun IKEA í Garðabæ til að
fá sér kjötbollur í hádegismat, en maturinn í matsal IKEA þykir afar góður
og ekki spillir fyrir að hann er afar ódýr. Þegar herðir að í efnahagsmálum
er því ekki undarlegt að Íslendingar, sem þurfa nú að halda fastar um
budduna, leggi leið sína í sænskættað eldhús verslunarinnar.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Kreppukjötbollur
BANDARÍSKI tölvuleikjafram-
leiðandinn Zynga, sem framleiðir
fría tölvuleiki fyrir samfélagssíður
á borð við Facebook, MySpace og
Bebo, hefur nú fengið liðsstyrk í
formi sjóðsins Kleiner Perkins Cau-
field & Buyers. Hefur sjóðurinn
ásamt smærri fjárfestum, lagt um
29 milljónir dala, jafnvirði um 2,3
milljarða króna í fyrirtækið.
Í Wall Street Journal er fjárfest-
ingin talin merkileg, þar sem sjóð-
urinn sem lagði fé í bæði Google og
Amazon meðan vefirnir voru að
slíta barnsskónum, hefur hingað til
forðast að leggja fé í samfélagslega
vefi. Talsmenn sjóðsins hafa hins
vegar trú á Zynga, sem þeir segja
að hafi fundið lykilinn að því að
framleiða leiki sem eru bæði ávana-
bindandi og með hraða útbreiðslu á
vefnum. sigrunrosa@mbl.is
Veðja á tekjur
af fríum tölvu-
leikjum
ÚRVALSVÍSITALAN í Kaup-
höllinni á Íslandi hækkaði um 1,1% í
gær og var lokagildi hennar 4.159
stig. Mest hækkun varð á hlutabréf-
um Teymis, 6%, og þá hækkuðu
bréf Eikar Banka um 2,4%. Hluta-
bréf íslensku viðskiptabankanna
þriggja hækkuðu í gær, í Kaup-
þingi um 1,5%, Landsbankanum
1,1% og Glitni 0,9%.
Bréf tveggja félaga lækkuðu í
gær, í Atorku um 0,7% og Føroya
Bank um 0,3%. gretar@mbl.is
Hækkun í
Kauphöllinni
Byr sparisjóður tók til starfa í
apríl 2006 við samruna Spari-
sjóðs vélstjóra og Sparisjóðs
Hafnarfjarðar. Í nóvember 2007
var samruninn við Sparisjóðs
Kópavogs formfestur. Fjórði
sparisjóðurinn bættist við í apr-
íl á þessu ári þegar Sparisjóður
Norðlendinga, SPNOR, bættist í
hópinn. Byr hagnaðist um 7,9
milljarða króna á árinu 2007.
Fjórir sparisjóðir