Skinfaxi - 01.07.1913, Page 4
52
SKINFAXI
Nokkuð er þegar brotið af þessu
landi.
— Reynir gróðursett 100 plöntur í
kirkjugarði sóknarinnar.
— Svarfdæla unnið 40 dagsverk að
undirbúningi græðireits.
— Tindastóll starfað að gróðrarstöð
félagsins á Sauðárkrók.
— Öxndæla ræktað nokkrar trjá- og
blómplöntur í græðireit félagsins.
I Austfirðingafjórðungi:
U.M.F. Þór unnið að grisjun og gróður-
setningu 40 dagsverk í Eiðahólma.
Aðrar verklog’ar framkvæmdir.
U.M.F. Afturelding, jarðeplarækt nokkur,
bætti girðingu í kringum blett sinn
og sléttaði 100 ferfaðma.
— Baldur, jarðeplarækt.
— Biskupstungna, tilraunir um jarð-
eplarækt.
— Borgarhrepps, girtur blettur kring-
um skólahús hreppsins.
— Gnúpverja, gróðrarstöðvargirðingin
endurbætt.
— Hvöt, goldin 5 heilsuhælisárgjöld.
— Iðunn, hlutavelta haldin fyrir hús-
gerðarsjóð.
— Stokkseyrar, lestrarfélag Stokkseyr-
ar er undir stjórn félagsins.
í Norðlendingafjórðungi:
U.M.F. Akureyrar, unnið að leikvallargerð,
svæðið girt og talsvert sléttað, 300
kr. fjárframlag.
— Framsókn, gerð sundlaug á árun-
um 1911—’12.
— Svarfdæla, vinna við samkomuhús
félagsins.
— Tindastóll, sýndir sjónleikar. Jóla-
glaðning fyrir fátæklinga i kaup-
túninu.
í Austfirðingafjórðungi:
U.M.F. Valur heyjaði.
Hvað stingur þá helzt í augu við lestur
þessa yfirlits? — Það, að félögunum á Aust-
urlandi hefir fækkað, sum þeirra eru dauð,
en sum hafa skotist undan merkjum sam-
bandsins. Hvað veldur þessum feikna mun
á félögunum í landsfjórðungunum ? Er
unga fólkið svona ólíkt? Er þörfin svona
misjöfn ? Eða legst félagslyndi og fram-
faraviðleitni svona misjafnt í héruð? Þetta
er umhugsunarefni. - Á Vestfjörðum eru
félögin með góðu lífi, þó eigi gæti þess
mjög hér. Þaðan vantar skýrslur og mun
þeim eigi um að kenna.
A Norðurlandi fjölgar ekki félögum, era
þau sem þar eru, virðast standa föstum
fótum.
Verklegar framkvæmdir engu minni en
áður, og er það góðs viti; skógræktin er
almennust, og munu nú flest félög hafa
lagt þar hönd að verki, eða vera í undir-
búningi um það, en þar þarf að auka á-
árlega. Þá eru íþróttirnar; í þeirra tölu hafa
aukist á vegum félaganna „mín aðferð“,
sldða- og skautaferðir, og er það góð við-
bót. Sund og leikfimi i framför, en þa&
eru öndvegisíþróttir og notadrýgstar, ef rétt
er á haldið.
Auk þessa, sem hér er talið og alt er
verk einstakra félaga, hafa fjórðungssam-
böndin sjálf gjört sitthvað er til gagns mætti
telja, staðið fyrir íþróttakenslu, íþróttamót-
um o. II. Og loks hefir sambandið sjálft
haldið úti blaðinu, gefið út Skógræktarrit-
ið, látið girða og vinna í skóglendinu sem
því var gefið o. fl.
— Það sem af er æfi Ungmennafélag-
anna má heita að vel hafi vegnað. Era
nú er að verjast erfðasyndunum, þróttleys-
inu og stefnuleysinu! Það eru kraftaverk-
in sem vinna þarf. Að halda í horfið og
auka á framkvæmdir i öllum greinum, þa$
sé markið. Og margt bendir til að sú
festa sé þegar komin í starfsemi félaganna,
sem fái orkað þessu.
G. M.