Skinfaxi - 01.08.1918, Page 8
SKINFAXI
64
SKINFAXI.
Mánaðarrit U. M. F. 1.
Verö: 2 krónnr. — Ojalddagi fyrir í. júlí.
Ritstjóri: Jón Kjartansson, Skóllioltsstíg 7.
Pósthólf 516.
Félagsmál.
Nýtt sambaudsfélag.
Ungmennaféiag Siglufjarðar gekk í Sam-
bandið s.l. vor, samkvæmt bréti frá fjórð-
ungsstjórn Norðlendinga. Það telur 54
félaga. í vor, 17. júní, gekst félagið fyr-
ir íþróttamóti í Siglufirði, ræðuhöldum o.
fl. lil skemtunar í sambandi við |>að. Fór
]>ar fram kapphlaup, 3000 metra. Sá
fljótasti rann skeiðið á 10 mín. og 56 sek.
Þá var 150 m. hlaup og hlupu tveir jieir
fljótustu það á 19 sek. . . Nokkrar stúlk-
ur keptu á 100 m. hlaupi og voru tvær
þær íyrstu 17 sek. Þá var þreytt sund,
glímur og róður.
Dag þennan bárust félaginu 100 krón-
ur að gjöf frá prestinum þar, séra Bjarna
Þorsteinssyni, er hann óskaði að fél. verði
til einhverrar starfsemi, t. d. trjá- eða
blómræktar. „Hann hefir verið okkur
ágætur stuðningsmaður síðan við fyrst
stofnuðum þetta félag, t. d. útvegað okk-
ur fundarstað ókeypis og greitt fyrir okk-
ur á fleiri vegu. Nú ætlar hann að láta
okkur í té, ókeypis, blett úr Hvanneyrar-
landi til trjá- eða blómræktar", segir einn
félagsmaður í bréfi til Skinfaxa. Um leið
og blaðið býður félagið velkomið í Sam-
bandið, vill það tjá prestinum þakkir fyr-
ir þann stuðning og höfðingsskap, er hann
sýnir félaginu. Gott er þegar eldri menn-
irnir sýna útþrá æskunnar slíka samúð
og góðgirni.
Úrval bóka.
A síðasta fjórðungsþingi Vestfnðinga
var kosin nefnd til þess að semja skrá
XJtauáskrift blaðsins cr:
„Skiníaxi“
Pósthólf 516
Reykjavik.
um þær bækur, er henni þætli best til
fallið að ungmennafélögin keyptu handa
bókasöfnum sínum., Nefndin hefir nú
samið skrána og er hún send öllum félög-
um á Ijóiðungssvæðinu. Reynslu vantar
enn, lil þess unt sé að dæma um hvern-
ig þetta gefst hér, en algengt er að slík-
ar úrvalsskrár sé gefnar út til leiðbeiningar
söfnum í öðrum löndum.
Ungmennafélag Mýralirepps
i Dýrafirði, ætlar að halda heimilisiðn-
aðarnámsskeið í vetur. Verður fyrirkomu-
lag þess sennilega eitthvað svipað og náms-
skeiðs Onfirðinga í fyrra vetur. Styrk fær
félagið dálítinn úr fjórðungssjóði og má
sennilega vænta einhvers frá Heimilisiðn-
arfélagi íslands.
Bogi Th. Melsted
sagnfræðingur, mun vera rhinn ónefndi
gefandi „Ársritsins“ sem um getur í sið-
asta blaði. Gjöf hans er viðurkenning til
ungmennafélaganna fyrir ræktarsemi við
hugsjón, er hann berst fyrir af kappi og
fórnfýsi. Annars er það gleðilegt hversu
Hafnar-íslendingar sýna hverskonar fram-
faraviðleitni hér heima mikla samúð og
fylgi. Bogi Melsteð er ekki sístur. Má
til þess nefna afskifti hans af samvin.ui-
félagsskapnum og ungmennafélögunum.
F élagsprentsmiðj an.