Skinfaxi - 01.10.1916, Síða 8
** 120 SKINFAXI
og iðka skíðahlaup. Foreldrarnir eiga að
gefa börnum sínum skiði þegar þau eru
orðin svo stálpuð að þau geta haft not
af þeim. Þessi íþrótt á að verða þjóðar-
íþrótt íslendinga og stuðla að því að gera
þjóðina fagra og hrausta. (Vetrarbl.).
Félagsmál.
S'óngrflokkur Rcykdæla.
Fyrir skömmu komu hingað 12 ungir
menn úr U. M. F. Reykdæla í Borgarfirði,
til að æfa sig í söng hjá Sigfúsi Einars-
syni. Dvöldu þeir hér í bænum nokkra
stund og sungu nokkur lög á einum fundi
U. M. F. R. Var frammistaða þeirra
mjög rómuð. Áhugi sá er þessir menn
sýna, er bæði sjaldgæfur og lofsverður og
eitt hið besta dæmi þess, hvernig góð ung-
mennafélög bæta og göfga hugsunarhátt
þjóðarinnar.
Yngri delld U. 31. F. R.
er haldið áfram í vetur með góðum ár-
angri. Af félagsmönnum, sem stutt hafa
deildina, eiga þeir mestar þakkir skilið
Steinþór Guðmundsson og Erlingur Páls-
son, enda báðir miklir áhuga og dugnað-
menn. Deildin sú þarf að dafna vel til
yngja upp ungmennafélagsskapinn hér í
höfuðstaðnum.
Seldur liúsgrunnur.
Síðasta vorið sem Guðbrandur Magnús-
son dvaldi hér í bænum, réð hann til þess,
að ungmennafélögin bæði keyptu allstóra
lóð á góðum stað í bænum. Skyldi þar
reisa samkomuhús félaganna á sínum tíma.
Blettut þessi var nokkru slærri en þurfti
fyrir eitt hús, og hafa félögin nú selt af
honum við góðu verði, eitt hússtæði. Ef
styrjöldin hefði eigi hindrað flestar slíkar
framkvæmdir, mundi nú byrjað á byggingu
þessari. En þar falla líklega úr nokkur ár.
Bréíakvöld hefir Ungmennafélag Bisk-
upstungna ákveðið sunnudaginu 28. janúar
1917. Félaginu er einkar kærkomin bréf
frá öllum góðum ungmennafélögum, sem
víðast að.
Vatnsleysu, 30. ok‘t. 1916.
F. h. ö. M. F. B.
Þorsteinn Sigurðsson
(p. t. ritari).
sem viljið fá bækur ykkar vel og ódýrt
bundnar, æltuð að senda þærjjtil
Fjelagsbókbandsins í Reykjavík
Ingólfsstræti.
Athugið það, að illa bundnar bækur eru
engin eign!
Kristinn Jónsson
trésmiður.
Frakkastíg 12, Reykjavík
hefir stórt upplag af asksldöum, afarvönd-
uðum. Skíði úr „pitspæn“ og furu. Einnig
hirgðir af erfiðisvögnum, lystivögnum og
aktýgjum. Viðurkent best verð, eftir gæðum,
á Islandi. Sömuleiðis hrifuhausum, hrífu-
sköftum og orfum úr ask og furu.
Skilvísa kaupendur Skiufaxa
þarf ekki að minna á að gjalddag'i
blaðsins var 1. júlí.
Ritstóri: Jónas Jónsson frá Hriflu.
Félagsprentsmiðjan