Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.09.1914, Blaðsíða 6

Skinfaxi - 01.09.1914, Blaðsíða 6
118 SKINFAXI. gæti unnið sveitinni sinni mest gagn, þá mundi ekki líða á löngu áður en vegsum- merki og framfarir sæust í hverri sveit. ■Og ef hver sveit tekur framförum, þá fer öllu landinu fram, og er því ljóst, að sá sem vinnur fyrir sveitina sína, hann starf- ar í þarfir ættjarðarinnar. Eg hef einkum snuið máli mínu til ung- mannafélaga og ungra manna, því að þeim heyrir framtíðin til, og þeir geta búist við að njóta lengst þess, sem starfað er sveit- inni þeirra og landinu til þrifa. En fjarri fer því, að við eldri mennirnir megum sitja hjá aðgerðarlausir. Svo framarlega sem við viljum, að menn trúi tali okkar um ættjarðarást, þá verðum við að sýna hana í verkinu með því að vinna gagn á því sviði, sem hver um sig starfar á. Svo segir skáldið: Allir miklir menn oss sýna manndómstign er unt að ná og eiga þegar árin dvína eftir spor við tímans sjá. Við eigum allir að skilja eftir „eitthvert spor við tímans sjá“. Sveitin okkar á að bera þess merki, að við höfum lifað og starfað í henni. Við eigum að skila henni fegri og byggilegri til eftirkomanda okkar en við tókum við henni. Og þetta ætti að vera okkur næsta Ijúft, því að alt það, sem við vinnum i þessa átt, verður okkur til sóma og ílest til gagns um leið. Hald- ið þið t. d. ekki að brautin okkar borgi sig? Eða jarðabætur og húsabætur hjá þeim sem þær gera skynsamlega? Og nú ætla eg að nefna eitt að endingu, sem frá- leitt borgar sig beinlínis í bráð, en eg er engu að síður viss um að borgar sig ágæt- lega óbeinlínis fyrir alla sem að því styðja og alla sveitina, því „að maðurinn lifir ekki af einu saman brauði“. Það er trjá- reiturinn, sem ungmennafélagið er nú að undirbúa og þessi samkoma er meðal annars haldin til að styrkja. Það er svo mikil hvöt til frekari framfara, ef sveitin okkar getur orðið á undan nágrannasveit- unum að græða hjá sér skóg, og ef vel tekst með þennan litla reit, þá má eiga það víst, að þar er fenginn sá Draupnir, er margir aðrir jafndýrir munu drúpa af — þegar svo er lcomið, þá mun líka fyrir- höfnin og kostnaðurinn borgast beinlínis á sínum tíma. Þess vegna er svo áríð- andi að vel takist með þessa fyrstu til- raun og eg vona að ungmennafélagið spari enga fyrirhöfn til þess, úr því að það réðist í þetta á annað borð, og eg tel víst að margir vilji rétta því hjálparhönd til þessa. Hvern einstakan munar það litlu, ef nógu margir verða. Það er góðs viti um hverja sveit sem leggur af alvöru og áhuga stund á að rækta skóg. Það er margreynt hjá öðrum þjóðum, að áhuga á skógrækt fylgir allsstaðar þjóðleg vakn- ing og áhugi á hverskonar framförum öðrum. Eg vil því enda þessi orð með þeirri ósk, að hér í sveitinni og sem víð- ast á landinu rætist, sem fyrst þessifögru orð skáldsins: Eagur er dalur, fyllist skógi og frjálsir menn! En frjálsir verða menn aldrei, hvað sem öllu stjórnarfyrirkomulagi líður, nema menn temji sér frjálsra manna dygðir, og með- al þeirra eru fremstar í flokki hæfilegur metnaður, starfsemi og ættjarðarást. S. J. (þróttamót Borgfirðinga. (Bréf úr Borgarfirði) Ungmennasamband Borgarfjarðar hélt íþróttamót sitt að þessu sinni 16. ágúst síðastliðinn á Hvítárbökkum. Svo hafði verið ætlast til, að þetta mót yrði haldið seinast í júnimánuði, en vor- harðindin gerði það áform að engu, sem mörg önnur. Ymsir telja það haganlegra, að þessi mót séu háð fyrir [heyannir en um þær, og mun það vera í ráði, að svo verði framvegis.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.