Morgunblaðið - 24.07.2008, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 24.07.2008, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ viðskipti/athafnalíf Eftir Snorra Jakobsson sjakobs@mbl.is V iðskiptavild hefur auk- ist gríðarmikið í efna- hagsreikningum ís- lenskra fyrirtækja á síðustu árum. Stefán Svavarsson endurskoðandi segir að það séu sterkar vísbendingar um að stjórnendur fari ekki að leikregl- unum ef taprekstur er á fyrirtæk- inu og menn haldi inni einhverri viðskiptavild í bókunum. Ágúst Heimir Ólafsson, yfirmaður fjár- málaráðgjafar Deloitte, segir að væntanlega muni vera verulegar afskriftir á viðskiptavild á næstu 2 árum. Samfara útrás íslenskra fyr- irtækja hefur vægi svokallaðrar viðskiptavildar aukist mikið. En hvað er viðskiptavild? Viðskiptavild er í raun afgangsstærð sem verður til við kaup á félagi eða samruna. Viðskiptavild er óefnisleg eign sem fyrirtæki hefur keypt og er vitni um hæfi fyrirtækis til að ávaxta sig betur en gengur og gerist meðal fyrirtækja í sömu atvinnugrein. Það sem felst í skilgreiningunni er að viðskiptavild er aðeins í fyr- irtækjum sem ávaxta sig betur en gerist og gengur meðal sambæri- legra fyrirtækja, framtíðarhagn- aður fyrirtækisins verður því að vera umfram almenna ávöxtun. Svokölluð viðskiptavild er yfir helmingur eigna sumra fyrirtækja í Kauphöll Íslands. Fyrirtæki sem hafa mikla viðskiptavild eru því undir miklum þrýstingi að sýna fram á mun meiri arðsemi og hagn- að en fyrirtæki í sama rekstri. Viðskiptavild mikil Viðskiptablað Morgunblaðsins skoðaði ársreikninga nokkurra fyr- irtækja í Kauphöllinni og tók sér- staklega út rekstrarfélög en við- skiptavild er hátt hlutfall heildareigna meðal rekstrarfélaga. Þau félög sem skoðuð voru eru Öss- ur, Marel, Bakkavör, Eimskip og Atorka en öll félögin eiga það sam- eiginlegt að hlutfall viðskiptavildar af heildareignum er hátt. Hæst er hlutfallið hjá Össuri og Bakkavör þar sem viðskiptavild er rúmlega 53% heildareigna. Lægst er það hjá Atorku 16,3%. Í þessum fimm félögum hefur viðskiptavild farið úr 33 milljörðum í lok árs 2004 upp í 227 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2008. Þessi þró- un er líklega ekkert einsdæmi fyrir félög í Kauphöllinni. Fara ekki að leikreglum? Í skýringartöflu hér á síðunni má sjá spár greiningardeildar Glitnis og Kaupþings um afkomu félag- anna. Þremur af fimm félögum er spáð tapi og neikvæðri arðsemi á þessu ári. „Það er þversögn í því að halda viðskiptavildinni óhreyfðri í bókhaldinu ef reksturinn sem henni tengist er í núlli, í tapi eða með lít- illi arðsemi,“ segir Stefán Svav- arsson endurskoðandi. „Það eru sterkar vísbendingar um það að stjórnendur hafi ekki farið að leik- reglum ef það er taprekstur á fyr- irtækinu og menn halda inni ein- hverri viðskiptavild í bókunum af því að þeir vilja ekki afskrifa við- skiptavildina í gegnum reksturinn.“ Afskriftir í niðursveiflu Stjórnendur fyrirtækja sem vilja spila eftir leikreglunum virðast því neyðast til að afskrifa viðskiptavild ef fyrirtæki þeirra skilar lítilli arð- semi eða tapi. Þetta þýðir að slæmt uppgjör verður enn verra. „Núna, þegar niðursveifla verður er ekkert greiðsluflæði sem stendur undir viðskiptavildinni svo að væntanlega ættu að vera verulegar afskriftir á viðskiptavild á næstu 2 árum,“ seg- ir Ágúst Heimir Ólafsson, yfirmað- ur fjármálaráðgjafar Deloitte. Hundruð milljarða Þau félög sem hafa mesta við- skiptavild af framangreindum fé- Slæm uppgjör gætu orð Félög í Kauphöllinni gætu neyðst til að afskrifa tugi milljarða af viðskiptavild Eftir Halldóru Þórsdóttur halldorath@mbl.is VIÐ höfum ferðast mikið, og þegar börnin eru með í för er oft erfitt að vera á hótelher- bergjum, svo við fórum að leita að öðrum leiðum,“ segir Ragnar Fjalar Sævarsson, sem ásamt konu sinni, Sesselíu Birgisdóttur, stofnaði íbúðaleiguna Red Apple Apartments nú í vor. „Við reyndum að finna íbúðir á net- inu og rákum okkur á að það var hreint ekk- ert auðvelt. Við ákváðum því að skapa ramma utan um þessa hugmynd, þar sem fólk getur leitað, bókað og greitt fyrir íbúðina á nokkrum mínútum og allt á einum stað.“ Red Apple Apartments býður nú íbúðir til leigu í Reykjavík og Kaupmannahöfn. Á næstunni bætast við Stokkhólmur, Osló og Helsinki, vonandi seinni hlutann í ágúst, og að sögn Ragnars er hugmyndin að færa sig svo sunnar í álfuna. „Viðtökurnar hafa verið frábærar og við höfum fengið viðskiptavini frá yfir tuttugu löndum úr öllum heimshornum, Ástralíu, Bandaríkjunum, Suður-Ameríku og víðar. Það hefur greinilega verið ávöntun á þessu sviði þar sem fólk hefur ákveðna tryggingu fyrir þjónustu og gæðum.“ Búa innan um innfædda Margir kjósa heldur að vera í íbúð en á hót- elherbergi erlendis, en að sögn Ragnars er fólk gjarnan að leita eftir meira sjálfstæði, auknu rými og eldunaraðstöðu. Þá er algengt að nokkur pör leigi saman íbúð. Síðast en ekki síst leita til Red Apple fyrirtæki og fólk í viðskiptaerindum. Fólk sem ferðast saman, vill sitt sérherbergi en getur nýtt íbúðina sem vinnuaðstöðu. Um þrjú þjónustustig er að ræða, allt frá íbúðum þar sem gestirnir sjá sjálfir um sín þrif, eldamennsku og annað slíkt, yfir í þjón- ustu á við hótel þar sem öll þrif, móttaka og jafnvel sundlaug eru innifalin. Verðskráin miðast fyrst og fremst við hótelin, en Ragnar segir íbúðirnar jafnan ódýrari og stundum þó nokkuð ódýrari. Umhverfið og aðstæðurnar eru líka allt aðrar. „Ólíkt því sem gengur og gerist á hótelum er fólk þarna inni í íbúðahverfum sem gerir því kleift að búa eins og innfæddir, versla við kaupmanninn á horninu og fleira í þeim dúr.“ Algjörlega hreyfanleg á netinu Ragnar og Sesselía reka Red Apple Ap- artments frá Lundi í Svíþjóð, en stofnun fyr- irtækisins var hluti af praktísku meist- aranámi Ragnars í frumkvöðlafræðum þar í borg. Red Apple er hins vegar skráð á Ís- landi, en fyrirtækið er alfarið rekið á netinu. „Við höfðum ákveðið að stofna fyrirtæki og settum því viss skilyrði. Eitt þeirra var að við gætum verið algjörlega hreyfanleg. Við velt- um því nokkuð fyrir okkur hvar fyrirtækið ætti að vera staðsett, í Danmörku, Svíþjóð, á Íslandi eða Írlandi, þar sem er mjög hagstætt skattaumhverfi. En svo vildum við borga að- eins til baka og ákváðum að skrá fyrirtækið heima á Íslandi.“ Auk íbúðaleigunnar heldur Red Apple úti bloggsíðum fyrir borgirnar, þar sem sagt er frá helstu viðburðum og alls konar dægra- dvöl svo eitthvað sé nefnt. „Þetta er mikil vinna alla daga, öll kvöld og allar helgar. En við höfum fengið fram- úrskarandi viðbrögð frá fólki sem gerir þetta skemmtilegt,“ segir Ragnar. Kjósa íbúð fram yfir hótelherbergi Stofnað í vor Sesselja Birgisdóttir og Ragnar Fjalar Sævarsson stofnuðu íbúðaleiguna Red Apple Apartments síðastliðið vor, og bjóða nú íbúðir til leigu í Reykjavík og Kaupmannahöfn. http://www.redappleapartments.com/ http://redapplereykjavik.wordpress.com/ http://redapplecopenhagen.wordpress.com/ Hvað er viðskiptavild? Viðskiptavild er óefnisleg eign sem einungis verður til við samruna fé- laga. Viðskiptavild er stundum köll- uð yfirverð. Yfirverð er útreiknuð stærð sem er afleiðing kaupverðs að frádregnum þeim eignum sem eru innan félagsins. Hvað er virðisrýrnunarpróf? Samkvæmt alþjóðlegum reiknings- skilastaðli (IAS 36) skal gera virð- isrýrnunarpróf á viðskiptavild eigi sjaldnar en á 12 mánaða fresti. Prófið verðmetur viðskiptavildina með því að nota áætlað framtíðar- sjóðstreymi félags; ef verðmatið er hærra en bókfært virði eignarinnar skal bókfært virði standa óbreytt í bókum félagsins, hinsvegar ef verð- matið reynist lægra en bókfært virði skal færa niður bókfært virði sem því nemur. Meðhöndlun viðskiptavildar í ársreikningum Viðskiptavild er meðhöndluð líkt og aðrar langtímaeignir að því und- anskildu að þær eru ekki afskrifaðar yfir ákveðinn árafjölda. Við- skiptavild er eign með óskilgreindan líftíma. S&S

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.