Skinfaxi - 01.10.1921, Side 3
SKINFAXI
3i
Jens Jónsson úr ungmennafél. Bolungar-
víkur.
Knattspyrna. Tvö félög keptu Hörður
og ísfirðingur bæði af ísafirði Hörður
vann I : O.
50 m. suntl hluttakendur 2; verðl. Ól.
Guðmundson úr. U. M. F. Arvakur.
100 m. sund hluttakendur þeir sömu og
sá sami fljótari, enginn verðl. Verðlaun
voru silfurpeningar, og aðeins veitt ein
verðlaun, nema í glímunni tvenn.
Hluttakan má heita ágæt þegar tekið
er tillit til allra örðugleika Af þeim 6 tél.
sem tóku þátt í mótinu hafði U. M. F.
Árvakur flesta vinninga. Fetta er fyrsta
almenna mótið sem B. U. V. gengst fyr-
ir. Vonandi fellur aldrei ár úr, og hluttak-
endum fjölgi ár frá ári. N.
Molar.
Deyfð. Margir sem eg hef tal af, segja
mér þau sömu tíðindi, að ungmennafélags-
skapurinn sé í afturför. Hvernig getur
staðið á þessu? Er ekki nóg að starfa?
Jú. En, vantar þá starfskrafta? Nei. En,
það vantar áhuga.
Ungmennafél. eru og eiga að vera hug-
ræktarfélög, og sannarlega er þeirra þörf.
En það tjáir ekki að æðrast og fella þunga
dóma. Það eina sem dugar, er að starfa;
starfa undir drep. »Maður, þér ei ætlað
er, rósar að lifa lífi«.
Það kemur öllum saman um að margt
fari ver en skyldi, mörg glappaskot eru
gerð, bæði af æðri og lægri. Jafnvel menn
sem taldir eru fyrir félagsskap, sem vel-
megun og farsæld alþjóðar er undir kom-
in, bregðast trausti góðra manna. Það vant-
ar þroska, vilja og þekkingu. Ef til vill
veit ekki þjóðin sjálf hvað hún er að gera.
Hamingjan gefi að eldmóður landsins
bestu manna fyr og síðar, megi endur-
vakna með þjóð vorri. Hamingjan gefi að
ungmennafélögin vaxi og dafni, í því sem
er gott og háleitt!
Konur og karlar! Leggið hönd á plóginn,
komið með og starfið til heilla fyrir land
og lýð. Enginn má liggja á liði sínu. »Hrind-
um svefni afhvarmi! Hratt að verki snjallir!«
Svo hvað Helgi og enn þá þyrfti að kveða
það svo hátt og hvelt, að enginn gæti
sofið meðan dagur er.
Skógræktarmál. Eg átti tal við lierra
Kofoed Hansen skógræktarstjóra um friðun
skógarleifa í Leyningshólum, gaf hann mér
þær upplýsingar, að skógurinn hefði ver-
ið girtur fyrir löngu síðan, ef fé hefði verið
fyrir hendi til þess, en styrkur úr lands-
sjóði til skógræktar er ekki svo ríflegur
að hægt sé að gera það bráðnauðsynleg-
asta; vonandi rætist fram úr því bráðlega.
Blaðið. Eitt af því sem er bráðnauðsyn-
legt, er að blaðið geti komið reglulega
út, en það getur það ekki nema menn
standi í skilum. Eins og bent var á í 5
tölublaði verður leitað liðs hjá félögun-
um og einstökum dugnaðarmönnum, en
auðvitað eru Skinfaxa þau blaðgjöld kær-
ust sem ekki þarf að »rukka inn«. Eins
og menn sjá af þinggerðinni var samþykt
að hækka blaðgjaldið. Þetta hefði þurft
að vera búið fyrir löngu síðan og þetta
hafa öll blöð gert, þessvegna er þess
vænst að menn taki hækkuninni ekki illa.
Nýir kaupentlur Skinfaxa fá V. árg. inn-
heftan í kaupbæti.
Afgr. kaupir háu verði I. og III. árg.
Skinfaxa og VII. árg. I,-—3. tbl.
Félagsmál. Nú um nokkurt skeið hefir
Skinfaxi varið litlu rúmi til þess að ræða
hin einstöku félagsmál. Mér finst þetta
hafa stungið í augum, og eg hefi kunnað
illa við það. Eg held að þetta hafi komið
af því meðal annars að blaðinu hafi bor-
ist lítið af fréttum og ritgerðum um málin.
Ef við viljum að ungmennafélagsskap-
urinn lifi góðu lífi, þá þurfum við að
hefjast handa Og ræða mál okkar ítarlega.
Margt hefir breyzt frá þeim tímutn, þegar