Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.09.1912, Qupperneq 7

Skinfaxi - 01.09.1912, Qupperneq 7
SKINFAXI 71 dag; um aðferðina má lesa í Skógræktar- ritinu, 45. bls. Eitt skilyrði er sett um eignarrétt félag- anna á plönfunum, en það er, að verði þær seldar, að þá fari verðið ekki fram úr 15 kr. á þúsundi, og hefir sambands- stjóri undirritað samning um það við skóg- ræktarstjórann. Sjálfsagt er að treysta því, að Ung- mennafélögin geri alt sitt til að forða þess- um bágstadda nýgræðingi frá feigð. G. M. Úr bréfi. Borgarfirði 10. sept. 1912. . . . Geta má þess, að 26. apríl s. 1. var stofnað samband milli félaganna hér í Borgarfjarðar- og Mýrasýslu. Gerðu það 13 fulltrúar frá 7 félögum, og var því gefið nafnið Ungmennasamband Borg- arfjarðar. Tilgangurinn að auka sam- vinnu félaganna á sambandssvæðinu og gangast fyrir íþróttamóti einu sinni á ári, líkt og félögin gera austanfjalls. Inn- gönguskilyrði að félögin séu í sambandi U. M. F. I. — Sumir vildu láta sam- band þetta segja sig úr lögum við U. M. F. 1., en öðrum fanst það hið mesta óráð og er vonandi að sú hreyfmg hjaðni niður hið bráðasta, því ilt eitt mundi af hljótast fyrir félagsskapinn í heild sinni, en sérstaklega fyrir okkur Borgfirðinga. — I samband þetta eru nú komin 7 félög og héldu þau fund með sér á Hvítárbakka 8. þ. m. Rædd voru þar ýms málefni, menn skemtu sér og þreyttu íþróttir. Helst þótti hreystibragur að því, að 6 piltar syntu yfir Hvítá á ferjustaðuum og til sama lands aftur, var þá farið að kvefda og fremur kalt í vatni og veðri, en eigi sást annað en að þeir væru vel heitir þegar upp úr kom. Annars er dauft yfir íþróttalífinu, sérstaklega glímunum, sundinu aftur meiri gaumur gefinn, og er óhætt að sega að nieiri hluti unga fólksins geti fleytt sér, þar sem Ungmenna félögin hafa náð að festa rætur hér. Hinn 1. þ. m. var háð 100 stiku kappsund að tilhlutun U. M. F. Islendings, og kept um silfurskjöld sem ganga á mifli bestu sundmannanna ár frá ári, ogeigi verð- ur eign sigurvegarans fyr en unnið befir þrisvar.- . . . Þrjú félög hafa komið sér upp fund- arhúsi, (Reykdæla, Brúin og Haukur). Eru það steinsteypuhús sem kostað bafa á ann- að þús. kr. hvert, og munu þau öll nærri skuldlaus eign. . . . Skógræktarritið hlýt- ur öllum að þykja vænt um, og vænt er að það skuli eiga að verða kenslubók á Hvanneyrarskóla; þar fær maður þó eina bók að læra á móðurmálinu og um hugðnæmt efni. Annars er svo margt öf- ugt enn þá, t. d. að íslenskir piltar á ís- lenskum skólum, með íslenskum kennur- um skuli þurfa að læra alt á erlendu máli, til þess að verða íslenskir bændur uppi r sveit . . . Þótt margt af ungu fólki hafi gerst Ungmennafélagar, þá vantar þó mikið á að fjöldinn sé það í raun og sannleika. Mörgum finst að þeir geti svo lítið gert og draga sig þess vegna i hlé. Vantar snarp- ari vakningu. En meðan ungu mönnun- um þykir fremd í að reykja, tyggja tóbak, taka í nefið, neyta áfengis og vera sífelt með blótsyrði á vörunum og annað þ. h., œtti eitthvað að mega laga með hægu móti. Ellegar hvað samúðarandinn er alt- of lítill. . . . Flest félögin hér hafa fengið sér íslenska fánann og veifa honum þegar eitlhvað er um að vera hjá þeim. Ef hann nær hug þjóðarinnar, er henni borgið. V. Hitt og þetta. í sambandið eru nýgengin félagið Svanur í Álftaveri í Vestur-Skaftafellssýslu, og Ungmennafé- lag Borgarhrepps í Mýrasýslu. — Smá stækkar hópur félaganna sem haldast í hendur.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.