Skinfaxi - 01.10.1921, Síða 2
30
SKINFAXI
Skinfaxi
Mdnaðarrit U. M. F. í.
Verð 2 krónur. — Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Ritstjóri: Helgi Valtýsson, Pósthólf 533
Afgreiösla og innheimta — 516
loft upp af hamrastöllum í alviðru and-
varaleysis og áhugaskorts?
Án öflugrar þjóðernisvakningar á
íslenska þjóðin enga sæmilega framtíð
fyrir höndum. Enginn »renessance« (endur-
fæðing) með neinni þjóð án þjóðernisvakn-
ingar! Hér þarf að kveða niður allan
þennan þjóðrembingsgorgeir með þjóð vorri
sem því miður hreykir sér all hátt alt of
víða. Hann á alls ekkert skylt við hreina
þjóðernisvakning. Hún er fólgin í þeim
djúpstreymisáhrifum, er ræktun bestu þjóð-
kosta vorra og eiginleika í oss sjálfum
hefir í för með sér. I sjálfstæðri ísl. menn-
ing og framförum á þjóðlegum grundvelli.
I andlegu sjálfstæði þjóðinnar!
A þann hátt einan verður þjóð vorri
auðið á ný að marka ómáanleg spor í
menningarsögu þjóðanna.
Þetta er eina leiðin til framtíðarlandsins!
Enginn féla^sskapur, hversu þjóðnýtur sem
hann er í sjálfu sér t. d. stjórnmálafélög.
samvinnufélög, búnaðarfélög, jafnaðar-
menska o. s. frv. nær þessu takmarki án
öflugar þjóðernisvakningar! Hún er undir-
staða allra sannra þjóöþrifa!
Hér er verksvið ungmennafélaganna nú
sem áður fyrri. Þau eru eigi íþróttafélög,
skógræktar,- heimilisiðnaðar,- eða skemti-
félög eingöngu. Þau eru mikk meira
en alt þetta! Þau eiga nú sem áður að
vekja og glæða áhuga og starfsþrá æsku-
lýðsins í góðum og göfgandi félagsskap á
þjóðlegum grundvelli. Þákoma, sjálfkrafa
öll þau hin ljölbreyttu störf, sem æskulýð
mega gleðja og gagna.
Ungmennafélagar! Eigum við ekki á ný
að taka höndum saman og lofa hver öðr-
um að stefna drengilega að þessu tak-
marki! Eigum við ekki að strengja þess
heit að mætast mannsterkir á Hofmanna-
flöt þjóðar vorrar að 5 árum liðnum! Og
halda þá framtíðarhamingju Islands í hönd-
um vorum!
Það er verkefni »Skinfaxa« m. a. að
leiðbeina ungmennafélögunum að þessu
takmarki.
íþróttamót
Bandalags Ungmennafélaga Vestfjarða.
Sunnudaginn 7. ágúst síðastliðinn var háð
íþróttamót á Isafirði að tilhlutun B. U. V.
Veður var hið versta aðeins 4 stiga
hiti. Kl. 11. f. h. setti, hr. kennari Björn
Guðmundsson mótið með snjallri ræðu,
að því loknu var kept sem hér segir.
Langstökk hluttakendur 3; verðl. Júlíus
Rósinkranz úr íþróttafél. Kári.
100 m. hiaup hluttakendur 4; verðlaun
Elías Halldórsson úr U. M. F. Árvakur.
500 m. hlaup hluttakendur 2; verðl.
Jón Leóson, sama félag.
1000 m. hlaup hluttakendur 3; verðl.
01. Magnússon úr sama félagi.
Þá var 1 kl. tíma hlé, síðan ræða fyrir
minni Islands hr. kennari B. Guöm.
Leikfimissýning 9 manna flokkur úr U.
M. F. Árvakur, undir stjórn G. Andrew.
' Hástökk hluttakendur 4; verðl. Guðm.
Breiðdal úr íþróttafél. Kári.
Stangarstökk hluttakendur 4; verðlaun
Leó G. Böðvarsson úr íþróttafél. Höfrung-
ur.
Spjótkast hluttakendur 3; verðl. Óskar
Þórðarsson úr íþróttafél. Höfrungur.
Kringlukast hluttakendur 4; verðl. sami.
(slensk glíma hluttakendur 3; 1. verðl.