Skinfaxi - 01.10.1921, Síða 4
32
SKINFAXI
félagsmál voru rædd af mestum eldmóði.
Tímarnir hafa breyzt og við hljótum að
breytast með. Nýir straumar berast að
utan úr heimi. Nýjar hugsjónir fæðast og
þroskast og breytast í veruleika. Nýjar
leiðir opnast inn á framtíðarlandiö, greið-
færari og glæsilegri. Fyrir þessu þurfum
við ungmennafélagar að hafa glögt auga.
Við þurfum að vera fljótir að velja rétta
leið að settu marki. Við þurfum að vera
öruggir til framkvæmda.
Hvort sem þú ert karl eða kona, öld-
ungur eða barn, þá verður þú að vita
hvað þú vilt, og eg veit að þú vilt góðu
máli vel, vilt það vegna lands og lýðs og
alls mannkynsins, vilt það vegna réttlætis-
tilfinningar þinnar sem þú hlaust í vöggu-
gjöf. Þessvegna er það ósk mín og von, að
sem flestir biðji Skinfaxa fyrir eitthvað
gott og fagurt sem þeim hefir dottið í
hug. Biðjií) hann fyrir fréttir af félaginu
ykkar, það eykur fjör í félagsskapnum og
ýtir undir þá áhugaminni — og ef þið
getið notað sambandsstjórnina til einhvers,
þá blessuð gerið þið það, því henni er
ljúft að leysa hvert það verk af hendi
sem hún getur fyrir U. M. F. I. - M. S.
Lögeggjan.
Mörgum mun virðast svo, að sambands-
stjóri og ritstjóri hafi orðið harla samhent-
ir í því að fárast um deyfð og áhugaleysi
ungm.félaga í þessu tölubl. Skinfaxa og
er því eigi að neita. Vissi þó hvorugur
af öðrum, er greinar þessar voru ritaðar.
Ættu þá ádrepur þessar að bera þess
vott, að áhugi og eldmóður í starfi ungm.-
félaganna sé oss báðum alvarlegt á-
hugamál. Og því miður er of mikið
talað úr öllum áttum um áhugaleysi í
félagskap vorum! Viljum vér gjarnan stuðla
að því af öllum mætti, að því ámæli
verði hnekt hið bráðasta. Bregðist »vor-
menn Islands« vonum vorum, þá visna
því miður margar fegurstu vonir mínar
um framtíð þjóðar minnar og þinnar!
Væntum vér því að þessi »lögeggjan«
okkar sambandsstjóra verði ykkur til hvatn-
ingar og hugarörfunar, en eigi til gremju!
Ritstj.
»Dagskrá« ritstjóra.
Fram eftir vetrinum mun »Skinfaxi«
leitast við að flytja greinar og smápistla um
jákvæð efni, er orðið gætu til beinna leið-
beininga í starfi félaganna í vetur og til
undirbúnings undir ókominn tíma t. d.
næsta sumar. Skal hér aðeins drepið laus-
lega á örfá atriði:
1. Söngur í ungm.félögum. Er mörgu
ábótavant í þeim efnum, og þó fátt sem
glæðir og gleður meira en góður söngur.
Ættu félögin á vetrum að iðka söng
eftir föngum og búa sig undir sumarmót-
in (»íþróttamótin■<) eftir vissum reglum og
samtökum. Verður vikið nánar að þessu.
2. Sumarmót eða Ungmennamót. Ekki
»íþróttamót« eingöngu. Fróðlegt efni og
víðtækt.
3. H a n d b ó k ungmennafélaga. Sam-
bandsritari ungm.félaganna norsku hefir
samið stóra og rækilega Handbók
handa félögunum. Er þar tekiö með nær
alt það sem að góðu félagsstarfi lýtur. Þar
eru leiðbeiningar um öll veruleg félags-
störf, dagskrár fjölbreyttar mjög, leiðbein-
ingar um íþróttir og aðrar »fagrar listir«
t. d. lestur (»upplestur«), málsnild, leik-
list (í félögum) o. m. fl.
Mun »Skinfaxi« smá saman flytja sýnis-
horn og smákafla úr bók þessari.
4. Sumaríþróttir og útileikar sem
vel eiga við í sveit. Skortir þar all mjög
leiðbeiningar. Til þessa hafa íþróttir vor-
ar aðallega verið með borga-sniði, eins
og eðlilegt er, þar sem þær nær eingöngu
hafa verið stundaðar í kaupstöðum. En til
er fjöldi íþróttaleika sem sérstaklega eiga
vel við í sveit, auðlærðir tilsagnarlítið.
Prentsmiðjan Acta — 1921.