Skinfaxi - 01.05.1910, Blaðsíða 6
62
SKINFAXI
hefir til þess að taka að sér íþróttamótið þetta
ár, er falin framkvæmd þessa máls með þeim
skilyrðum, er hér eru greind:
a. Að íþróttamótið sé haldið 17. júní í sumar.
b. Að stjórn fjórðungsins skipi hæfan mann
til þess að hafa yfirumsjón íþróttanna á
hendi.
c: Að þessar íþróttir séu þreyttar: Glímur, sund,
stökk, hlaup og knattleikar ef því verður
við komið.
Félaginu er og að sjálfsögðu heimilt að láta
þreyta fleiri íþróttir, ef að það sér sér fært.
Fjórðungsstjórninni er skylt að veita félaginu
alla þá aðstoð í þessu máli, er það óskar og
hún getur í té látið.
2. Samþykt um leikvöll á Akureyri.
Fjórðungsþ. Norðl. telur æskilegt, að leikvöllur
til íþróttaiðkana og sýninga verði bygður á Akur-
eyri hið fyrsta. Felur það fjórðungsstjórn að láta
gera áætlun um það, hvað leikvöllur mundi kosta,
sem eigi væri minni en 4 vallardagsláttur að
flatarináli og girtur þéttri girðingu 6 feta hárri.
— — Fjórðungsþingið felur stjóminni að sækja
um styrk til Ieikvallarins bæði til bæjarstjórnar
Akureyrarkaupstaðar og sýslunefndar Eyjafjarð-
arsýslu, 200 krónur til bæjarstjórnarinnar, auk
ókeypis lands fyrir leikvöllinn, og 200 krónur til
sýslunnar.
3. Þingsályktun um samvinnu milli fjórðungs-
sambandsins og U. M. F., er standa fyrir utan
sambandið.
— — Fjórðungsþingið skorar á fjórðungsstjórn-
ina að leita samvinnu við þau félög utan sam-
bandsins, er vinna að líkum inálum og samband-
ið, að svo miklu leyti, sem lög samb. heimila.
Þau mál, er þingið telur líklegt að samvinna
geti tekisl um, eru: íþróttamál, skóggræðslumál,
þegnskylduinál og fyrirlestramál.
Samþykt með öllum alkv.
4. Ályktun um íþróttamál.
Fjórðungsþingið vill styðja það á allan hátt,
að Norðlendingar geti sent 2—4 menn á beltis-
glímuna næsta vor, þótt það geti ekki að svo
stödu ákveðið að veita fé til þess.
5. Samþyktir um fyrirlestrarmál.
a. Fjórðungsþing Norðlendinga heitir 100 kr.
fjárframlagi til fyrirlestra í fjórðungnum
næsta vetur gegn því, að samband U. M.
F. í. veiti 50 krónur.
6. Samþykt meðmæli með styrkbeiðnum til
U. M. F. í.
7. Ályktun um tóbaksbindindi:
Þingið skorar á öll U. M. F. innan takmarka
fjórðungsins að sporna á móti tóbaksnautn af
fremsta megni, og leggur tii, að þau stofni hjá
sér tóbaksbindindisdeildir. — — —
S. Samþyktir um skógrækt:
1. Fjórðungsþingið felur fjóröungsstjórn að
skrifa öllum U. M. F. innan takmarka fjórðungs-
ins. Skal hún hvetja þau til að koma upp hjá
sér gróðurreitum, og gefa þeim að svo miklu
Ieyti sem hægt er, upplýsingar um, hverjar trjá-
plöntur muni vera best fallnar til ræktunar. Sömul.
að taka að sér að útvega þær þeim fél., sem
þess óska, t. d. frá sambandsstj., og semja við
Ræktunarfélag Norðurlanda um kaup á plöntum
með sein lægstu verði. Ennfremur felur þingið
henni að vekja eftirtekt á tveimur leiðarvísum
í skógrækt, sem nú eru til, eftir Helga Valtýsson
og Sigurð Sigurðsson skólastjóra á Hólum.
Tekinn skal upp sameiginlegur skógræktardagur
fyrir fjórðunginn. —----
9. Ályktun um aðflutningsbann áfengis:
Þrátt fyrir það, þótt sumum kunni að virðast
það vafasamt, livort lög um aðflutningsbann á-
fengra drvkkja, er samþykt voru af alþingi 1.
maí 1909, liafi verið heppilegasta úrræðið til
þess að leysa þjóðina undan oki vinnautnar-
innar, telur fjórðungsþingið það skyldu hvers
góðs drengs, sem vill styðja heill þjóðarinnar, að
vinna að því á allan hátt, að þeim lögum verði
sem best hlýtt í hvívetna. Þessvegna skorar
það á öll ungmennafélög innan fjórðungssam-
bandsins, að beita sér fyrir málið á þann hátt
að vernda lögin, að svo miklu leyti, sein þau
geta, gegn óheilbrigðum árásum, sem gerðar
kunna að verða gegn þeim, og einnig gagnvart
brotum á þeim, er þau koma til framkvæmda.
Samþykt með þorra atkvæða.
10. Ályktun á kvenréttindamálinu:
Fjórðungsþing Norðlendinga tjáir sig því
meðmælt, að konum verði veitt fult jafnrétti við
karlmenn í öllum opinberuin málum, og skorará
sambandsstjórn U. M. F. I. að láta það mál
liggja fyrir til umræðu og samþyktar á þingum
fjórðunganna 1911.
Samþykt með öllum atkvæðum.
Stjórn fjórðungsins:
Erlingur Friðjónsson, formaður, Adam Þorgríms-
son, ritari. Kristján Sigurðsson, gjaldkeri.
Varastjórn:
Bernharð Stefánsson, formaður, Jón Guðlaugs-
son, ritari, Þorkell Erlendsson, gjaldkeri.
Berjarækt.
Frh.
3. Stöngulber (»stikkelsbær«) niunu einnig
óreynd hér á landi. Þau eru bæði til rauð,
gul, hvít og græn, og verða álíka stór og
sólskríkjuegg og sum talsvert stærri. Qóðar
tegundir eru: Rauð ber: ■Achilles* »Rrítish