Skinfaxi - 01.08.1917, Side 6
62
SKINFAXI
samskonar mót sem þetta, og mega Mýra-
menn og Borgfirðingar ekki fyrir nokk-
urn mun leggja þau niður, þó veður drœgi
ar skemtun í þetta sinn.
Heima og erlendis.
Frá Austmönnum.
Bjarni Ásgeirsson í Knararnesi er ný-
kominn heim úr langri dvöl á Norður-
löndum. Hann heimsótti í Noregi ýmsa
helslu lýðháskólana, og þótti mikið til
þeirra koma. einkurn Voss-skólans. Skóla-
stjórinn þar er annálaður snillingur. Og
fynr okkur er það ánœgjulegt, að hann
er mjög mikill íslandsvinur. Bjarni veitti
því eftirtekt að í Noregi er afar-náin sam-
vinna milli lýðháskólanna og ungmenna-
félaganna. Og þar eins og hér þrífast
ungmennafélögin best í sveitunum. Ekki
nema einstöku bœir, þar sem hið andlega
andrúmsloft er þeim holt.
Þessi samvinna við góða skóla er norsku
ungmennafélögunum til mikillar eílingar.
Þeir eru einskonar aflstöðvar, sem félögin
sækja til, og fá mátt og kjark.
Hér á landi er einn skóli sem hiðsama
hefir mátt segja um. Það er ungmenna-
skólinn á Núpi. Eiga þeir sr. Sigtryggur
Guðlaugsson og Björn Guðmundsson mikl-
ar þakkir skilið, fyrir beinu og óbeinu á-
hrifin, sem þeir hafa haft á sarntök og
æskumannamenningu á Vesturlandi, síðan
skóli þeirra tók til starfa.
Eiðaskállnn.
Nú i sumar hafa Múlasýslur gefið land-
inu allar eignir Eiðaskólans, með því skil-
yrði, að þar sé haldið uppi mentastofnun
fyrir Austurland.
Þingið gekk að þessu skilyrði og hefir
nú samþykt að halda þar almennan skóla,
ef til vill eilthvað svipað og Skinfaxi hef-
ir áður fyrri kallað þjóðskóla.
Sumir vilja að á Eiðum verði annað-
hvort likt eftir lýðháskólunum dönsku, eða
gagnfræðaskólunum. Hvorugt mundi þó
reynast heppilegt. Lýðháskólarnir gefast
ekki vel nema þar sem brennandi eldmóð-
ur knýr stofnandann til að fórna öllu fyr-
ir sitt áhugamál. Vanti þann eldmóð
verður starfið tómur loddaraskapur. Og
gagnfræðafyrirkomulagið hefir í heild sinni
ekki gefist vel, er orðið nokkuð þung-
lnmalegt, og fylgja því litlar vonir.
Lítill vafi er á því, að mestur fengur
væri í þvi að koma hér upp nokkrum menta-
stofnunum, sem sniðuar væru eftir nýju
skólunum ensku, og svipuðum skólum
í Ameríku. Halda fyrirkomulaginu, að
því Ieyti sem það samrýmist íslenskum
staðháttum. Og þá ætti Eiðaskólinn að
vera fyrsti liðurinn i þeirri keðju. Væri
það ekki illa lil fallið að hyrja á Héraði,
sólarlandinu mikla.
Skáll Suðurþingeyiugii.
Óvíða á landinu er fólk jafn bókhneigt
og í Þingeyjarsýslu. En þó vill svo til að
þar er engin sérstök me.ntastofnun eins og
í hinum öðrum sýslum norðurlands. En
úr þeirri vöntun verður líklega bætt inn-
an skams.
Samband ungmennafélaganna í S.-Þing-
eyjarsýslu hefir nú hafist handa með fjár-
söfnun til skólastofnunar þar i héraðinu.
Hefir nú þegar safnast allmikið fé, eins
og jafnan verður, þegar áhuginn er al-
mennur. Gert er ráð fyrir að félögin leggi
fram einhvern ákveðinnHdut af stofnkostn-
aði, t. d. þriðjung, en leita síðan til þings-
ins með það sem á vantar. Að sjálfsögðu
myndu gefendurnir áskilja sér rétt til að
ráða nokkru um fyrirkomulag og starfsemi
skólans.
'Styrjöldin tefur framkvæmdir í þessu
máli eins og fleirum. Verður varla unt
að reisa nokkrar byggingar fyr en frið-
samleg skifti hafa tekist upp á nýtt með
þjóðunum.