Skinfaxi - 01.04.1917, Qupperneq 3
SKINFAXI
27
ber við loft. Langt í norðvestur sésl ein-
stakur, Ijósblár, strýtumyndaður tindur, sem
lieitir Eilífur, )>ar suðvestur nf Hágöng,
Jörundur, Skógamannafjöll, Búrfell og
mörg fleiri fjöll. Nær er Nýjahraun, blá-
svart og úfið, með rauðleitum eldgýgum
hér og ]>ar.
I vesturátt sést afar mikil hraunbunga,
efst rneð rauðgulum blettum: þar eru
Fremrinámur. Þær rifja upp margar sög-
ur, um erfiðleika og kvalir hestanna, sem
báru drápsklyfjar af brennisteini til Húsa-
víkur. Alla ])á óra leið, um allskonar veg-
Ieysur yfir fjöll og hraun. Langt er nú
siðan sá ílutningur var lagður niður, og
nú koma þar ekki aðrir en einstaka út-
lendingar, sem ferðast um öræfin til að
auka þekkingu mannanna á J'eim.
T suðvestri sjást Herðubreiðarfjöll og
fjalladrotningin sjálf. Herðubreið. Tilkomu-
mikil og tignarleg mænir hún yfir öll ná-
læg fjðll, og nú varpar kvöldroðinn föl-
rauðum blæ á mjallhvíta jökulhjálminn.
Óvíða er líklega hægt að sjá fjall eins
reglulega lagað og Herðubreið, neðsl af-
líðandi brekka, braltari eftir ]iví sem ofar
dregur, síðan hátt þverhnípt hamrabulti,
og efst reglulega lagaður hjálmur með
hvassri strýtu, Fjnllið nýtur sín betur og
verður tilkomumeira, sökum þess að það
stendur alveg séi-stakt.
1 suðri teygja sig upp fyrir sjóndeildar-
hringinn tveir keilumyndaðir Imjúkar, suð-
ur í Kverkfjöllum, og þar norðaustur af
rísa upp ótal fell og hálsar. Bak við öll
þessi fjöll gnæfir Snæfell til himins, ljós-
blátt af fjarlægðinni, sveipað mjóum skýja-
böndum, sem gera þetta tignarlega fjall
ennþá tilkomumeira.
Allur sjóndeildarhringurinn í austri tak-
markast af löngum fjallgörðum, sem hverfa
að lokum í sólroðanum i norðrinu sem
smátt og smátt dvínar.
Hér er alt þögult og hljótt, engin fugls-
rödd hljómar í loftinu, og skorkvikindin
lifa hér ekki í sandinum. Hér fá hugsan-
irnar að njóta sín, því hér er ekkert sem
truflar hugann. Ef eilthvert íslenska þjóð-
skáldið væri komið hingað eina einustu
kvöldstund, þó ekki væri meira, þá mundi
þjóðin græða meira á því eina kvöldi,
heldur en heilu ári, sem skáldið dveldi í
höfuðstaðnum.
J. S.
5. ijórðungsþing U. M. F. Vestíjarða
var háð á Isafirði dagana 3. og 4. apríl.
Mættir 9 fulltrúar frá 7 félögum af 10
sem eru í fjórðungssambandinu.
Þinggerðir:
I. Skýrsla stjórnarinnar: Á síðastliðnu
reikningsári voru fluttir 40 fyrirlestrar á
fjórðungssvæðinu. Heimilisiðnaðarnámskeið
sem U. M. F. ísfiröinga hélt uppi í 6 vik-
ur síðastliðínn vetur var styrkt og aðstoð-
að af fjórðungnum. Eitt félag — U. M.
F. Önfirðinga — var ieyst upp við ára-
rnótin, en í stað þess stofnuð á sama
svæði 4 félög, sem öll eru komin i sam-
bandið. Þau heita: U. M. F. Framar. U.
M. F. Bifröst, U. M. F. Önundur og U.
M. F. Breiðablik. Samkvæmt skýrslum
félaganna fyrir árið 1916, höfðu þau 7
félög, sem þá voru í fjórðungnum 317
reglul. meðlimi, 28 heiðurs- og aukafélaga,
93 fundi, 64 handrituð blöð, 42 eintök af
Skinfaxa, 1112 kr. 38 aura í peningum
og 1203 kr. 55 aura i öðrum eignum fyr-
ir utan skuldir.
II. Sundkensla: Samþykt tillaga um að
fjórðungssambandið styrki að einhverju
leyti félög sem hafa áhuga á sundinu, til
að senda menn til sundnáms, sem svo
aftur kenni heima í félögunum.
III. Fyrirlestrastarfsemi: Svohljóðandi
tillaga samþykt. „Samkvæmt 17. grein
sambandslaganna væntir fjórðungsþingið
þess fastlega, að sambandsstjórnin láti vel
hæfan fyrirlesara ferðast um og flytja er-