Skinfaxi - 01.01.1918, Qupperneq 5
SKINFAXI
5
Minnismerkið að framan. Minnismerkið að aftan.
íþróttamót.
Þann 7. júlí síðastliðið sumar héldu ung-
mennafélögin „Dagsbrún“ í Austur-Land-
eyjum og „Njáll“ í Vestur-Landeyjum,
sameiginlegt íþróttamót.
Er mót þetta hið 3. í röðinni, seml fé-
lög þessi hafa stofnað til og eru þau hald-
in sitt árið í hvorum Landeyjum. Að
þessu‘;sinni var það haldið í Austur-Land-
eyjum.
Iþróttir þœr, sem menn reyndu með
sér voru: Sund, glímur, hlanp, hástökk
og langstökk. Verðlaun voru keppendum
veitt fyrir sund og glímur, og eru það
silfurskildir nokkrir, sem félögin hafa látið
gera í því skyni og mæla lög félaganna
svo fyrir, að skildirnir skuli eign þeirra
manna, er þá hafa unnið þrisvar í röð.
Fyrst var^‘ þreytt kappsund (50 m.) og