Skinfaxi - 01.12.1921, Blaðsíða 2
38
SKINFAXI
Skinfaxi
Mdnaðarrit U. M. F. í.
Verð 2 krónur. — Gjalddagi fyrir 1. júlí.
Ritstjóri: Helgi Yaltýsson, Pósthólf 533
Afgreiðsla og innheimta — 516
°g góð skemtun og ómetanleg örfun og
glæðing á marga vegu. Yrði það ágætur
þáttur sumarmóts, og myndi vekja mikla
gleði hjá allri alþýðu. Setjum svo að t. d.
3 félög ættu allgóðan söngflokk (auðvit-
að ættu þau að vera fleiri!) Syngi svo
hvert félag 5 lög sér, og 'óll sameiginlega
t. d. 3, yrði það sérstaklega efnisríkur og
íjölbreyttur hljómleikur, er lengi myndi í
minnum hafður þar, sem þetta væri al-
gert nýmæli.
Eg spái því, að sumarmótin, ungmenna-
félögin sjálf og sveitirnar í heild sinni
myndu auðgast og þroskast við þesshátt-
ar starfsemi!
Eigum við þá ekki að reýna að syfigja
saman þjóðina vora á komanda ári! Syngja
sólbjart sumar inn í sveitalífið íslenska!
Reykjanes
víð ísafjarðardjúp.
Það mun ekki vera ofmælt þó maður
segi, að 'sundlaugin í Reykjanesi sje eins-
konar »Mímisbrunnur< sundíþróttarinnar á
Vestijörðum. Síðan 1896 hafa fá ár fallið
úr, sem ekki hefir verið kent þar sund,
og oftast mánaðartíma að vorinu. Konur,
jafnt sem karlar, hafa notið góðs af þess-
ari kenslu. Margir af þeim sem lært hafa
í Nesinu, háfa bjargað sér úr sjávarháska.
Þó mun enginn jafn dásamlega geta lofað
sundkunnáttu og Halldór Olafsson, sem
bjargaði sér úr snjóflóði því er féll á
Snæfjallaströndinni síðastliðinn vetur. Því
þessi maður var tvisvar áður búinn að
bjarga sér á sundi undir sömu kringum-
stæðum. — Sundkunnáttan eykst hrað-
fara á Vestfjörðum síðustu árin, og mun
vera óhætt að fullyrða, að það sé mest
að þakka þeim eldmóði, sem hver nem-
andi hefur teigað í sig hjá kennurunum
í Reykjanesi. — Síðustu árin hefir U. M.
F. Huld gengist fyrir kenslunni. En nú
á það félag erfitt verk fyrir höndum. Sund-
laugina þarf að færa og steypa algerlega
upp að nýju, og um leið að byggja hús
með mörgum herbergjum og stórum leik-
fimissal. — Verði félagið svo lánsamt að
njóta síns góða formanns, ungfrú Jakobínu
Þórðardóttur frá Laugabóli, er lítill vafi
á því að þetta stórvirki kemst í fram-
kvæmd.
Ætlunin er að hafa fyrst námsskeið fyrir
pilta, mánaðartíma að vorinu, en síðar
annað fyrir stúlkur, t. d. seint í júlí og
framan af ágúst. Mundi það námsskeiðið
aðallega verða sótt frá Isafirði, og gæfist
þá stúlkum þar gott tækifæri til að nota
vel sumarleyfi sitt, en jafnframt að njóta
sælu sveitalífsins. — Þaö væri betur, að
öll ungmennafélög á landinu fyndu jafn
mikla hvöt hjá sér til að efla íþróttir, bæði
út á við og innan sinna vébanda og ung-
mennafélagið Huld. En. hversvegna erum
við ungmennafélagar búnir að gleyma því
háleitasta takmarki félagsskapar okkar sem
er að fullkomna sjálfan sig og meðbræður
sína, bæði andlcga og líkamlega.
'7, Þ-
Fjórðungsþing
U. M. F. Vestfjarða.
Arið 1921 dagana 29. og 30. marz var
9. fjórðungsþing U. M. F. Vestfjarða háð
að Kirkjubóli í Korpudal í Önundarfirði.
Alls voru mættir 13 fulltrúar frá 8 félög-
um. Gerðir þingsins: