Skinfaxi - 01.06.1919, Blaðsíða 5
SKINFAXI
45
óviturlegt, að bendla barnasálir við
fjármál og framkvæmdir, og fá ung-
lingum í hendur verkefni fullorðinna
manna, áður en þeim er vaxinn fiskur
um hrygg ? Getur það ekki verið hættu-
legt, að troða fullorðinsárunum upp á
unglingana áður en æskuárin hafa unn-
ið sitt þroska og líffegrunarstarf í sál-
um þeirra?
Eg svara öllum þessum spurningum
óhikað játandi. þess vegna þarf þjóðin
að eiga ósvikin ungmennafélög, þar
sem félagslegt hugsjónalíf æskumanna
getur þróast; þar sem félagsáhrifin
verka mestmegnis inn á við, og þar sem
hugsj ónaflug og draumalíf æskumanns-
ins hindrast ekki, heldur nær út yfir
reynslu fullorðinna manna.
Eg þykist nú hafa sýnt fram á, að
unglingunum geti ekki verið holt, að
eiga félagslega samleið með fullþrosk-
uðum mönnum. Nú vil eg athuga það
lítið eitt frá sjónarmiði hinna eldri.
Framsókn þeirra og félagsáhrif er nóg
til þess að gera hina yngri máttarminni
og ganga upp í þeim og hverfa svo að
segja. Hins vegar er framsókn hinna
eldri ekki óhindruð. Meðvitundin um
það, að þeir séu ungmennafélag, leggur
á þá óafvitandi hömlur. Hinir eldri og
yngri eru eins og tvær gagnverkandi
stærðir, sem upphefja hvor aðra að
nokkru leyti. Málum félaganna þarf að
koma svo fyrir, að hinir yngri sæki
fram til þroskans á sinn eigin hátt, og
að hinir eldri séu frjálsir og óháðir til
djarfmannlegrar og stórhuga fram-
sóknar.
Úríausnarefnið er þá það, hvernig
þessu verði komið í kring, án þess að
vandræði hljótist af fyrir eldri og yngri.
Mér hugkvæmist ekki nema ein leið,
og eg set hana hér fram i eftirfarandi
tillögum:
1. Öll ungmennafélög á íslandi
samþykki það lagaákvæði, að enginn
eldri en 25 ára megi vera í ungmenna-
félagi. þeir, sem við það ganga úr fé-
lögunum, stofni ný félög, sem hljóti
nýtt nafn, t.d. „Framfarafélög íslands“.
2. peir, sem eftir verða, haldi fé-
lagsnafni sinu óbreyttu. í þeim félögum
skipi Iiugsjónamálin jafnan öndvegi.
pau endurskoði stefnuskrá sína, og
miði hana einkum við þau verkefni,
sem þroska einstaklinginn.
3. Ungmennafélögin nái tilgangi
sínum með málfundum, félagsblaði,
upplestrum, fyrirlestrum, söng, skemti-
ferðum, bindindisstarfsemi o. fl.
4. Ungmennafélögin hafi engin
framkvæmdamál með höndum, sem
krefjist fjarframlaga, nema þau sem
lúta að íþróttum og því öðru, sem fé-
lagsstarfsemin, samkvæmt stefnu-
skránni, krefst.
5. Fjárhagur félaganna sé skilinn
að, og sé eignum og skuldum skift milli
þeirra eftir samkomulagi hvorutveggja
félagsmanna.
6. Ungmennafélögin myndi héraðs-
sambönd, sem starfi einkum að iþrótt-
um og þeim málum öðrum, sem eru
mörkuð á stefnuskrá þeirra.
7. Á stefnuskrá Framfarafélaganna
verði ýms þau mál, sem hin núverandi
ungmennafélög hafa með höndum, og
þau mál önnur, sem miða til gagns
og sórna fyrir sveit þeirra, hérað og
þjóðfélag.
8. Framfarafélögin stofni héraðs-
sambönd, er myndi „Samband Fram-
farafélaga íslands“ (S. F. í.), og komi
það í stað U. M. F. í. Héraðssambönd-
in beitast fyrir þeim menningarmálum,
sem héraðið varða, og hafi milligöngu
milli einstakra félaga og S. F. í.
9. Samband Framfarafél. íslands