Skinfaxi - 01.05.1910, Blaðsíða 5
SKINFAXI
61
Hér fer á eftir stuttur útdráttur úrfundar-
gerð þessari:
1. Samþykt að gefa kost á að þreyta íþróttir
þessar: Isl. glímu, grísk-rómv. glímu, tafl
með lifandi mönnum, reipdrátt, kapplilaup,
kappgöngu, hástökk, langstökk og handa-
hlaup. Einnigverðaá leiksvæðinu hringir,
kaðlar og trétil þess að vekja eftirtektá þeim
áhöldum og til notkunar þeim er óska,
2. Ákveðið að gefa öllutn félögum í áð-
nefndum sýslum, er íþróttir iðka, kost á
að taka þátt í íþróttunum með hlutfalls-
legri hluttöku í kostnaðinum.
3. Samþ. að bjóða ungm.fél. Skaftfellinga
að vera með á móti þessu, og néfndinni
falin framkv. á því.
4. Samþ. að kjósa nefnd þriggja manna til
að semja reglur fyrir verðlaunagripinn,
og voru kosnir: Skúli Skúlasony Odda,
Þorst. Jónsson, Hrafntóftum, og Elías
Þórðarson, Hjallanesi.
5. Samþ. að gripur sá, er' ísl., giíman er
verðlaunuð með, kosti a. m. k. 50. kr.
6. Samþ. að fela nefndinni að útvega 2—3
menn, er flytji stutt erindi á móti þessu.
Fyrst um íþróttir og svo um ungm.fél,-
málefnj.
7. Samþ, að halda mót þettalaugardaginn
9. júU 1910, og skal það hafið ld. 10xj2
árdegis, —
8. Samþ. að hvert félag sendi 2 menn
minst til hluttöku og 1 mann til aðstoðar
nefndinni á mótinu, og skal hann vera
kominn á íþróttast. kl. 7 árdegis,
9. Samþ, að í dómnefnd séu 4 bændúr,
2 úr hvorri sýslu Árness. og Rangár-
valla, en oddamaður einn af bestuglímu-
mönnum »Ármanns« í Reykjavík, og
dæmir hún um allar íþróttir, sem reynd-
ar eru,
10. Samþ. að halda alm. umræðufund á
eftir íþróttunum til að ræðaýms málefni
ungmennafélaganna, sem sameiginleg eru.
Einuig var kosin nefnd þrigja manna til
að athuga og koma með tillögur um,
hvort gerlegt sé að stofnainnbyrðissam-
band meðal allra U. M. F. austanfjalls.
Kjörnir vóru í nefnd þessa: Ouðl. t>órð-
arson, Króktúni, Porst. Þórarinnsson, Drumb-
oddsstöðum og Kristinn Ögmundsson, Hjálm-
holti.
Ýms málefni önnur vóru til umræðu á
fundinum, og var nefndinni falið að sjá um
fullnaðarákvarðanir .þeirra, t. d. búning
íþróttamanna á mótinu, söng o. fl. -—■
Fundur þessi fór vel fram, og yóru mörg
málefni rædd af miklu fjori, einkum íþrótt-
irnar. Er það talandi vottur þess að nú sé
að vakna nýjar framfarir í íþróttalífi þjóðar-
innar; og víst er uih það, að margir ungir
menn hér um sveitii: hafa góðan hug á að
afla Ser fræðslu í ýmsum greinum íþróttanna.
Nefndinni hefir verið það fullljóst, að eigi
'sé við fullkomnun að búast, hvað íþróttirn-
ar snertir svona fyrst í stað, þar sem fæstir
ungm.féfagar til sveita hafa átt kost á að
kynnast þeim að nokkurum mun, heldur er
hitt tilgangurinn að gefa ' æskumönnunum
kost á að kynnást hinúm óbrotnustu leik-
fimisáhöidum og notkun þeirra.
Að loknum fundinum skrifaði nefndin
ungm.félögum Skafífeilingá, og var bréfið
stflað til búnaðarnámskeiðsins íVík í Mýrdal
og falið hr. ráðanaut Sig. Sigurðssyni til
umsjónar, og má vænta göðs frá honurn
sem stuðningsmanni ungm.fél., svo sem hvers
góðs félagsskapar.
Eigi er oss fullkunnugt um undirtektir
Skaftfellinga, en væntum góös af þeim, því
oss er fullkunnugt um marga áhugasama
starfsmenn þar eystra.
f mars 1910.
K Ö.
Frá fjórðungsþíngi
U. M. F. Norðlendinga 1910
• t ' •' ' • • 1
■ . (agrip).
Þingið var haldið 8., ,9. og 10. mars. Þingið
sátu 9 fulltrúar frá 8 sanibandsfélögunl, og einn
félagi utan sanibandsins.
Þessar eru helstar ályktanir og samþyktir frá
þinginu:
1. Samþykt um íþróttamót:
»U. M. F. »Ófeigur í Skörðuni«, sem boðist