Morgunblaðið - 20.11.2008, Qupperneq 4
4 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
Arnór Smára-son, leik-
maður Hee-
renveen í
Hollandi, var í
fyrsta skipti í
byrjunarliði
landsliðsins í
knattspyrnu í
gær, gegn Möltu,
en þetta var hans þriðji A-
landsleikur. Sölvi Geir Ottesen kom
inn í liðið og spilaði sinn fyrsta
landsleik síðan í október 2005. Helgi
Valur Daníelsson var í byrjunarliði
Íslands í fyrsta skipti síðan í febr-
úar 2006.
Garðar Jóhannsson kom inn ásem varamaður fyrir Heiðar
Helguson á 68. mínútu og spilaði
sinn fyrsta A-landsleik. Heiðar var
þá nýbúinn að skora sitt 8. mark í
43 landsleikjum. Með innáskiptingu
Garðars fjölgaði landsliðsfeðgum Ís-
lands því faðir hans, Jóhann Hreið-
arsson, lék einn landsleik árið 1980.
Hann lék lengi með Þrótti í Reykja-
vík og er leikjahæsti leikmaður fé-
lagsins í efstu deild.
Eiður Smári Guðjohnsen varðmarkahæsti leikmaður lands-
liðsins árið 2008 með 3 mörk. Heið-
ar Helguson, Gunnar Heiðar Þor-
valdsson og Tryggvi Guðmundsson
gerðu 2 mörk hver.
Andri Steinn Birgisson, leik-maður Grindavíkur í fótbolta,
hefur ákveðið að ganga til liðs við
Asker í norsku 2. deildinni, sem er
þriðja efsta deildin þar í landi. Hann
æfði hjá félaginu fyrir nokkru ásamt
Atla Heimissyni úr ÍBV. Hjá Asker
er Selfyssingurinn Guðjón Þorvarð-
arson aðstoðarþjálfari.
Fólk sport@mbl.is
Eftir Guðmund Hilmarsson
gummih@mbl.is
,,Ég er fyrst og fremst ánægður
með að hafa unnið leikinn. Við vor-
um betri aðilinn allan tímann en
okkur gekk illa að skapa opin færi.
Vörnin okkar hélt hins vegar vel því
að Möltumennirnir fengu nánast
engin færi,“ sagði Ólafur Jóhann-
esson landsliðsþjálfari í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Heiðar skoraði markið á 66. mín-
útu þegar hann komst inn í send-
ingu aftur til markvarðar og það
reyndist sigurmarkið í leiknum.
,,Ég var ánægður með Heiðar.
Hann var mjög duglegur og vann
vel fyrir markinu,“ sagði Ólafur.
Ólafur sagði að völlurinn hefði
verið mjög blautur og fyrir vikið
hefðu sendingarnar ekki gengið
sem skyldi. Spurður hvort tekist
hafi að skerpa á sóknarleiknum eins
uppleggið var fyrir leikinn sagði
Ólafur: ,,Ekki eins og ég hefði vilj-
að. Við vorum svolitlir klaufar á
boltanum en þó sáust fínir kaflar í
leiknum þar sem bakverðirnir kom-
ust upp völlinn. Ég hefði viljað sjá
það oftar í leiknum, það var jákvætt
að vinna og fá ekki á sig mark,“
sagði Ólafur.
Ánægður með Sölva og Garðar
Garðar Jóhannsson lék sinn
fyrsta landsleik í gær þegar hann
leysti Heiðar Helguson af hólmi síð-
ustu 25 mínúturnar og þá spilaði
Sölvi Geir Ottsesen í fyrsta skipti
undir stjórn Ólafs. ,,Sölvi stóð sig
mjög vel í vörninni og ég var
ánægður með hann og eins með
Garðar. Hann kom sterkur inn í
leikinn og báðir sýndu það sem við
vonuðumst eftir af þeim.“
Nú var þetta tólfti og síðasti
landsleikurinn á árinu. Ert þú
ánægður með árangurinn?
,,Já, ég er nokkuð sáttur og það
er fleira sem ég er ánægður með en
óánægður. Mér hefur fundist liðið
vera að bæta sig örlítið í hvert
skipti og ég er sérlega ánægður
með leikina fjóra í undankeppninni
þó svo að það hafi verið vonbrigði
að fá ekki eitthvað út úr Skota-
leiknum. Ég er búinn að skoða
marga leikmenn eins og ég ætlaði
mér að gera. Nú bý ég yfir miklu
meiri upplýsingum heldur en ég
hefði haft ef ég hefði ekki farið
þessa leið.“
Ólafur segir að unnið sé í því að
útvega landsliðinu leik hinn 11.
febrúar þegar næsti alþjóðlegi leik-
dagur er á dagskrá. ,,Vonandi geng-
ur það því ég tel mjög mikilvægt að
fá verkefni áður en undankeppnin
hefst á nýjan leik,“ sagði Ólafur en
Íslendingar mæta Skotum á Hamp-
den Park í næsta leik sínum í und-
ankeppni HM hinn 1. apríl.
,,Það var jákvætt að vinna
og fá ekki á sig mark“
HEIÐAR Helguson tryggði Íslend-
ingum 1:0 sigur á Möltubúum í vin-
áttuleik á Hibernians Ground-
vellinum í Paola á Möltu í gær. Heiðar
skoraði sigurmarkið um miðjan
seinni hálfleikinn í tólfta og síðasta
leik íslenska landsliðsins á þessu ári
þar sem uppskeran var 5 sigrar, 5 töp
og 2 jafntefli. Ísland skoraði 13 mörk
í leikjunum tólf og fékk á sig tólf.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigurmarkið Heiðar Helguson skoraði mark Íslands á Möltu í gær sem reyndist sigurmark leiksins. Þetta var áttunda landsliðsmark Heiðars í 43. leiknum
Heiðar Helguson tryggði íslenskan sigur á Möltu í síðasta landsleik ársins
Í HNOTSKURN
»Ísland hefur nú sigraðMöltu 10 sinnum í 14
landsleikjum þjóðanna. Malta
hefur unnið þrívegis, síðast
1:0 í febrúar, og einu sinni hef-
ur orðið jafntefli.
» Ísland vann 5 af 12 lands-leikjum sínum á árinu,
gerði 2 jafntefli og tapaði 5
leikjum. Liðið skoraði 13 mörk
og fékk á sig 12.
» Ísland leikur næst gegnSkotlandi í undankeppni
HM í Glasgow 1. apríl 2009.
Eftir Skúla Unnar Sveinsson
skuli@mbl.is
LANDSLIÐSKONURNAR í
knattspyrnu, Edda Garðarsdóttir
og Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir úr
KR, fara til Svíþjóðar í byrjun
næsta mánaðar til að kíkja á að-
stæður hjá Örebro, sem varð í sjö-
unda sæti í efstu deild þar í landi á
síðustu leiktíð.
„Við förum í byrjun desember
og kíkjum á þetta hjá þeim og æf-
um með liðinu í tvo daga,“ sagði
Edda í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Það er auðvitað draumurinn
að geta lifað sem atvinnumaður í
fyrir sig. Þegar maður sá riðilinn
hugsaði maður bara með sér: „Vá,
allar sterkustu þjóðirnar nema
Svíþjóð!“ Það verður gaman að
kljást við franska liðið aftur, leik-
menn þess eru fremur leiðinlegir,
klípa og gefa olnbogaskot þannig
að það verður gaman að mæta
þeim aftur,“ sagði Edda.
úrslitakeppni Evrópumótsins í
Finnlandi síðsumars 2009.
„Maður vill auðvitað gera allt
sem hægt er til að vera í sem
bestu standi á Evrópumótinu. Mér
líst bara vel á það mót. Þetta eru
bara stelpur eins og við og óþarfi
að gera meira úr því en það. Ef við
höldum rétt á spilunum og gerum
það sem okkur er sagt þá getum
við unnið hvaða lið sem er, sama
þó að það séu heimsmeistararnir,“
sagði Edda.
„Við erum með þvílíkt breytt og
betra lið frá því síðast var leikið
við Þjóðverja og stefnan hjá okkur
er auðvitað að vinna hvern leik
kíkjum á þetta enda nauðsynlegt
að skoða allar aðstæður og því um
líkt áður en lengra er haldið, ég
hef reynslu af því. Ég fór nefni-
lega til reynslu hjá Fortuna í
Þýskalandi fyrir nokkrum árum og
var voða spennt. Síðan kom í ljós
að það var ekkert þarna og ekkert
um að vera og svo átti ég að búa í
íbúð með fimm stelpum held ég.
Það er því mikilvægt að skoða
hlutina áður en maður tekur
ákvörðun.“
Bara stelpur eins og við
Þær Edda og Ólína eru báðar í
íslenska landsliðinu sem leikur í
hálft ár fyrir Evrópukeppnina og
einbeitt sér bara að fótbolta. Þá á
maður meiri séns á að bæta sig.
Hér heima er ég að vinna 8 til 10
tíma á dag. Við skoðum þetta og
við förum ekki út nema það séu
betri aðstæður þar – við förum
ekki bara til að fara. Við förum
ekki þangað til að lepja dauðann
úr skel í Svíþjóð, frekar gerum við
það hér heima,“ sagði Edda.
Spurð hvort eitthvað fleira væri
á prjónunum hjá þeim sagði Edda:
„Það er bara KR. Við vitum í raun
ekki hvort þetta á eftir að ganga
eftir en það er áhugi hjá þeim og
hann virðist raunverulegur. Við
Edda og Ólína fara til Örebro
Æfa og skoða aðstæður í desember Draumur að einbeita sér að fótbolta
Útrás Edda Garðarsdóttir og Ólína
G. Viðarsdóttir kíkja á Örebro.
Malta – Ísland 0:1
Hibernians Ground, Möltu, vináttulands-
leikur karla, úrvalsdeild karla, miðvikudag-
inn 19. nóvember 2008.
Mark Íslands: Heiðar Helguson 66.
Skilyrði: Sól og blíða og 20 stiga hiti.
Lið Íslands: (4-4-2) Gunnleifur Gunnleifs-
son (Árni Gautur Arason 46.) – Birkir Már
Sævarsson, Sölvi Geir Ottesen, Hermann
Hreiðarsson, Indriði Sigurðsson (Bjarni
Ólafur Eiríksson 73.) – Arnór Smárason,
Aron Einar Gunnarsson (Davíð Þór Við-
arsson 68.), Helgi Valur Daníelsson, Emil
Hallfreðsson (Guðmundur Steinarsson 79.)
– Veigar Páll Gunnarsson (Pálmi Rafn
Pálmason 46.), Heiðar Helguson (Garðar
Jóhannsson 68.)
Eggert G. Jónsson kom ekki við sögu.
Gul spjöld: Heiðar 53. (stimpingar)
Lið Möltu: (4-4-2) Andrew Hogg (Mario
Muscat 46.) – Ken Scicluna (Roderick
Briffa 46.), Brian Said, Andrei Agius, Clay-
ton Failla – Daniel Bogdanovic, Andre
Schembri (Ian Azzopardi 70.), George
Mallia (Ryan Fenech 46), Ivan Woods
(Alex Muscat 46.) – Etienne Barbara (Jean
Triganza 76.), Michael Mifsud.
Dómari: Andrea Demarco (Ítalíu).
Áhorfendur: Um 500.