Skinfaxi - 01.07.1917, Blaðsíða 3
SKINFAXl
51
ui', en oi-^iö að leigja húsrúm á öðrum
stað i’ kaupstaðnum til fundahalds. Er
íiúsleysið tilfinnanlegur Þrándur í Götu
fél. eins og — því miður — mun vera
allvíða meðal ungmennafél. út um landið;
— en húsabyggingar nú tilíinnanlega dýr-
ar. Næstliðinn vetur hafði félagið kvöld-
skóla undir forustu form. þess (Svöfu).
Var þar kend: íslenzka, stærðfræði, enska
og danska. Jafnframt hefir fél. mjög mik-
ið beitt sér fyrir að breiða út söng-
þekkingu á meðal félagsmanna og kaup-
staðabúa; hefir form. þess haft þar for-
göngu.
Frá Bíldudal hélt eg út í Dali til „Skjald-
ar“. Form. þess er Ingvaldur Benedikts-
son (hreppstjóra í Selárdal). Var hann
ekki heima er eg kom ; — staddur suður
í Rvík við söngfræðisnám. I Dölunum
hélt eg 4 fyrirlestra, 2 í Bakkadal og 2 í
Selárdai.
„Skjöldur“ er aðeins 2. ára, starfar í
2 deildum; félagatala um 40. Hefir fél.
endurreist ekknasjóð (sjódrukknaðra manna
þar í hreppnum) sem hafði vej-ið fallinn í
óhirðu. — Einnig beitti fél. sér ötullega
fyrir fjársöfnun til ekkna þeirra manna
er druknuðu við Isafjarðardjúp 1915. Hús-
næði hefir félagið ekki annað en það, sem
bændur láta því góðfúslega í té — án
endurgjalds. — Sögðu félagsmenn mér að
eldra fólkið og hinir ráðandi menn þar í
hreppnum væri fremur hlyntir félaginu;
en kvartað var um frástreymi unga fólks-
ins úr sveitinni, að vetrinum; mun það
víða brenna við, — lakast að búast má
við að sveitirnar tapi þannig starfskröftum
að meira eða minua leyti. Síst er þó að
lasta það, að fólkið sæki sér menningu
til fjarlægra héraða; — aðeins að það
komi svo heim aftur og láti Ijós sitt lýsa
upp heimahagana; —
„byrji í sínum heimahögum
að hjálpa röðli að fjölga sólskinsdögum".
Að Rafnseyri i Arnarfirði llutti eg 1 fyr-
irlestur. Dvaldi eg þar yfir jólin hjá sr.
Böðvari Bjarnasyni (áheyrendur þar aðal-
lega heimilisfólkið).
Eftir nýárið heimsótti eg félögin á norð-
ursvæði fjórðungsins. Fyrst heimsótti eg
fél. „Vorblóm" á Ingjaldssandi. Það er
elsta ungmennafél. í fjórðungnum. Nú-
verandi form. þess er: Guðmundur Guð-
mundsson búfræðingur og bóndi að Sæbóli
á Ingjaldssandi. — Er „Vorblóm“ mjög
efnilegt félug. Hefir það árlega unnið að
vegabótum á félagssvæðinu (Ingjaldssandi)
Þá hefir það og beilt sér fyrir söfnun til
kirkjubyggingar að Sæbóli á Ingjaldssandi,
-- kirkjan þar orðin gömul og hrörleg.—
Tóbaksbindindjsflokk hefir félagið innan
sinna vébanda. — Aðallega hefir félagið
húsnæði hjá formanni þess. I „Vorblómi“
hélt eg einn fyrirfestur. í ungmennafél.
Önuudarfjarðar hélt eg alls 7 fyrirlestra á
5 stöðum: Þorfinnsstöðum, í Valþjófsdal,
Þórastöðum, Etstabóli og Kaldá.
„U. M. F. Önundarfjarðar" hefir aðal-
lega beítt sér fyrir trjárækt — mest af
öllum fél. í fjórð. — bæði í sameiginleg-
um trjáreitum (3) og heima við bæina:
þessar trjáræktunarlilraunir fél. hafa reynd-
ar mishepnast að nokkru leiti, (sumt af
plöntunum dáið).
En þrátt fyrir það hefir tilraunastarfið
orðið til þess að auka þekkingu hlutaðeig.
á trjáræktinni, og glæða fegurðartilfinning-
una. Vafalaust væri rétt fyrir fél. að taka
þessa afgirtu reiti til garðyrkju jafnhliða
trjáræktinni. Trjám hægt að fjölga smám
saman ef æskilegt þætti. — Þá hefir fél.
styrkt hágstadda menn þar í hóraðinu,
hæði með fjárframlögum og vinnu. —
Eins og að framan er sagt, skiftist fél.
næstl. vetur í 4 sérstæð félög, — starfaði
áður í 4 deildum. — Aðalástæðan lil skift-
ingarinnar mun hafa verið: óhæg aðstaða
til sameiginlegra fundahalda. Nokkuð hafa
þó fél. sameiginlegt áfram, svo sem : jóla-
póst er gamla fél. hefði, (menn kostaðir
af fél. lil að bera brjef og böggla á með-
al félagsmanna og annara i héraðinu á