Skinfaxi - 01.04.1917, Side 6
30
SKINFAXI
Á fyrirlestrasvæðinu voru 8 ungm.félög
innan sambandsins, en 11 fél. fyrir utan
það; gekk eilt af þeim — U. M. F. Saur-
bæjarsóknar — í samband U. M. F. í.
Á útbreiðslufundi, sem haldinn var í fé-
laginu, bættust því 27 félagsmenn; telur
það nú 51. 1 ungm.fél. Hólasóknar gengu
inn 15 menn á útbreiðslufundi. Voru góðar
horfur á, áð það félag mundi einnig ganga
í sambandið.
Sýnir þetta hve nauðsynlegt það er að
hafa ráð á umferðarfyrirlesara lianda fé-
lögunum, og ekki sísthanda utansambands-
félögunum. Vantar ekki nema herslumun-
inn bjá mörgum þeirra að ganga í sam-
bandið. Enda er ekkert eðlilegra en það,
að öll ungm.félög landsins myndi eina
heild — fylki sér undir sama merki, með
sameiginlegri stjórn. Héraðssambönd bnfa
sína stjórn og ábugamál út af fyrir sig
innan aðalheildarinnar, á svipaðan hátt
eins og bvert einstakt félag innan béraðs-
sambandsins.
Gæti komið til mála, hvort ekki sé heppi-
legast, að sambandslögin og lög héraðs-
sambanda séu greind hvor frá öðru, ]iann-
ig að héraðssambönd sníði lög sín eftir
því, sem þeim þykir best henta á héraðs-
svæðinu, en með sameiginlegri stefnuskrá
og skuldbinding og staðfest af sambands-
stjórn.
Ouðm. Davíðsson.
Kær minning.
Ungmennaskólinn að Núpi i Dýrafirði
hefir nú starfað í 10 vetur. Mintust nem-
endur hans frá þeim árum þess, með því
meðal annars, að gefa honum vandað
harmoníum. Kom það frá Svíþjóð nú
fyrir jólin og mun hafa kostað yfir 400
krónur.
Úti-íþr óttir.
(Eftir Bennó).
Knattspyrna.
(I síðasta blaði, XVII. kafla um knatt-
spyrnu vil eg biðja menn um að leiðrétta
hjá sér prentvillu, er stendur í næstsíð-
ustu línu: &aí;vörður fyrir inarkvörður,
eins og málsgreinin ber með sér að á að
standa).
XVIII.
Æfing (tamning) er aðallega tvenskonar.
í fyrsta lagi að æfa skjótleik og ná váldi
á knettinum, og í öðru lagi að æfa orku
og þol knattspyrnumannsins, svo liann
verði sterkur, vígfimur og úthaldsgóður.
Sækja verður hverja æfingu til að ná þessu
marki. Æfa sig eigi lengur i senn en 90
mínútur. Sofa 8 kl.stundir á sólarhring
(helst á harðri dýnu) og vera korninn í
rúmið fyrir kl. 11 að kveldi. Hafa alls
enga áfenga drykki um hönd, neyta eigi
tóbaks og drekka helst ekki kaffi né te,
og siðast en ekki síst, t’ara í bað eftir
bverja æfingu. Eru þetta belstu reglurn-
ar sem þið verðið að setja ykkur, þegar
þið æfið ykkur fyrir kappraun. — Allir
verða að vita, að vinið deyfir og lamar
lífsþróttinn, tóbakið skennnir Iungun og
hindrar öndunarfærin og þar með úlhald-
ið, kaffi og te skaða meltinguna og eru
alls ekki nœrandi drykkir, eins og svo
margir virðast halda. Meðal annars er
það furða að bændur skuli fara dýrar
kaupstaðarferðir til að kaupa kaffi, en hafa
þó við hendina besta og hollasta drykkinn
(mjólkina). Þyki þeim of dýrt að láta
drekka mjólkina, þá er heitt mjólkurvatn
afbragðsdrykkur og nauðsynlegur þeim,
er borða mikið kjöt, — Ættum við sem
mest að vera okkur sjálfum nógir. —
Sá sem þetta ritar hefir að eins tvisvar
sinnum neytt kaffi á síðustu sjö árum,