Skinfaxi - 01.08.1921, Qupperneq 3
SKINFAXI
19
Innheimtan. Eins og nú stendur, á
Skinfaxi töluvert fé í útistandi skuldum;
veröur með haustinu gengið rækilega að
því, að ná þessum skuldum inn. Helst
hefir mér litist á það að skrifa ungmenna-
félögum, og einstökum dugnaðar og áhuga-
mönnum, og senda þeim lista yfir skuld-
uga kaupendur í þeirra sýslu eða nágrenni.
Vonast eg eftir því, að góðir ungmenna-
félagar liggi ekki á liði sínu, enda er það
ekki vansalaust, að blaðið geti ekki þrifist
fyrir vanskil, þar sem það er eign U. M.
F. og mest keypt af þeim.
Flutningurinn. Um langt skeið hefir
Skinfaxi verið prentaður í Félagsprent-
smiðjunni, og á hann þaðan endurminn-
ingar. Með þessu blaði byrjar prentsmiðj-
an Acta að prenta blaöið. Flestir eigend-
ur hennar eru starfandi ungmennafélagar,
og munu þeir ekki láta sitt eftir liggja, að
blaðið líti vel út — að því, sem í þeirra
valdi stendur. M. S.
Sambandsstj órnin.
Sambandsþingið í vor gerði þá breytingu
á skipun sambandsstjórnar að nú eiga þar
sæti fimm menn, sem hingað til hafa aðeins
verið þrír. Ber það til að mikil störf hvíla
á stjórninni og algerlega ólaunuð, hún er
skipuð til 3ja ára í senn og reynsla fyrri
ára bendir ótvírætt á að einir þrír menn
geti ekki lagt fram næga krafta til stjórn-
arstarfanna svo lengi.
Hinn nýi sambandsstjóri heitir Magnús
Stefánsson úr Eiðaþinghá á Héraði. Hann
er garpur mikill um allskonar íþróttir,
mjög áhugasamur ungmennafélagi, og
manna liðtækastur til hverskonar félags-
starfa. Hann var fyrst einna bestur félagi
heima í sinni sveit og síðar í Ungmenna-
sambandi Héraðsbúa. Síðastliðinn vetur
varð hann formaður U. M. F. Reykjavík-
ur og hefir það félag síðan starfað all
mikið. Auk þess hefir Magnús unnið mikið
starf í glímufélaginu Armann hér í bænum.
Skinfaxi vill því af alhug árna sam-
bandsstjóranum nýja allra heilla að göml-
um sið og væntir þess fastlega, að honum
takist með aðstoð samherjanna að rétta
við félagsskapinn eftir ok styrjaldaráranna.
Það sem hér er sagt um Magnús er sagt
til þess að þeir sem ekki þekkja hann
jafnvel og sá er þetta ritar, geti vitað hver
hann er og hvers má vænta, því að eitt
af því sem félagsskap okkar má verða til
þroska er það að þess sé getiö sem vel
er gert. Þess vegna skorar blaðið á fé-
lagsmenn hvarvetna á landinu að senda
ritstjóranum fréttapistla af því helsta sem
ber til tíðinda í félögunum. Sendið sam-
bandsstjórninni fyrirspurnir og biðjið hana
um hjálp ef þið eigið einhver áhugamál
sem þið einir komið ekki fram, vera má
að hún geti orðið ykkur að liði — miðill
fjarlægra krafta er sameinaðir gætu rutt
brautina til sigurs.
I sambandsstjórninni með Magnúsi Stef-
ánssyni er Guðmundur Davíðsson kennari
og fyrrum sambandsstjóri, Guðrún Björns-
dóttir frá Grafarholti og 2 úr síðustu stjórn
Guðmundur Jónsson og Jón Kjartansson.
Ef ungmennafélagar vilja snúa sér til
einhvers úr stjórninni eða til hennar í
sameiningu um einhver félagsmál eða til
Skinfaxa, þá þarf ekki annað en merkja
á bréfin auk nafnsins »Pósthólf 516 Reykja-
vík«. Látið ekki dragast að koma áhuga-
málum ykkar á framfæri. Því að það er
ekki nóg þó að við megum vænta mikils
af sambandssstjórninni í sameiningu. Til
þess að koma málum félaganna í viðun-
andi horf þurfa allir starfhæfir kraftar sem
þau ráða yfir að taka höndum saman.
X