Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1911, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.09.1911, Blaðsíða 3
SKINFAXI 67 einmana guðsbörnin ofsótt með spotti, einstæðir frumhugar skotnir með glotti, einmenni sjálfstæð í einelti lögð, einstæðings manndygðin hégómi sögð. íslenska hviklyndið oss hvað mest steypir, íslenska þjóðkunna sundrungin með; heimskan við nýjungum hégómans gleypir, hrifið rétt snöggvast er umhleypings geð, haldast þar efinn og ótrygð í hendur, yrði hver bersögull þjóðvinur brendur — vantaði til þess ei víkingakjark; veiklaði karlmensku sníkjandi slark. Sjálfstjórnin kostar æ sjálfsfórnir mestar, sjálfstæðið kostar æ þolrauna bál, hernaður skapaði hetjurnar bestar, helg varð í ofsóknum trúgöfug sál; — ef þú með félögum, æska! vilt gagna, alvöru staðfasta skaltu þér magna. Léttúð og hviklyndið ónýtir att ágætt, en fæðir svo vantraustið kalt. »Ef nú öll hugsjónahnoss eru draumar, hef eg til ónýtis fest við þær trygð, trúbrögðin verða þá tálsmiðar aumar, tignasta Paradís glottandi Iygð.« Nei, það, sem ofgott eg eignaði heimi, endurskin verður frá kætleikans geimi, altaf sem hjá mér og inst í mér býr öflugur, blómstrandi, fagur og nýr. Áhrif og minningar unaðar streyma inst mér í hjartað og sameinast mér, anda mt'ns kerúb mun Eden þá geyma, óðal mitt verður hún, livar sem eg fer, útheimsins dýrðar, er andi minn saknar, innri dýrð fegurri, tignari vaknar, útdeyi sutnarsins inndæla rós, upprennur vetrarins dýrðlega ljós. Heimur ef slær mig, það himininn græðir, hugsjónin framkvæmd er varðengill minn, hjartað ef særist og seinast út blæðir, sérhver þess blóðdropi ávöxt ber sinn: engilinn hreinan í eilífðar blóma, æ mun hann fagur og nýskaptur ljóma, altaf fær sigurinn ágætið manns. eða þá himneskan blóðvotta krans. Treystum því,hags vors og heiðurs þínsvegna, hugsjóna drotning, er lofaðir þú — sért þín dæmd lýgi, mun sagt til að egna: »SannIeiknum göfugri lýgin er sú, hún er þá kærleikans heimsveldið besta, henni ber lotning og dýrkunin mesta, gaf hún oss himinnintt, Guð vorn og Krist, göfugstu menning og fegurstu list. Sssss@sssS Bréf úr Norður-Þingeyjarsýslu. Atkvæðamesta starfsemi U. M. F. »Leifs hepna« í Kelduhverfi er sundnámsskeið, sem það hefir haldið uppi 3—4 vor, að minsta kosti, hálfan mánuð ár hvert. Hefir félagið gert »U. M. F. Öxfirðinga« kosta á að nota námsskeið þetta, enda hafa nokkrir hinna yngri manna gert það. Blað handritað er gefið út innan félags- ins, og fundir eru alltíðir. Myndarlegt þótti og gott afspurnar, er félagsmenn flestir komu saman dag einn í sumar og heyjuðu fyrir fátækan bónda, er eigi gat sint heyverkum, sakir vanheilsu. Þá er nú »U. M. F. Öxfirðinga«. Efst á dagskrá hjá því er skóggrisjun og það mál, er mest gætir áhuga á. Vill félagið ná eignarrétti á skóglendi nokkru, en hefir eigi tekist enn. Skóggrisjungardagur var nú í sumar hafður snemma í júlí, nú á laugar- dag, en var fremur illa sóttur, vegna ýmsra anna, og auk þess hiltist illa á með veður. Er ákveðið að koma saman í sama tilgangi einhvern dag í haust. Félagið heldur úti sveitarblaði handrituðu. Fundi heldur fé- lagið nú 6—7 á ári. Frh. S. Þ. @sss®§sss®

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.