Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1917, Page 6

Skinfaxi - 01.07.1917, Page 6
54 SKINFAXI sex hundruð manna. Lítur út fyrir að sú venja komist á, að Þingeyingar haldi sin héraðsmót til skiftis á Breiðumýri og við Ljósavatn. Eru bóðir staðirnir góðir, og ])ó einkum hinn siðari, því að þar eru vellir viðir, og vatnið við hendina til sund- rauna. En þeir staðir eru heppilegastir fyrir slíkar samkomur, þar sem best skilyrði eru til að sýna margskonar íþróttir. Enginn vafi er á því, að ef striðið hefði eigi verið, myndi ungmennaféJags- hreyfingin vera orðin miklu öflugri en hún er. Sést það á því að þrátt fyrir öll vand- kvæði, kyrstöðu og deyfð, er af stríðinu leiðir, hafa félögin samt drjúgum fært út kvíarnar, eins og áður hefir verið á drep- ið hér í blaðinu. En ólíkt meiri myndi þó sú framför hafa verið, ef siglingarnar hefðu verið greiðar, auðvelt að afla sér tækja til íþróttaiðkana, kostnaðarlítið að halda námsskeið og senda fyrirlestramenn um landið. En meðan þessu fer fram, reynir á jiolgæði þeirra manna, sem sér- staklega hafa haldið uppi hinum einstöku félögum. Takist þeim að halda öllu í horfinu meðan striðið stendur, þarf varla að kvíða framtíðinni. Hin upprennandi kynslóð tekur þá að sér forustu og fram- kvæmdir. Frá Austur-Skaftfelling'um. Merkur ungmennafélagi þaðan úr sýsl- unni skrifar: Við höfum töluvert rætt um hvernig best yrði að haga íþróttakenslu hér í vetur. Það er sameiginleg ósk allra að fá hingað íþróttakennara, en ekki hafa menn lil fullnaðar komið sér saman um fyrirkomulagið. Þó býst eg við því að fremur verði horfið að því ráði, að hafa svo sem viku námsskeið í hverju félagi heldur en að hafa eitt allsherjar iþrótta- námsskeið fyrir alla sýsluna. Bæði er sýsl- an löng og nokkuð torsótt ytirferðar. En sérstaklega er erfill að fá nokkurstaðar fæði handa allmörgum mönnum svo vik- um skifti. Meiri von um að tækist að vekja almennan áhuga með ]>vi að hafa námskeiðin mörg þó að timinn verði stutt- ur. En að vekja áhugann er aðalatriði frá mínu sjónarmiði. Úti-íþróttir. (Ei'lir Bennó). Knattspyrna. XIX. Þeir menu sem sianda fyrir knattspyrnumót- um eru vinsamlega beðnir að atliuga og leiðrétta hjá sér prentvillu er stendur á bls. 4 í Knatt- spyrnulögum í. S. í. 10. línu að neðan: „Á. milli þeirra (marksúlna) skulu vera 7,5 slikur (innan- vurt)'1 en á að vera „7,3 stikur (innanvert)." Einnig vil eg biðja ykkur um að marksúlurnar séu fer- strendar og marknetin séu minst yg stiku frá marksúlunum í beinni línu. XX. Niðurl Englendingar leika knattspyrnu mjúkt og liðlega en þó knálega svo að unun er á að horfa. Sagt er að Danir, sem bestir eru í knattspyrnu á „meginlandinu“, leiki meira af styrkleika og afli en leikni. Eftir þessu að dæma væri sú knattspyrnusveit best komin sem hefði báða þessa kosti. Á 1.2 ára aldri er best að æfa knatt- spyrnu, og læra þá þegar, eftir því sem hægt er, allar listareglur leiksins. Það sem mest ber á hjá okkur er aga- leysið. — Það er oft svo dauðans erfilt fyrir dómaraun að fá leikm. til þess að hlýða og fara eftir ])ví sem hann Ieiðbeinir þeim. Eitt af be/.tu ráðunum til viðreisnar knatlspyrnu væri að fá hingað úllendan knattspyrnuflokk, til að keppa við, það yrði betra en að fá hingað útlendan knalt- spyrnukennara (eins og sumum hefir dott- ið í hug). — Svíum heflr gefist best að fá útlenda knattspyrnullokka til að keppa við - og svo mun vera um okkur.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.