Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.01.1918, Qupperneq 8

Skinfaxi - 01.01.1918, Qupperneq 8
8 SKINFAXI SKINFAXI. Múnaðarrit U. M. F. í. Terö: 2 krónur. Ritstjóri: Jón Kjartansson, Kennarskólanum. Póslhólf 516. Félagsmál. Guömuiidur lljultuson fór í fyrirlestraferð um Hvalfjarðar- strönd Kjós og Kjalarnes í fyrri hluta desembermánaðar. Eftir beiðni Skaftfeli- inga og tilhlutun U. M. F. Isl. leggur hann af stað 20. janúar í fyrir- lestraferð um Vestur-Skaftafellssýslu. Ef til vill fer hann alla leið austur í Horna- fjörð. Áætlað er að hann komi 4.—5. fe- brúar austur í Mýrdalinn. Jóa A. Guðmundssou ostagerðarmaður hefir unnið mikið verk og golt í Dalasýslu í þágu sambandsins. Allgóðar horfur eru á að þar komist á héraðssamband innan skamms. I sveit- unum við Breiðafjörð og Húnaflóa eru því nær engin sambandsfélög. Er því mjög heillavæniegt, ef héraðssamband myndast í Dölum. Ut frá því mundi alda breiðast i allar áttir. Og auðvelt fyrir félög af Austur-Barðaslrönd, suðurhluta Stranda- sýslu, Vestur-Húnavatnssýslu og innri hluta Snæfellsness að eiga samband við Dalamenn. Sigurður VJgri'ússon flutti í desember fyrirlestra í félögunum á Faxaflóaundirlendinu, en því miður gat hann ekki farið lil U. M. F. Staðarsveitar. Annars lét hann vel yfir ferðinni. I?orstciuu Þórarinsson ferðaðist eins og fyr var getið í sömu erindum um Rangárvallasýslu. Félag kvað hann í fæðingu í Fljótshlíðinni. Ekki gat hann þó flutt þar erindi sökum of strangrar áætlunar. Kaupendur Skinfaxa í nágrenni við hann geta snúið sér til hans um greiðslu á andvirði blaðsins. Uéraðssambandið í V.-Skaftafellssýslu hélt íþróttamót sl. sumar í Skaftártungu. Kept var í glímu, þátttakendur 8, og í su.idi, þátttakendur 6. Fyrstu og önnur verðlaun fyrir glímu og önnur verðlaun fyrir sund lentu í „Skarphéðni“, í Vík, en fyrstu verðlaun fyrir sund hjá „Framsókn“ í Landbroti. Skinfaxi vonar að Skaftfellingum takist að hafa mótið fjölbreyttara næst. Tilkynpingar: „Heimlciðis44, Ijóð eftir Stephán G. Stephansson eru nýprentuð. Kosta eina krónu í kápu á vönduðum pappír. Eru þetta kvæði er skáldið orti á ferðalaginu og gaf Sambandinu handritið af. Ung- mennafélög og einstakir menn geta feng- ið Ijóðin send sér að kostnaðarlausu ef þeir lála andvirðið fylgja pöntun. Ársrit Fræðafélagsins geta menn fengið hjá Sambandsstjórninni með mjög lágu verði. Lysthafendur gefi sig fram hið fyrsta. Kaupendur Skinfaxa á ísafirði og þar í grend mega greiða andvirði blaðsins til Guðm. Jónssonar frá Mosdal Bókasöfn sambandsfólaganna eru beðin að senda afrit af bókaskrám sínum til Sambandsstjórnarinnar við fyrsta tæki- færi. ÖIl erindi viðvíkjandi ritstjórn og af- greiðslu blaðsins eru menn beðnir að senda Jóni Kjartanssyni. Pósthólf 516. Reykjavik. Félagsprentsmiðjan

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.