Skinfaxi - 01.07.1913, Síða 5
SKINFAXI
53
12. júní 1913.
Blái og hvíti fáninn, óskabarn U. M. F.
hefir átt nokkuð misjöfnum vinsældum að
fagna í landinu. Um hann hafa staðið
talsverðar deilur og fylgi hafði honum
ekki aukist svo teljandi sé hin siðari ár, ut-
an U. M. F. íhaldsfiokkurinn í Iandinu
stóð sameinaður móti fánanum, og fáir
voru svo bjartsýnir, að þeir ættu von á bráðri
viðurkenningu hans um Iand alt.
Enginn Islendingnr, hve vitur og snjall
sem hann hefði verið, mundi hafa getað
snúið mótstöðumönnum fánans til fylgis
við hann. En ofbeldi danska varðskipsins
við Einar Pétursson 12. júni s. 1. hefir
gert þetta furðuverk. Menn fundu að
þjóðin var óvirt um leið og fáninn. Sama
dag hurfu dönsku merkin af fánastöngum
j Rvík, og hefir haldist svo enn, að rnestu
A Alþingi er engin veifa, þótt þingfundir
séu, svo sem venja er þó til. Fjöldi manna,
sem áður vóru ákveðnir mótsöðumenn blá-
hvíta fánans, eru nú öruggir stuðnings-
menn hans. Sama fréttist úr öðrum bygð-
um á landinu.
I þinginu er nú rætt um, hvort froistað
skuli að fá íslenska fánann löggiltan og
er gott, ef það tekst. En samhliða því
hefir bólað þar á gamalli mein!oku,7jeíVn
að vilja breyta gerð fánans, og taka ann-
aðhvort þórshamar í feldi eða h'kja eftir
merki Norðmanna. Þessi breyting er bæði
óþörf og þar að auki hættuleg. Hún staf-
ar líka frá fornum mótstöðumönnum fán-
ans, sem ekki eru nógu miklir fyrir sér til að
vilja viðurkenna, að þeir hafi haft á röngu
að standa. Þeir bera fram, að fáni okkar
sé of líkur merki Krítar og Grikklands.
Héðan af ætti enginn ruglingur að stafa
af Krít, þar sem hún er nú sameinuð Grikk-
Iandi og sjálft gríska siglingarmerkiðermjög
ólíkt fána okkar. Það er röndótt, hvítt og
blátt með bláan og hvítan kross í einu
horninu. En bláu hornreitirnir við þann
kross eru allir jafn stórir. I raun og veru
er því fáni Grikkja svo ólíkur okkar fána
eins og mest má verða, og er sú áslæða
á engu bygð.
En stórhættulegt er að gera óvinafagn-
að úr sigri okkar 12. júní, með að hefja
óþarfar og ástæðulausar deilur um gerð
fánans. Með þvi sundrum við kröftunum,
gleðjum stór-Dani, og rekur þó engin nauð
til að launa þeim þannig lögleysu þeirra
og yfirgang. Aðalatriðið í þessu máli
er nú að nota íslensita, bláhvíta fán-
ann,nota hann alstaðar i landinu, því að
það eigum við með. En hinir, sem ekki
þola þann fána, ættu þó, vegna þjóðar
sinnar, að láta vera að vekja deilur, og.
spilla þannig góðu máli. J% j.
Breyting á íþróttakenslu U.M.F.
U. ,M. F. hafa ætíð og munu ætíð með-
an þau eru á réttum kili hafa íþróttanám
á stefnuskrá sinni. Hér í Sunnlendinga-
fjórðungi hefir iþróttanámið verið tvískift.
Ilin einstöku félög hafa mjög viða iðkað
ýrnsar íþróttir upp á eigin spítur. Og hins
vegar hefir fjórðungurinn sent íþróttakenn-
ara til félaganna. Hann hefir haft stutt
námskeið víðsvegar i fjórðungnum og verið
mikil aðsókn.
Þetta hefir að vísu alt gengið vel, en i
seinni tið hafa þó heyrst raddir úr sveit-
unum, að finna mætti annað fyrirkomu-
lag, sem hafa myndi meiri árangur. Þeir
vilja, að fjórðungurinn kosti á hverjum
vetri námsskeið i Rvík til að undirbúa
iþróttakennara. Þeir menn fari svo til
átthaga sinna, kenni á námsskeiðunum
hver í sinni sýslu. Og þar sem þeir búa
að staðaldri innan um þá menn, sem þeir
hafa kent, geti þeir haldið áfram að styðja
þann vísi, sem þeir hafa gróðursett.
Þessi aðferð hefir þann kost, að hún
hjálpar sveitunum til að verða sjálfstæðari